Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 13
Sjómannablaðið Víkingur – 13
voru tveir kokkar. Á næturvaktinni sá
einhver af hásetunum um að hella uppá
og setja brauð og álegg á borðið. Hásetar
(fjórir til fimm), sem færastir voru í net-
um, kölluðust netamenn og fengu aðeins
hærra kaup; þeir voru klárir í netinu,
skáru úr, þannig að stæði á möskvum,
bættu, stykkjuðu, leisuðu, og þeir kunnu
vel að splæsa kaðla og víra (long splice),
splæsa augu á víra, grandara, vissu, hvað
var hvað í trollinu. Þetta var flókinn
hlutur, trollið; sagt var, að yfir 800 heiti
væru til í því?! Pokamaðurinn hnýtti
pokahnútinn og leysti. Var með sjóhatt,
lak svo mikið úr pokanum. Hann gekk
næstur bátsmanninum að virðingu um
borð! Mjög þótti niðurlægjandi, ef menn
fengu fráleyst, og pokinn kom upp tóm-
ur. Í þorskpoka voru 2–2,5 tonn, en
3–3,5 tonn í karfapoka. Í miklu fiskiríi á
karfa gátu þetta verið 14 hífingar, allt að
40 tonn í stærstu karfatrollunum.
Á fiskiríi skiptist vinnan á dekki
þannig hjá hásetunum, að unnið var á 6
tíma vöktum, og þess í milli var 6 tíma
hvíld, 6 plús 6 kerfið. Fyrir annarri vakt-
inni fór bátsmaður og hinni annar stýri-
maður (bátsmannsvaktin og stýrimanns-
vaktin). Þegar fiskað var í salt, var fisk-
urinn hausaður, slægður og flattur, og
eftir bað í pontinu fór hann í kassa á
lestarlúgunni, sem tók að mig minnir
hundrað kíló. Þegar kassinn var fullur,
sturtaði pontarinn úr honum niður í lest
og hnýtti hnút á trolltvinnaspotta, sem
hékk við kassann, og við þessum spotta
tók svo bræðslumaðurinn á hverjum
vaktaskiptum og hélt bókhald yfir, hve
mörg tonn fóru í lestina. Tveir saltarar
voru á hverri vakt. Á þeim hvíldi mikil
ábyrgð, einfaldlega að gengið væri þann-
ig frá aflanum, að hann skemmdist ekki
og allt væri unnið fyrir gíg. Samtals voru
þetta því 15 manns á dekki og í lest eða
30 alls á báðum vöktum. Þegar skip-
stjórnarmönnum (þremur), loftskeyta-
manni, vélstjórum (þremur), kyndur-
um (tveimur), kokkum (tveimur) og
bræðslumanni, samtals 12, er bætt við,
gerir þetta 42 í áhöfn á salti. Þegar veitt
var í ís, var fiskurinn einungis slægður
og vaskaður í pontinu. Þaðan fór hann
í lestina og var ísaður. Þetta útheimti
minni vinnu en á saltinu, hásetum var
því fækkað í 20.
Við veiðar hafði hver maður á dekki
sitt starf. Á spilinu voru tveir, á grindinni
var það kallað. Bátsmaðurinn ásamt
reyndum háseta mönnuðu spilið á báts-
mannsvaktinni og annar stýrimaður
ásamt háseta á stýrimannsvaktinni. Einn
var forhleramaður (1), og hann hafði
sinn aðstoðarmann (1). Einn var á aft-
urhleranum (1), og hann hafði aðstoðar-
mann (1). Þá var stóragilsmaður (1) og
litlagilsmaður (1), einn á forleisinum (1)
og einn á afturleisinum (1), og svo var
einn mikilvægasti maðurinn, poka-
maðurinn (1), sem leisti frá og batt
pokahnútinn og sá oftast einnig um að
taka í blökkina og slá úr henni, var úr-
sláttarmaður. Á dekki og í lest voru því
við veiðar á hverri vakt alls 11 eða 22
alls á báðum vöktum. Aðrir í áhöfninni
voru skipstjóri (1) og fyrsti stýrimaður
(1), sem stjórnuðu veiðunum, sinn á
hvorri vaktinni, en þeir gengu 12 tíma
vaktir við veiðar, 3 vélstjórar, 1 loft-
skeytamaður, 2 kyndarar, 2 kokkar, alls
10 og því 32 alls. Oft var ekki hægt að
fullmanna, þegar komið var fram á 7.
áratuginn, en varla var farið á ís með
færri en 28 í áhöfn.
Benedikt: Togararnir Hallveig Fróða-
dóttir, Jón Þorláksson, Þorkell máni og
Gylfi voru díseltogarar. Máninn og Gylfi
voru systurskip, og hins vegar voru Jón
Þorláksson og Hallveig Fróðadóttir syst-
urskip. Þarna voru menn í vél án
nokkurra heyrnarhlífa. Þýðir lítið að tala
við þá í dag. Þeir heyra ekkert. Bætur!
Bætur fyrir þá! — blessaður vertu, ekki
frekar en fyrir heyrnarlausa ömmu þína
... bætur þekktust ekki!
Júlli passaði prýðilega í brúar-
kassann á Gvendi Júní
Haukur: Guðmundur Júní frá Flateyri
hafði verið kolakyntur (gamli Júpíter).
Undir katli í togara voru þrjú eldhólf,
hvert með sinn spíss, sem úðaði olíunni
Litlafellið frá Sambandinu dælir olíu í bv. Ólaf Jóhannesson á Grænlandsmiðum.
– Ljósmynd: Benedikt Brynjólfsson.
Hvaleyrarbraut 27 · 220 Hafnarfjörður
Sími: 564 3338 · Fax: 554 4220
GSM: 896 4964 ·898 2773
Kt.: 621297-2529