Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Page 53

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Page 53
Við mágurinn lögðum af stað úr Reykjavík klukkan rúmlega tíu morg- uninn eftir. Við áttum að byrja að veiða klukkan þrjú en það er dágóður spölur austur að sjóbirtingsánni og ég vildi hafa nægan tíma til að fá mér að borða á Hvolsvelli, skoða veiðibókina þegar aust- ur kæmi og gera græjurnar klárar. Í ljós kom að mágurinn virtist þekkja ána betur en lófann á sér en raunar fór sú vitneskja fyrir lítið því næstu klukkustundirnar sást svo gott sem ekk- ert í lófann á honum fyrir bjórdósum og viskípelum. Hann opnaði fyrsta baukinn í Ártúnsbrekkunni og var kominn í það sterka í Kömbunum. – Djöfulsins vitleysingar eru þetta, muldraði hann og þurrkaði viskíbrákina af vörunum á sér með handarbakinu. – Hvað meinarðu? spurði ég og hafði augun á veginum. – Þessir vitleysingar sem fara alltaf aftur og aftur í þessa heimskulegu á. – Hvað meinarðu? endurtók ég annars hugar. – Hvað meina ég? Bara að þetta eru vitleysingar. Það er ekkert að hafa þarna og hefur aldrei verið. – Nú? Af hverju segirðu það? – Ég veiddi þarna áratugum saman með einhverjum bölvuðum vitleysingum sem aldrei fengu bein en vildu samt alltaf fara aftur og aftur. Þeir trúðu sama söngnum í bóndavitleysingnum sem sagði að sjóbirt- ingsvöðurnar væru til vandræða, það væri svo mikið af fiski að hann væri farinn að sullast yfir tún og engi. Ég hætti að fara og hef ekki farið í tíu eða tuttugu ár. Sá aldrei bein þarna! – En af hverju ertu þá að fara núna? – Greiðasemi við vitleysinginn hann Bjössa mág minn. Hann vildi ekki senda þig einan, sagði mágurinn, skrúfaði tappann á viskípelann og fékk sér fjórða bjórinn. – Er þér sama þótt ég reyki í bílnum? – Nei, helst ekki, svaraði ég og horfði á hann kveikja sér í sígarettu. – Andskotans vitleysingar allir saman, blés hann út úr sér með reyknum. – Já, þú segir það, muldraði ég til að segja eitthvað. Klukkan ellefu bað mágurinn mig að kveikja á fréttunum í útvarpinu. Hann hlustaði með andakt, annað slagið hnuss- aði í honum, inn á milli dæsti hann og að lokum teygði hann sig í takkann og slökkti á tækinu. – Þetta eru nú meiri vitleysingarnir. Eintómt píp frá A til Ö, allan fréttatímann út í gegn. Vitleysingar að tala við vitleys- inga um vitleysinga. Ég er alveg gáttaður á þessu liði. Mágurinn slokraði í sig rest- inni úr fyrsta viskípelanum og sagðist síðan vilja koma því að, en í algjörum trúnaði þó, að mágur hans, en besti vinur minn, hann Bjössi, væri mesti vitleysing- urinn af þeim öllum. Tótal asshól, eins og drafandi mágurinn orðaði það. – Ég held að það sé ekki til annar eins vitleysingur og hann Bjössi. Hann fer ár eftir ár í þennan drullupoll fyrir austan með einhverjum vitleysingum og trúir alltaf eins og nýju neti því sem bóndavit- leysingurinn segir. – Ég fer með honum að veiða – ertu þá að segja að ég sé vitleysingur? spurði ég og velti því andartak fyrir mér hvort ég ætti að sitja undir slíkum ávirðingum, sá fljótt að það yrði engu tauti við þennan mann komið og hafði mig því hægan. – Ef þú ert vitleysingur þá verðurðu bara að eiga það við sjálfan þig, sagði mágurinn, fékk sér aðra sígarettu og opn- aði enn einn bjórinn. Við brunuðum í gegnum Hellu og mág- urinn opnaði annan viskípela með þeim ummælum að í Rangánum veiddu engir nema vitleysingar, þetta væri skítaspræna með eldisfiski og klósettpappír. Þegar við nálguðumst Hvolsvöll sagðist hann þurfa út að míga. – Já, ég þarf hvort eð er að taka bensín. – Helvítis vitleysingarnir, búnir að breyta sjoppunni, tautaði mágurinn og steig völtum fótum út á planið fyrir utan bensínstöðina. – Andskotinn, það er búið að snúa öllu á hvolf hérna, slefaði hann út úr sér þegar hann settist aftur upp í bílinn á að giska hálftíma seinna, með kokteilsósuslettur á skyrtunni og blátt hamborgarabréf í öðru munnvikinu. Sjóm­annablaðið Víkingur­ - 53 Ragnar Hólm Ragnarsson Vitleysingarnir Ferðin sem aldrei var farin Á þessum stól hefði mágurinn sómt sér vel.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.