Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Side 66

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Side 66
66 - Sjóm­annablaðið Víkingur­ farnir að þrengja verulega að 50% allra skipa sem um hann fara. Það verður þó ekki frá Panamabúum tekið að þeir hafa afsannað rækilega allar hrakspár um að þeir myndu ekki valda verkefninu. Þvert á móti hefur þeim tekist að auka jafnt og þétt skipaumferð um skurðinn sem þeir fengu til umráða í árslok 1999. Lagt hefur verið út í viðamiklar umbætur á honum, hann breikkaður, dýpkaður á köflum til að draga úr straumi og beygjur teknar af. Jafnhliða hefur floti togbáta verið stækkaður, toglestir í landi efldar og bún- aður bættur í skipastigum. Og er þá ekki nærri allt talið. Því má bæta við að þetta hefur tekist án þess að tefla öryggi sjófarenda í voða. Síður en svo, segja yfirvöld, sem hreykja sér af afar lágri slysatíðni í skurðinum. Sem er heimsmet, ekkert annað, staðhæfa þau. En nú þarf stórátak, og það er þegar hafið. Panamaskurðurinn er að breikka og skipastigarnir munu í framtíðinni geta hleypt í gegnum sig nálega 370 metra löngum skipum sem rista allt að 15 metra en þá erum við að tala um gámaskip sem ber hvorki meira né minna en 12.000 gáma, 20 fet hvern (20 feta gámur er 6,1 metri). Og svo ég hætti mér lengra út á þenna hála ís þá ber Goðafoss 1.457 slíka gáma (er með öðrum orðum 1457 teus/ Twenty foot Equivalent Unit). Hinn 3. september á síðasta ári hófust Panambúar handa um þessar stórfelldu endurbætur á skurðinum. Svo ef ein- hver lesandi Víkings á leið þar um á næstunni þá væri gaman ef hann leyfði okkur að njóta ferðasögunnar. Laus­n á s­íðus­tu k­r­os­s­gátu

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.