Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 53

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 53
skipið nafnið Polfors og hafði lokið flutningasögu sinni en var komið með merkara verkefni. Skipið var af svokallaðri „coast- er“ gerð og hefur mælst 299 brúttórúmlestir þegar það var í flutningum. Johan upplýsti mig um að skipið hefði verið keypt, af skólayfirvöldum Stokkhólms, árið 1979 og því breytt í skóla- skip í kjölfarið. Þar skyldu menntaðir verðandi undirmenn og næstu árin fóru fram breytingar á skipinu þannig að það hentaði sem best fyrir þessa kennslu. Það var árið 1956 sem sjómannafræðsla til verðandi undir- manna kaupskipaflotans byrjaði og var námið þá aðeins sex mánuðir og fór kennslan fram í Polhemsskolan sem er fram- haldsskóli. Árið 1978 var náminu breytt í tveggja ára nám í framhaldsskóla og í kjölfarið var skipið keypt. 1994 var námið enn lengt og þá í þrjú ár eins og það er enn í dag. Johan Oster- gren ásamt tveimur félögum sínum stofnuðu árið 2000 Sjö- mansskolan sem er frískóli og keyptu þeir skipið ásamt því að fá húsnæði á Långholmen. Þegar um borð er komið má sjá að þótt um lítið skip sé að ræða hafa þó verið nokkuð margir klefar í skipinu frá upphafi þótt aðeins fimm manna áhöfn hafi verið á því þegar það var í siglingum. Búið var reyndar að fjölga kojum svo unnt var að taka heilan árgang um borð í einu. Það voru þó lestar skipsins sem búið var að breyta umtalsvert en í afturlestinni, uppi á millidekkinu, var kennslustofa sem gegndi einnig hlutverki borðsals og svefnaðstöðu fyrir 30 nemendur. Í framlestinni var aðstaða þar sem kennd var tóg og víravinna ásamt öðrum venjubundnum skipsstörfum kaupskipa s.s. málningarvinna og hverskonar viðhald á búnaði skips. Í botni afturlestarinnar, eða undir kennslustofunni, hefur verið útbúið vélaverkstæði þar sem hverskonar kennsla fyrir aðstoðarmenn í vél fer fram. Suðuvinna og upptektir á vélahlutum eru meðal þeirra verk- efna. Vélaupptektirnar snúa að miklu leyti að aðalvélarými skipsins og er ég þess fullviss að engin aðalvél í heiminum er eins oft tekin upp og þessi vél. Allir stimplar og slífar eru teknir upp á því sem næst hverju ári. Án þess að eyða mörgum orðum í að lýsa þessu frábæra starfi sem þarna er unnið þá segja myndirnar meira en mörg orð í þeim efnum. Þegar ég kvaddi Johan við landganginn eftir skoðunarferðina gerði ég mér grein fyrir hversu vel til þessa náms er vandað. Sem aftur skilar kaupskipaútgerðum mjög vel undirbún-um einstaklingum er kunna til margra verka um borð í skipum. Séð yfi r hluta framlestarinnar þar sem ýmis viðhaldskennsla fer fram. Sjómannablaðið Víkingur – 53 Opið mán - fös kl. 10-18 laugardaga kl. 10-16 sunnudaga til jóla kl. 12-16 Mörkinni 6 - Sími 588 5518 Úlpur – Kápur ULL • VATT • DÚNN Hanskar - Hattar - Húfur Gefðu elskunni gjöf sem hlýjar henni yst sem innst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.