Fréttablaðið - 25.08.2022, Side 11
Fram eftir síðustu öld stóðu verka-
lýðsfélög í baráttu um brauðið. Nú
snúast kjarasamningar um að skipta
þjóðarkökunni, eins og hagfræð-
ingar kalla það.
Rúmlega 60 prósent kökunnar
koma í hlut launafólks og tæp 40
prósent í hlut fjármagnseigenda.
Sneið launafólks er nú aftur nálægt
langtímameðaltali að stærð, eftir
að hafa minnkað verulega í kjölfar
krónuhrunsins.
Hlutverkið
Í vaxandi mæli hafa félög launa-
fólks og fyrirtækja sett fram kröfur
á ríkissjóð, ýmist um að stækka eða
minnka þá sneið, sem hann tekur
til sín frá launafólki og fjármagns-
eigendum.
Ríkisstjórnin lék aðalhlut-
verkið við lausn kjarasamninga á
almennum vinnumarkaði 2019.
Táknmynd þess blasti við þegar
hún kynnti niðurstöður þeirra í ráð-
herrabústaðnum.
Stærsta efni þeirra kjarasamninga
var mikil og almenn skattalækkun.
Allir voru ánægðir með hana. Hin
hliðin á þeirri ánægju kemur svo
fram í vaxandi óánægju með stöðu
Landspítalans. Ánægjan er aldrei
ókeypis hjá ríkissjóði.
Þetta leiðir hugann að hlutverki
ríkisstjórnar við gerð kjarasamn-
inga á almennum vinnumarkaði. Sú
spurning snertir um leið álitaefni
um lýðræði.
Helmingaskiptin
Síðustu kjarasamningar fóru gegn
því prinsippi Sjálfstæðisflokksins að
láta ábyrgðina hvíla á aðilum vinnu-
markaðarins. En prinsippsbrotið
þjónaði aftur á móti höfuðstefnu-
máli flokksins um lækkun skatta.
Nú er þessu öfugt farið. Megin-
kröfur verkalýðsfélaganna kalla á
aukin útgjöld ríkissjóðs. SA segir svo
að stilla eigi ríkisstjórninni upp við
vegg á endasprettinum. Þetta þjónar
vel höfuðstefnumáli VG um aukna
samneyslu.
Sjálfstæðisflokkurinn verður að
sætta sig við þetta leikskipulag aftur
af því að hans mál fengu framgang
síðast.
Brotalöm
Framsókn er eini flokkurinn í
stjórninni, sem talar fyrir því að
hún móti sjálfstæða efnahags- og
kjarastefnu. Það hefur komið fram
í tillögum hennar um aukna tekju-
öflun til að standa undir þátttöku
ríkissjóðs í baráttunni við verð-
bólguna.
Á þetta sjónarmið hefur ekki
verið hlustað. Jaðarflokkarnir hafa
ekki áhuga. Ástæðan er sennilega
sú að hvorki verkalýðsfélögin né SA
telja að það þjóni augnabliks hags-
munum sínum.
Aðdragandi kjarasamninga
endurspeglar nú í annað skipti að í
ríkisstjórnarsamstarfi jaðarflokk-
anna hefur ekki tekist að móta
sjálfstæða stefnu um efnahagsleg og
félagsleg markmið.
Það var ekki út í bláinn þegar
Seðlabankastjóri sagði að hags-
munaöflin stjórnuðu landinu, þó að
hann hafi þar farið út fyrir verksvið
sitt.
Þetta er helsta brotalömin í
stöðunni.
Millistétt án málsvara
Að frátöldum kröfum um aukin
Ánægjan aldrei ókeypis hjá ríkissjóði
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Netapótek Lyavers
lyaver.is
* Samkvæmt könnun Verðlagseftirlits ASÍ.
lyaver.is
Suðurlandsbraut 22
Kíktu í
Netapótekið
Kaupaukifylgir
Ef verslað er fyrir
meira en 8.000 kr.
Gildir til 15. sept.
• Lægsta meðalverðið á lausasölulyum
og öðrum vörum*
• Gott verð á lyfseðilsskyldum lyum
• Heimsending um land allt
ríkisútgjöld birtast þrjár myndir
varðandi endurnýjun kjarasamn-
inga:
Í fyrsta lagi: Forystufólk verka-
lýðsfélaga á almennum vinnumark-
aði talar bara um nauðsyn þess að
hækka laun þeirra allra tekjulægstu
hlutfallslega meira en sem nemur
vexti þjóðarkökunnar.
Í öðru lagi: Talsmenn SA verjast
því að launahækkanir stjórnenda
margra fyrirtækja, langt umfram
stækkun kökunnar, eigi að hafa for-
dæmisgildi.
Í þriðja lagi: Enginn talar fyrir
millistéttina á almennum vinnu-
markaði. Hún lýtur bara því lögmáli
að skipta ekki stærri köku en er til.
Það sem fer umfram er froða, sem
við köllum verðbólgu. Þó að hún
mæli launahækkun rýrir hún raun-
veruleg kjör.
Raunsæi BHM
Á síðustu mánuðum hefur for-
maður BHM einn rætt hispurslaust
um endurnýjun kjarasamninga á
grundvelli hagsmuna millistéttar-
innar.
Að vísu verður ekki sagt að hann
fari fram með lágstemmdar kröfur.
En röksemdirnar taka greinilega
mið af veruleikanum, sem glöggt
kemur fram í grein sem hann skrifar
í síðasta tölublað Vísbendingar.
Þar er dregið fram með skýrum
hætti að myndin af þjóðarkökunni
er ekki einföld. Sumar greinar
standa betur en aðrar og það eru
skekkjur í þjóðarbúskapnum, sem
þarf að leiðrétta.
Hann er ekki að fara fram á að
semja um efnahagsstefnuna, heldur
að ríkið hafi stefnu, sem mæti
grundvallarsjónarmiðum um „jafn-
rétti og jafnvægi.“
Málið er þetta: Ríkisstjórnin á
ekki að láta hagsmunasamtökin
ákveða stefnuna í efnahags- og
velferðarmálum eins og síðast. Hún
á að hafa sjálfstæða stefnu. Á þeim
grunni eiga aðrir að semja. Og hún
þarf að vera tilbúin að semja við
eigin starfsmenn, ekki síðar en eldri
samningar renna út.
Í hvorugt stefnir eins og sakir
standa. n
FIMMTUDAGUR 25. ágúst 2022 Skoðun 11FRÉTTABLAÐIÐ