Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Side 49
Sjómannablaðið Víkingur – 49
Ákærður
Samtök ástralskra útgerðarmanna hafa lýst undrun sinni á því að skip-
stjóri gámaskipsins Pacific Adventurer skuli vera ákærður fyrir meng-
un eftir að skip hans missti út 31 gám í aftakaveðri í marsmánuði
2009. Nokkrir gámanna sem fóru fyrir borð gerðu gat á eldsneytis-
tanka skipsins fyrir neðan sjólínu með þeim afleiðingum að 270 tonn
af olíu lak út. Rak olíuna á land í Queensland. Í júlí á þessu ári var
skipstjóranum stefnt fyrir dómstóla í Queensland en bent hefur verið á
að litlar líkur séu á því að hann fái réttláta meðferð fyrir dómstólum
þar sem fjölmiðlar hafa í raun dæmt hann í umfjöllun sinni. Benda
samtökin á að réttara hefði verið að heiðra skipstjórann fyrir að ná að
koma löskuðu skipi sínu til hafnar og bjarga áhöfninni.
Óánægðir
Breskir útgerðarmenn kaupskipa eru viti sínu fjær eftir að stjórnskip-
uð nefnd lagði til í skýrslu að sett yrðu lög er bönnuðu að greiða sjó-
mönnum laun í samræmi við þjóðerni þeirra. Höfundar skýrslunnar
halda því fram að ólíklegt sé að þessar breytingar hafi einhverjar
skammtíma afleiðingar í för með sér en óvissa væri um langtímaáhrifin
sem þeir treystu sér ekki til að spá um.
Bresku útgerðarsamtökin, UK Chamber of Shipping, hafa lýst því
yfir að hér sé um algjört skilningsleysi á skipaútgerð að ræða. Þetta
muni einungis leiða til þess að eigendur skipa verða tilneyddir til að
færa þau undir aðra fána.
NUMAST, samtök yfirmanna í Bretlandi og Hollandi, hafa lýst
áhyggjum sínum við stjórnvöld að hætta sé á stórflótta skipa undan
breska fánanum nái þetta fram að ganga. Hafa þeir bent á að fara ætti
sömu leið og Hollendingar þar sem rammasamningur er um laun sjó-
manna sem tilheyra Evrópusambandinu en að laun annarra sjómanna
séu í samræmi við alþjóðasamning ITF.
Ef farið verður að vilja skýrsluhöfunda er allt eins víst að Bretar
komist í sömu spor og við en þegar lög um íslenska alþjóðaskráningu
var unnin í þeirri viðleitni að fá kaupskip undir íslenskan þjóðfána á
ný hafnaði Alþýðusambandið að hægt yrði að greiða erlendum sjó-
mönnum önnur laun en þau íslensku væru. Þar með hurfu síðustu
vonir íslenskra kaupskipasjómanna um kaupskipaflota undir íslensk-
um fána. Þökk sé þeim sem ekki höfðu skilning á eðli kaupskipa-
rekstur þar sem landið er kaupskipalaust með öllu.
Fjölgun launatékka á Filippseyjum
Í nýjum staðtölum frá Filippseyjum kemur fram að laun sem lögð eru
inn í þarlenda banka vegna sjómanna sem starfa á skipum í Evrópu
nærri tvöfölduðust milli áranna 2008 og 2009. Veruleg aukning hefur
orðið á filippínskum sjómönnum á skipum innan Evrópuríkjanna en
Noregur trónir þar á toppnum með 25.000 sjómenn. Bretland er í öðru
sæti og síðan koma Hollendingar. Engin þjóð hefur þó fleiri filippínska
sjómenn í sinni þjónustu en Japanir en þar starfa um 40.000 Filipps-
eyingar. Á heimsvísu varð 23% fjölgun á sjómönnum af filippínsku
bergi brotnu. Ástæða þessarar aukningar má rekja til þess að laun
filippínskra sjómanna eru ekki há og svo eru þeir vel menntaðir
enskumælandi sjómenn.
Hjartastuðtæki
Margir íslenskir sjómenn hafa fengið um borð í skip sín hálfsjálfvirk
hjartastuðtæki. Hafa margir haft á orði að nauðsynlegt sé að skylda
þennan búnað um borð í öll skip. Þar er hægara sagt en gert þar sem
megin þorri allra íslenskra skipa falla undir annað hvort alþjóðleg
ákvæði eða evróputilskipanir sem ekki er hlaupið að að fá breytt.
Stéttarfélagið NUMAST hefur hafið baráttu fyrir því að fá hjartastuð-
tækin sem skyldubúnað um borð í öll kaupskip. Þeim barst heldur
betur stuðningur fyrir skömmu þegar franska kaupskipaútgerðin CMA
CGM, sem er þriðja stærsta gámaskipaútgerð heims, ákvað að búa öll
skip sín með Matek Marine Lifeforce hjartastuðtækjum. Vonandi meg-
um við því búast við að hjartastuðtækin verði brátt skyldubúnaður
allra skipa.
Smíðapantanabækurnar
Þann fyrsta september
s.l. voru alls 7.495
skip, samtals 474,7
milljón tonna, í pönt-
unarbókum skipa-
smíðastöðva um heim
allan. Það hafa ekki
verið svo fáir skipa-
smíðasamningar í
gangi síðan í desember
2007 þegar 7.388 skip
voru í pöntun. Aðeins 128 gámaskip eru í þessum pöntunarbókum
sem er aðeins 1,65 af þessum skipum.
Þjófnaður
Lögreglan í Englandi leitar nú þjófa sem gerðust heldur betur bíræfnir
þegar þeir stálu hálfri milljón dollara úr gámi sem var á leið til Fiji
eyja. Ránið komst reyndar ekki upp fyrr en gámurinn var kominn til
Suva Kings Wharf á Fiji eyjum en þá vantaði 50 þúsund nýja Fiji 20
dollara seðla í gáminn. Peningarnir höfðu verið sendir frá prentsmiðju
í Bretlandi og var Seðlabanki Fiji móttakandi þeirra. Talið er víst að
peningunum hafi verið stolið meðan hann var í flutningum og þá
hugsanlega um borð í skipinu sem tók gáminn yfir hafið.
Titanic staðreyndir
Ég held áfram með frásagnir af Titanic en brátt eru 100 ár frá því skip-
ið sökk. Æðsti yfirmaður Titanics sem komst lífs af var annar stýri-
maðurinn Charles Herbert Lightoller. Af skipstjórnarmönnunum átta
komust fjórir lífs af. Engum þeirra átti eftir að hlotnast sú tignarstaða
að verða skipstjóri á kaupskipi en Lightoller varð reyndar skipstjóri á
herskipum í seinni heimsstyrjöldinni.
Ástæða þess hversu margir fórust með skipinu má rekja til þess að
ekki var nægjanlegur fjöldi björgunarbáta á því. Skipið hafði 14 björg-
unarbáta sem hver um sig gat borið 65 manns. Þá voru til viðbótar
tveir björgunarbátar sem hvor um sig tók 40 manns. Að lokum hafði
skipið fjóra svokallaða Engelhardt samanfellda báta sem hver gat borið
47. Allt í allt var því pláss fyrir 1.178 manns í þessum bátum eða 216
fleiri en reglur kváðu á um á þeim tíma í Bretlandi. Um borð voru þó
3.547 manns. Á sama tíma var sú krafa gerð í Bretlandi að öll kaup-
skip, önnur en farþegaskip, þyrftu að vera með björgunarbúnað fyrir
alla um borð á hvorri hlið. Ef eftir því hefði verið farið hefði Titanic
orðið að vera með 92 björgunarbáta eða 46 á hvorri síðu. Þá hefði
skipið ekki haft næjanlegan stöðugleika til að bera allan þennan
búnað. Útgerð skipsins vissi þó að siglingayfirvöld í Bretlandi höfðu
verið að hugleiða auknar kröfur til fjölda björgunarbáta sem hefðu haft
áhrif á fjölda báta á Titanic. Þar af leiðandi hafði bátauglubúnaður
skipsins verið þannig hannaður að síðar meir yrði hægt að bæta við
allt að 44 til viðbótar.
Utan úr heimi
Skipstjórinn á Pacifi c Adventurer hefur verið ákærður fyrir mengun eftir að hafa
misst gáma fyrir borð. Ljósmynd: Peter Karberg/Shipspotting.
Skipasmíðar í heiminum eru í mikilli lægð sem stend-
ur. Ljósmynd: Javier Alonso Castro/Shipspotting.