Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 54

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 54
54 – Sjómannablaðið Víkingur Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu jóla- og nýáróskir Frosti ehf Melgötu 2 - 610 Grenivík Sími 463 3178 Enn eitt árið er að lokum komið og því ekki úr vegi að hefja undir- búning að næsta sumarfríi. Til að skoða hvað sé hægt að gera sér til skemmtun- ar þá kemur internetið að góðum not- um. Sumir leita sér að sólarströndum eða sumarhúsum og nýta þá gjarnan tímann er gefst frá sólböðum í versl- unum. Aðrir leggja leið sína á söfn og þar ætla ég að koma með fyrsta inn- leggið. Ef þið eigið leið um Hamborg þá er þar rétt fyrir utan gamalt skip sem hefur verið gert að safni og er því tilvalið að kíkja á heimasíðu þess áður en lagt er í langferð. Slóðin er www.landschaftsver- band-stade.de/greundiek1.html og þar er- um við leidd í sannleikann um skipið Greundiek sem smíðað var árið 1950. Þá er ekki úr vegi að skoða heimasíðu skips sem er til sýnis í Hamborg og heitir Cap San Diego á slóðinni www.capsandi- ego.de. Að vísu er síðan einungis á þýsku með ensku yfirliti en það kemur þó ekki mjög að sök þar sem myndir segja það sem upp á vantar. Það eru mörg ár síðan hin eiginlegu farþegaskip hurfu og við tóku skemmti- siglingar. Áætlunarsiglingar eru að vísu í dag í formi ferjusiglinga á stuttum leið- um en ekki eins og áður var þegar flug- véla naut ekki eða þá að það var ekki á allra færi að geta leyft sér þann munað. Á síðunni www.ssmaritime.com er að finna myndir af mörgum þessara gömlu farþegaskipa sem stunduðu áætlunar- siglingar á síðustu öld. En snúum okkur í aðra átt. Daglega verða skip fyrir ýmsum áföllum svo sem árekstrum, strandi, eldsvoðum eða sjó- ránum svo eitthvað sé nefnt. Um margt af þessu má fræðast á síðunni www.car- golaw.com/presentations_casualties.php, sannarlega mikil lesning og ótrúlega mikið sem er að gerast út um allan heim. Cargolaw síðan gefur þér möguleika á að gleyma stað og stund enda þar mikið áhugavert efni. Þeir sem lenda í sjávarháska eða hverju sem er þurfa oft aðstoðar við. Á síðunni Apostleship of the Sea sem má útleggja sem postula hafsins á slóðinni www.stellamaris.net er kaþólska kirkjan með aðstoð við sjómenn í erfiðleikum. Þar má finna margar frásagnir af erfið- leikum sjómanna og síðast en ekki síst frá skipstjórnarmönnum sem hafa verið fangelsaðir sökum óhappa sem þeir hafa lent í og verið meðhöndlaðir sem stór- glæpamenn. Það eru eflaust velflestir lesendur Vík- ingsins sem eru með síðuna www.marine- traffic.com í flipanum hjá sér til að geta fylgst með skipaumferð. Það eru reyndar fleiri aðilar sem halda úti álíka síðum og ætla ég að benda á síðuna www.shipping- explorer.net sem er mjög skemmtileg til að halda utan um ákveðin skip sem lesandinn er að fylgjast með s.s. gömlu skipin sem við sigldum á. Þar eru líka fréttir frá höfnum og upplýsingar um þær. Það er svo þegar margar síður eru skoðaðar að sjálfsagt verður manni á að fjalla oftar en einu sinni um sömu síðu- na án þess að geta þess sérstaklega. Það má þá skrifa á minnisleysi höfundar en að þessu sinni ætla ég þó að taka fyrir síðu sem áður hefur verið vísað á. Til- efnið er að meiri háttar breytingar hafa verið gerðar á síðunni sem allir sjómenn eiga að líta á með reglulegu millibili. Hér er ég að tala um heimasíðu Alþjóðasigl- ingamálastofnunarinnar IMO á slóðinni www.imo.org. Þar er gífurlegt magn af fræðsluefni fyrir sjómenn sem og upplýs- ingar um breytingar á kröfum og reglum. Ekki verður látið staðar numið að þessu sinni nema að hafa eina hernaðar- síðu með í pistilinum. Á slóðinni www. naval-history.net er áhugaverð síða um breska sjóherinn en fleiri þjóðir blandast þar inn. Virkilega áhugaverð síða sem tekur langan tíma að kynna sér. Við þurfum að hafa eina erlenda skipamynda síðu með og að þessu sinni hef ég valið að vísa á myndir teknar í Hollandi á slóðinni www.havenfoto.nl. Síðan er afskaplega vönduð og góðar ljósmyndir á henni. Vel þess virði að skoða hana. Lokasíðan að þessu sinni kemur að vestan. Er það Ljósmyndasafnið á Ísafirði sem er að finna á slóðinni myndasafn. isafjordur.is. Þar er ógrynni af skipa- myndum teknar á Pollinum og virkilega áhugaverðar myndir frá ísfirskum skip- um. Vona ég að þessar síður geti haldið þér uppteknum yfir jólahátíðina því eftir góða jólasteik er ekkert betra en að slappa af með Sjómannablaðið Víking í höndunum og síðan með því ferðast um netið. eftir Hilmar Snorrason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.