Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Qupperneq 51

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Qupperneq 51
Sjóm­annablaðið Víkingur­ - 51 Áhugamaðurinn – Júlíus Júlíusson Grillaðar bjórrækjur. Þegar rækjur bera á góma er það helst rækjusalat, fiskisúpa eða djúpsteiktar rækjur sem flestum koma í hug. Það sem mér finnst mest spennandi við nýveidda rækju er að handfjatla hana og bjóða í skelinni. Í köld salöt, hráa eða létt soðna. Þegar vinir koma saman og sest er niður við kertaljós með hvítvíns eða bjórglas í hönd, er róandi og gefur stundinni yfirvegaðan blæ að bjóða uppá grillaðar bjórrækjur með brauði og hnetusmjörs- sósu. Og auðvitað pilla gestirnir sjálfir á brauðið. Það að pilla á brauðið sitt gefur hugarró og nýja óútskýranlega orku meðan að hugleiðingar um lífið svífa yfir vötnum. Fiskur veldur sæluvímu – hann er löglegt fíkniefni. 1 kg nýveidd rækja í skelinni 1 ds 500 ml gylltur Viking bjór Sítrónuólífuolía Maldon salt 4 – 6 ciabatta eða spelti brauð 4 sítrónur Köld hnetusmjörssósa 2 msk hnetusmjör 2 msk majones 2 msk sýrður 18% rjómi Safi úr ½ sítrónu 1 msk hlynsíróp 1 tsk sætt sinnep Pipar Rækjurnar skolaðar í köldu vatni og sigt- aðar. Bjórnum hellt yfir rækjurnar og þær látnar liggja í leginum í 30 mínútur, sigtaðar og sítrónuólífuolíu dreypt yfir ásamt 1 tsk af Maldon salti. Rækjunum skipt í tvennt. Hvor hluti er grillaður við miðlungshita í grillgrind, rækjunum velt nokkrum sinnum en samt varlega. Grillið þar til að skelin fer að hvítna, 5 – 8 mín- útur ættu að duga. Skerið sítrónurnar í báta og berið fram með rækjunum. Allt hráefni sósunnar sett í matvinnsluvél, piprað eftir smekk. Brauðið skorið í litlar sneiðar og þær léttgrillaðar. Rækjurnar settar á fallegt fat eða í skál. Sítróna kreist yfir. Matargestir pilla rækjurnar. Sósu smurt á brauðið og fallegri rækjunni raðað á. Sítróna kreist yfir eftir smekk (og kröftum). Ískaldur gylltur Viking eða sætt hvítvín skemmir ekki stemmninguna. Gaman saman - grillaður skötuselur með lambslund Skötuselurinn er skemmti- legt hráefni sem býður upp á endalausa möguleika. Hann er af mörgum talinn ljótur fiskur – mér finnst hann fallegur! „Ekki er öll fegurð í andliti fólgin” segir gott máltæki sem mér finnst svo sannarlega eiga við um Skötuselinn. Það er með hann eins og annan fisk, að eldunar- tíminn skiptir öllu máli. Ég þurfti nokkrar tilraunir til að finna taktinn með eldunar- tímann, sem er mjög stuttur en þegar maður hefur komist uppá lag með hann opnast heimur fjölbreyttra möguleika sem hrein unun er að fylgja stjórnlaust eftir. Skemmtilegt er að bera þennan rétt fram á gólf- eða veggflís. Það er hægt að fara á útsölur og fá flísar á góðu verði, setjið sjálflímandi filtertappa undir. 800 gr skötuselur 8 lambslundir 2 laukar 20 steinlausar döðlur Graslaukur til skrauts Smjör Olía Kryddlögur 8 hvítlauksgeirar Rósmarin af einni stórri grein Salt eftir smekk Svartur pipar úr kvörn 3 dl ólífuolía Allt sett í matvinnsluvél Snyrtið skötuselinn og skerið í hæfilega bita, þó ekki lengri en lundirnar. Notið beittan hníf með mjóu blaði til að stinga í gegn og gera göng fyrir kjötið. Farið varlega í þessa aðgerð. Takið aðeins af kryddleginum og notið til penslunar í lok grillunnar. Leggið bitana í kryddlög- inn ásamt lambslundunum í 1 klst. í kæli og 1 klst. á eldhúsbekk. Takið hráefnið úr leginum og dragið lambslundirnar í gegnum skötuselsbitana. Grillið við ágætis hita þar til að fiskurinn er vel laus á grillinu eða þar til lambið er hálfsteikt (medium rare), takið af grilli og látið bíða í 4 – 8 mínútur áður en hann er skorinn. Saxið laukinn og döðlurnar smátt eða eftir smekk. Setjið olíu og smjör á pönnu, þá laukinn og síðan döðlurnar. Látið malla við vægan hita þar til lauk- urinn er orðinn mjúkur. Skerið bitana niður í hæfilegar sneiðar og leggið yfir döðlulaukinn á diskunum. Gott er að hafa með bakaða kartöflu og ferskt Lollo rosso salat.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.