Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Page 6
6 - Sjómannablaið Víkingur
Ég var á svokölluðum Sparidögum
á Hótel Örk í Hveragerði í október
2006. Eftir kvöldmatinn á fyrstu kvöldv-
ökunni kom til mín maður sem kvaðst
heita Einar Guðnason og sagði að ég
hefði bjargað lífi sínu. Ég kannaðist nú
ekki við manninn í sjón og mundi ekki
eftir að hafa bjargað lífi neins Einars.
Kvaðst hann þá hafa verið skipstjóri
á Friðbert Guðmundssyni ÍS 403 er
ég hefði leiðbeint inn á Önundarfjörð
fyrir Páska 1963. Hann hefði verið að
koma úr radarviðgerð á Ísafirði á leið til
Suðureyrar í NA stórhríð þegar radarinn
bilaði aftur út af Skálavík. Þá rifjuðust
upp nokkur atriði er tengdust Páska-
hátíðinni þetta ár.
Ómar kom fljótandi
Ég var búinn að vera skipherra á v/s
Maríu Júlíu síðan um miðjan janúar 1963
og þegar þetta gerðist voru Vestfirðir
okkar gæslusvæði sem var mjög við
hæfi því María Júlía var jú „björgunar-
skúta Vestfjarða.“ Ég hafði kvöldið áður
ákveðið að kanna ágang togara við 12
sml fiskveiðimörkin frá Látrabjargi austur
fyri Horn og þegar ég var ræstur í morg-
unmat um kl 8 , þriðjudaginn 9. apríl
vorum við vestur af Straumnesinu á NA
leið, blanka logn og sléttur sjór. Dyrnar
á keisnum stóðu opnar þegar ég kom
upp eftir rakstur ca. korteri seinna svo
ég fór bara út á dekk og morgunpissið
fór yfir lunninguna. Ég tók fljótt eftir að
hann var óvenjulega dökkur til hafsins og
leist bara alls ekkert á blikuna, skálkaði
dyrnar, fór upp í brúardyrnar og sagði
stýrimanninum að snúa við og halda á
Önundarfjörð. Ég var ekki staðinn upp
frá morgunverðarborðinu u.þ.b. 15-20
mín seinna þegar hann skall á eins og
hendi væri veifað, norðaustan spænu rok,
blindbylur og haugasjór.
Hafsteinn A Hafsteinsson - nú skip-
stjóri hjá Eimskip - var háseti á vakt í
brúnni man vel þegar ósköpin skullu á.
Stýrimaðurinn hafði ætlað að nota þessa
einmuna blíðu til að ferskvatns þvo yfir-
bygginguna svona fyrir Páskana sem var
svo sjálfhætt þegar Ómar Jensson báts-
maður í gula sjóstakknum sínum kom
fljótandi fram dekkið í brotsjó sem skall
yfir skutinn um leið og hvellurinn. Ómar
náði svo að bjarga sér með fötu og kúst
niður í lúkarinn gegnum dyr aftan á hval-
baknum.
Við lögðumst svo fyrir akkeri innan
við Flateyri kl 1307 og kl 1358 kallaði
„Flat-eyrar radió“ og bað okkur að hefja
leit að m/b Einari Þveræing sem hefði
sent út neyðarkall á vinnubylgju vest-
fjarðabáta 2261 kílórið og væri að sökkva
út af Barða.
Við léttum strax akkeri og settum á
fulla ferð út fjörðinn og einn þrílemb-
inganna (þrjú systurskip Eimskips),
Lagarfoss að mig minnir sem var ný
lagstur þarna fyrir akkeri setti líka á fulla
ferð með akkerið rétt laust úr botni. Ekki
náðist samband við Einar og við vorum
farnir að búast við hinu versta og mér
hraus hugur við að stjórna leit við þessar
aðstæður. María Júlía átti nefnilega til
að leggja sig illilega á brælulensi, hvað
þá yfirísuð. En svo náðist samband kl
1430 og var þá allt í lagi að þeir sögðu.
Loftnetið hafði slitnað niður stuttu eftir
að hann fékk á sig brotið sem braut tvo
glugga og fyllti stýrishúsið. Við mættumst
svo út af Ingjaldssandi, fylgdumst inn
fjörðinn og ég lagðist aftur fyrir akkeri
innan við Flateyraroddann. Þar var þá
vindur hægur en dálítil snjókoma.
Óveðrinu slotaði ekki og við lágum
þarna bara áfram
Hjálparkall berst
Það var svo kl 2136 fimmtudaginn 11.
sem m/b Friðbert Guðmundsson kallaði
í okkur á neyðarbylgjunni 2182 kílórið.
Kvaðst hann vera út af Galtarvita með
bilaðan radar, treysti sér ekki til að taka
Þröstur Sigtryggsson
Páskahret 1963
Þröstur Sigtryggsson.