Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Side 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Side 42
Nú voru þeir orðnir tveir og það skipti miklu máli. Eftir að þeir félagar höfðu matast í loftskeytaklefanum, fóru þeir út á dekk, vind hafði lægt svo að hann jafnaðist á við golukaldann í Erma- sundinu tæpum hálfum mánuði fyrr. Carlsen sýndi Dancy hvernig auðveldast væri fyrir þá að ferðast um dekkið, hang- andi í öryggisvírunum, „eins og apar“. Þeir ákváðu að hvílast um nóttina í loft- skeytaklefanum, Carlsen svaf vel, enda vanur, Dancy lítið og illa. Laugardagurinn 5. janúar rann upp. Carlsen vakti Dancy næsta morgun með spurningunni „Má bjóða þér te?“ Dancy til furðu hitaði Carlsen vatn í könnu við loga frá kertunum, sem átt höfðu að skreyta jólahátíðina. Þeir borðuðu leif- arnar af kökunni, sem Carlsen hafði fundið nokkrum dögum fyrr. Þá fóru þeir um skipið til að leita að þurrum fötum. Carlsen opnaði fatageymslu með lykli, fann þar dálítið af fötum, afhenti Dancy og læsti aftur með lyklinum. Dancy spurði þá: „Ertu hræddur um innbrotsþjófa?“ Dæmigerður breskur húmor. Árla morguns, hélt tundurspillirinn Weeks til hafnar, en annar tundurspillir, Willard Keith, tók við. Tundurspillarnir voru á vettvangi að skipun bandarísku flotastjórnarinnar, þarna var bandarískt skip í hættu. Nú skyldi enn reyna. Með sameiginlegu átaki tókst þeim með miklum erfiðismunum að ná dráttar- tauginni um borð og og festa hana. Tvær lausar hendur gátu það, sem ein hafði ekki getað. Þeir veifuðu til Parkers og hann gaf skipunina „áfram“. Smám saman strekktist á dráttartauginni, Flying Enterprise hafði verið tekið í tog. Í togi Carlsen sendi Isbrandtsen skeyti: „Turmoil er kominn með okkur í tog. Carlsen“. Hann sendi einnig konu sinni og dætrum skeyti um að hann myndi hringja í þær um leið og færi gæfist og fékk einnig kveðju frá móður sinni í Danmörku, en hana höfðu blaðamenn þefað uppi. Parker, skipstjóra á Tormoil, var mikill vandi á höndum. Það reyndist ekki einfalt að draga Flying Enterprise með um 60° slagsíðu í vondum sjó og skipið þar að auki með sprungu mið- skips, sem gæti gliðnað ef illa væri að verki staðið og þá tæki skipið inn meiri sjó og þá væri sagan kannski öll. Hann hafði því dráttartaugina langa, um 2000 fet, helmingi lengri en vanalega og sigldi fyrir hálfu vélarafli. Tundurspillirinn sigldi eins og varðhundur með skip- unum og bægði allri óþarfa umferð frá, því eftir að veðrið var orðið skaplegra, flykktust fréttamenn á alls konar skipum á staðinn, Flying Enterprise var mesta fréttaefni heimspressunnar. Þannig leið helgin. Þeir félagar sinntu sínum verkum um borð, fylgdust með hallanum, voru í beinu sambandi við tundurspillinn og dráttarbátinn og reyndu að láta fara eins vel um sig og hægt var við þessar aðstæður. Mánudagskvöldið 7. janúar og á þriðjudagsmorguninn þann 8. bætti dálítið í vindinn, og Flying Enterprise tók á sig meiri sjó, þó ekki til vandræða, en veðurspáin var ekki hagstæð og á þriðjudagskvöld er skipin nálguðust Scilly eyjar, suðvestur af Cornwallskaga, hvessti verulega, Turmoil hægði ferðina. Skömmu eftir miðnætti miðvikudags- ins 9. janúar, vakti Turmoil þá félaga með háværu flauti. Dráttartógið hafði slitnað. Það var ákveðið að hafast ekkert að um nóttina. Samkvæmt útreikningum Carlsen voru þeir þá innan við 50 mílur frá landi. Skipherrann á Willard Keith sendi skeyti um versnandi veður, 7 vindstig og versnandi sjó, hallinn ykist og skipið tæki á sig meiri sjó en fyrr. Fyrsta verk þeirra félaga var að reyna að losa leifar dráttartaugar-innar af pollunum, sem var alls ekki auðvelt í vaxandi vindi og veltingi. Þeir notuðu járnsög til að saga vírlykkjuna, söguðu til skiptis, það var engan veginn auðvelt. Skyndilega reið sjór, lík-lega ein 40 fet á hæð, yfir fram- hluta skipins og hreif Carlsen með sér, en Dancy féll á dekkið. Carlsen fór út- byrðis, en honum skolaði að aftur og hann náði handfestu og komst með harðfylgi um borð. Þeir sáu, að frekari vinna við þessar aðstæður var vonlaus og snéru til síns heima í loftskeytaklefann. Síðdegis, en þá var skammt til myrkurs, var ákveðið að gera tilraun til koma dráttartógi úm borð, en núna í skutnum, sem stóð hærra, enda hafði Willard Keith tilkynnti um versnandi veðurspá, og því var ákveðið að bíða til næsta morguns með frekari tilraunir. Félagarnir bjuggust til næturhvíldar, kaldir, örþreyttir, bláir og marðir. Sjóirnir skullu á skipinu, það lækkaði æ meir í sjó. Flying Enterprise sekkur Fimmtudagsmorguninn 10. janúar til- kynnti Willard Keith, að ekkert hefði heyrst til þeirra félaga og veðurfræðingar hjá BBC sögðu, að enn hefði skollið á óveður, um 8-10 vindstig. Carlsen hafði ákveðið að láta ekkert í sér heyra fyrr en bjart væri orðið. Eftir samræður við skipstjórana á Willard Keith og Turmoil var ljóst, að frekari aðgerðir kæmu vart til greina, Flying Enterprisr hafði enn lækkað í sjó, svo mjög, að á „gólfi“ loftskeytaklefans var 10 cm. sjór og flóttaleið þaðan var að lokast. Að vísu lét Carlsen þess getið, að „stríðið vær ekki tapað enn“, en annað var að koma í ljós. Þeir strengdu tóg frá brúnni að lunningunni stjórnborðsmeg- in, eftir því ætluðu þeir að lesa sig er þeir yfirgæfu skipið, er yrði greinilega innan skamms. Um hádegið skýrði Willard Keith frá því, að björgunarþyrla væri að leggja af stað þeim til hjálpar. Um kl. tvö síðdegis skreið Dancy út með aðstoð björgunar- tógsins og tilkynnti Carlsen, að nú væri skipið alveg lagst á bakborðshliðina. Þá Fjölskyldan situr að snæðingi. Carlsen komst á forsíður allra stórblaðanna og í New York var keyrt með hann um götur og mannfjöldinn fagnaði honum eins og þjóðhöfðingja. 42 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.