Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Síða 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Síða 52
Fyrir nokkrum árum fékk ég símhringingu frá Svía sem sagðist staddur í Reykjavík og falaðist eftir að fá að skoða skólaskipið Sæbjörgu en hann væri á ferð með kennurum sín- um frá sjómannaskóla í Stokkhólmi. Eftir heimsókn hans og kennara bauð hann mér að koma í heimsókn í þeirra skóla en þeir væru einnig með skólaskip þótt það væri rekið með öðrum hætti en skólaskipið Sæbjörg. Sagðist ég skyldi líta við næst þegar ég ætti leið um höfuðborg Svíþjóðar. Það var þó ekki fyrr en snemma á þessu ári að ég átti þess kost að kíkja í heimsókn. Það var á föstudagsmorgni í lok marsmán- aðar sem ég stóð fyrir utan skólabyggingu Sjömansskolan Stockholm á Långholmen í Stokkhólmi. Ég hafði reynt að ná sambandi áður en ég hélt í heimsóknina en hafði ekki fengið nein svör fram að því að ég stóð fyrir utan hjá þeim í von og óvon að Johan Östergren væri á staðnum. Svo reyndist þó vera en eitthvað höfðu tölvuskeytin borist illa á milli okkar. Skólinn er reyndar staðsettur á tveimur stöðum, þ.e. í skólabyggingunni þangað sem ég var mættur og svo í skólaskipinu Polfors. Skoðunarferð um skólann var næsta skrefið og þar fræddist ég um þetta merka framtak í menntunar- málum væntanlegra sjómanna. Sjö- mansskolan Stockholm sér ekki um að mennta skipstjórnar- eða vélstjórnar- menn heldur er hans hlutverk að mennta undirmenn bæði í brú og vél. Nemendur skólans eru af báðum kynjum og stefna þeir á störf í sænska kaupskipaflotanum. Skólinn getur verið með allt að 180 nemendur en á þessu skólaári voru 140 nemendur sem skiptist í þrjú stig. Fyrsta árið læra nemendurnir um öryggismál en á öðru ári ákveða þeir hvert skuli stefna, vél eða brú. Á því ári fara nemend- urnir í siglingu á skólaskipinu Polfors vanalega til Kaupmannahafnar en einnig um sænska skerjagarðinn. Á þriðja og síðasta ári fara nemendurnir í þjálfunarskiprúm sem og að þeir læra um vinnurétt og vinnuvistfræði. Á öll- um stigunum eru einnig kjarnafög sem þau þurfa að taka. Verklega þjálfunin eða kennslan tekur samanlagt 16 vikur þar sem skólinn útvegar þeim skiprúm þar sem þau öðlast verkreynslu. Geta nemend- urnir ýmist verið í einu eða tveimur skiprúmum á þeim tíma, allt eftir því hvar skipin sigla. Það var mjög áhugavert að skoða skólahúsnæðið en fjöldi nemenda var í skólanum á þessum tíma. Mikil gleði ríkti og var auðséð að þarna var á ferðinni mun frekar vinasamfélag heldur en hefðbundinn skóli. Það má því segja að andinn hafi verið eins og um borð í skipi frekar en skóla. Það var ekki laust við að ég væri orðinn spenntur þegar Johan sagði að nú skyldi haldið um borð í skólaskipið. Hann gat þess þó að þar væri engin starfsemi einmit núna. Skipið var í göngufæri frá skólanum og þegar við náuðumst sá ég að þetta skip hafði ég áður augum litið. Það var upp úr 1970 að það sigldi inn í Reykjavíkurhöfn undir nafninu Mer- candan og þá í eigu dönsku útgerðarinnar Mercandia Rederi- ene. Sú útgerð var íslenskum kaupskipasjómönnum nokkuð kunn en bæði Eimskipafélagið og Skipadeild Sambandsins keyptu skip frá henni. Það fyrrnefnda þó mun fleiri. Nú bar Hilmar Snorrason Sjömansskolan Stockholm Skólaskipið Polfors við bryggju í Stokkhólmshöfn. Í skólahúsnæðinu á Långholmen eru 6 skólastofur ásamt mötuneyti fyrir nemendur. Séð frameftir skipinu. Gámarnir tveir á þilfarinu gegna hlutverki slökkvistöðvar ásamt tilheyrandi búnaði. 52 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.