Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Síða 32
32 – Sjómannablaðið Víkingur
Sail Húsavík er samnorræn siglinga- og strandmenningar-
hátíð sem haldin verður líkt og nafnið gefur til kynna á
Húsavík næsta sumar. Þann 7. júlí munu þeir bátar sem koma
frá Skandinavíu safnast saman við Egersund í Noregi
og sigla saman til Íslands með viðkomu á Hjaltlandseyjum og
í Færeyjum þar sem fl eiri munu slást í hópinn. Laugardaginn
16. júlí sigla svo allir bátarnir saman inn í Húsavíkurhöfn í
fylgd íslensks fl ota, fl estir bátarnir eru seglskútur eða trébátar.
Í heila viku verður boðið upp á viðburði tengda siglingum og
strandmenningu þar sem þátttökulöndin miðla reynslu og
þekkingu ásamt því að efla tengslin sín á milli. Meðal þess sem
boðið verður upp á eru listasýningar, opnar vinnustofur, mál-
þing, ýmiskonar handverk, siglingar, námskeið, markaður,
leikist, tónlist og dans.
Verndari hátíðarinnar er hinn mikli siglinga- og leið-
angurskappi Arved Fuchs. Hann hefur stýrt mörgum fræknum
leiðöngrum bæði á sjó og landi en hann var fyrsti maðurinn í
heiminum til að ganga bæði á norður- og suðurpólinn á sama
árinu. Sjóafrek hans eru engu síðri og hefur hann unnið stór-
kostleg afrek bæði í norður- og suðurhöfum.
Nýlega var opnuð heimasíða hátíðarinnar www.sailhusavik.is
en þar má fylgjast með gangi mála fram að hátíðinni.
Víkingur hvetur alla þá sem vilja koma með bát á hátíðina,
eða hafa eitthvað fram að færa, til að hafa samband í gegnum
tölvupóstfangið info@sailhusavik.is
Teg: K 2.21
110 bör max
360 ltr/klst
Teg: K 5.700
140 bör max
460 ltr/klst
Teg: K 6.300
150 bör max
550 ltr/klst
Teg: K 3.500
120 bör max
460 ltr/klst
Háþrýstidælur
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
Teg: K 7.400
160 bör max
600 ltr/klst
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Ljósmynd: Vilborg Arna Gissurardóttir.
Sail
Húsavík
2011
www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Gönguferðir
Hjólaferðir
Hlaupaferðir
Rútuferðir
Ævintýraferðir
Sp
ör
e
hf
.