Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Blaðsíða 60

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Blaðsíða 60
Getraun þessi er miðuð við að þeir sem kunnugir eru ströndum lands- ins, sjávarbyggðum og fiskimiðum eigi auðvelt með að svara þessum 10 spurningum sem hún hefur að geyma. Upphafsstafir svara við fyrsta lið spurn- inganna eiga að mynda nafn á um 14 km löngu klettabarði við sjó. Þarna verpir mikill fjöldi fugla og hefur öldum saman verið sigið eftir eggjum og fugli. Fjöldi skipa hefur farist á þessum slóðum og þarna var unnið frækilegt afrek er áhöfn skips var bjargað fyrir liðlega 60 árum. 1. Þegar landhelgin var færð út í fimmtíu sjómílur 1958 urðu mikil átök á mið- unum eins og margir muna. Hver var sjávarútvegsráðherra þegar útfærslan tók gildi? Hvað hét skipherra Landhelgisgæslunnar sem mest kom við sögu í þessu stríði? 2. Landgrunnsbrúnir beggja vegna eyjar einnar við Ísland hafa fengið sérstök nöfn. Á grunninu kringum eyjuna og milli eyjar og lands eru fengsæl mið sem komu mjög við sögu meðan stundaðar voru síldveiðar. Þar stunduðu Færeyingar lengi handfæraveiðar og komust í mikið vinfengi við eyjarskeggja. Byggð í eyju þessari hófst snemma og er ekki vitað hvenær. Nærri lá að byggð þar eyddist árið 1793 er þar gekk skæð taksótt. Nú búa þarna um 100 manns. Hvað heita brúnir landgrunnsins? Hvaða eyja er þetta? 3. Snemma á 20. öld kom út skáldsaga sem lýsir hákarlaveiðum og lífi þeirra manna sem þær stunduðu Hver var höfundur þessarar skáld- sögu? Hvað heitir sagan? 4. Eldfjall við sjó sem talið er að hafi gosið seint á ísöld. Mikil gígskál er ofan í topp fjallsins. Allmikið er þarna um bjargfugl en hefur lítið verið nytjaður vegna þess hve bjargið er sprungið og hættulegt að síga í það. Á fjallinu er viti. Við norð- austur horn fjallsins er drangur mikill sem nefndur er „karl“ en í seinni tíð hefur hann verið nefndur eftir rithöfundi sem ólst upp á þessum slóðum. Einn íslenskur togari smíðaður í Japan 1973 hefur borið nafn þessa fjalls. Hvaða fjall er þetta? Hver var rithöfundurinn? 5. Eyjaklasi þar sem oft var búið stórbúi. Þar bjó um langt skeið klerkur sá er tal- inn er vera fyrirmynd Jóns Thoroddsen að séra Sigvalda í Manni og konu. Hjá klerki þessum var um skeið vinnukona sem fékkst við ljóðagerð og árið 1876 kom út eftir hana ljóðabókin Stúlka sem er fyrsta ljóðbók eftir konu sem út kom á Íslandi. Þarna ólst upp maður sem snemma á 20 öld var þingmaður og ráðherra um skeið. Hvaða eyjar er hér um að ræða? Hvað hét ráðherrann? Hvað hét skáldkonan? 6. Bjarg yst á tá milli tveggja fjarða. Skammt fram undan bjarginu liggur eyja um 9 ha. að stærð. Eyjan er nær algróin og þar er nokkurt æðarvarp. Búið var í eyjunni öðru hverju fyrr á öldum og síð- ast 1884-1890. Jón Guðmundsson lærði dvaldist þar með leynd 1632-1635 en hann var grunaður um galdur og ofsóttur þess vegna. Hvað heitir eyjan? Hvað heitir bjargið? 7. Fyrir nokkrum árum kom út saga Útgerðarfélags Akureyringa Hver er höfundurinn? Hvað heitir bókin? 8. Kaupstaður sem ber sama nafn og svæðið sem hann stendur á. Þar hefur lengi verðið mikil útgerð og fiskvinnsla enda fengsæl fiskimið skammt undan landi. Staðurinn var löggiltur verslunarstaður 1864 og fékk kaupstaðarréttindi 1942. Laust eftir miðja 17. öld hóf Brynjólfur Sveinsson biskup í Skálholti útgerð frá staðnum og má segja að þar með hafi þéttbýli tekið að myndast. Árið 1921 fæddist þar rithöfundur sem árið 1968 sendi frá sér skáldsöguna „Leikir í fjörunni.“ Hvað heitir kaupstaðurinn? Hvað heitir rithöfundurinn? 9. Sæbratt fjall sem oft er nefnt í hafísfréttum. Uppi á fjallinu höfðu Bandaríkjamenn mið- unarstöð á árum síðari heimsstyrjaldarinn- ar til að fylgjast með skipaferðum. Út af fjallinu er lítill drangur sem heitir Nál en í skörðum sem skilja fjallið frá næsta fjalli er drangur sem Darri heitir. Munnmæli herma að í Darra búi vættur er haldi hlífiskildi yfir sjófarendum. Hvað heitir fjallið? Hvar er það? 10. Í mars mánuði 1984 fórst íslenskt fiskiskip fyrir sunnan land. Í áhöfninni voru alls fimm menn fjórir fórust með skipinu en einn vann það ótrúlega afrek að synda til lands 5-6 km í ísköldum sjónum. Hvað heitir skipverjinn sem bjargaði sér svo frækilega? Hvað hét skipið? Svör skal senda ritstjóra, Jóni Hjaltasyni, Byggðavegi 101B, 600 Akureyri, fyrir föstudaginn 4. júlí næstkomandi. Veitt verða þrenn bókaverðlaun. Berist fleiri ré­ttar úrlausnir en þrjár verða nöfn dregin úr hatti. Yfirdómarar Getraunarinnar eru hjónin Guðríður B. Jónsdóttir og Þórður Vilhjálmsson en þau semja jafnframt spurningarnar. Gangi ykkur vel. 60 - Sjóm­annablaðið Víkingur­ Guðríður B. Jónsdóttir og Þórður Vilhjálmsson Getraunin Lundinn, hefði hann mannamál á valdi sínu, gæti örugglega svarað einni spurningunni og lík- lega annarri til. Ljósmynd: Jón Hjaltason Ein aukaspurning, sem gefur ekki stig en rétt svar hefur jákvæð áhrif á dómarana? Hverrar tegundar eru fuglarnir á myndinni?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.