Fréttablaðið - 25.08.2022, Page 18
Stjörnulitirnir í
haust og vetur
verða svo sannarlega
ekkert í átt við navy
bláan og drapplitaðan.
Nú þegar sumarið er að
klárast og haustið tekur við,
þá er vanalegt fyrir flesta að
skipta út fataskápnum fyrir
hlýrri flíkur í dekkri tónum.
jme@frettabladid.is
Haustið og veturinn á komandi
mánuðum verða þó töluvert lit-
ríkari en undanfarin ár, ef marka
má tískuvitringana og spádóms-
gáfu þeirra. Vissulega má finna
hefðbundnari litatóna inn á milli
en stjörnulitirnir í haust og vetur
verða svo sannarlega ekkert í átt
við navy bláan og drapplitaðan.
Á tískupöllunum í vor og sumar
mátti sjá bjartsýni fatahönnuða
beinlínis leka af flaksandi litríkum
haust- og vetrarflíkunum. Pantone
tók í vor saman helstu stjörnulit-
ina sem verða áberandi á komandi
mánuðum og má finna nær allan
regnbogann í upptalningunni,
allt frá dimmrauðum og björtum
appelsínugulum, til rafmagnaðra
blárra tóna og smaragðsgrænna og
enn lengra til skærbleikra tóna.
Framlengjum sumarið
Það er því kannski óþarfi að koma
öllum sumarflíkunum fyrir í
geymslu strax, heldur má endi-
lega nýta litríka sumardressið
út haustið og vel fram á vetur.
Ermastutta kjóla er til dæmis
hægt að para með rúllukraga-
bolum og þykkum sokkabuxum
og ermastuttar skyrtur má nota
undir hlýjar peysur með vaffháls-
máli. n
Regnbogalitað haust
Fendi sýnir hér mikla litagleði fyrir haust og vetur 2022-2023 á sýningarpall-
inum í París fyrr í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Viktor & Rolf var með nokkrar litaútgáfur af þessari geggjuðu dragt í París í
sumar. Þessi fjólublái tónn mun verða heitur í haust.
Vetements var einnig með puttann
á púlsinum í sumar fyrir haust- og
vetrartískuna.
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
TRAUST Í 80 ÁR
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
LAXDAL ER
Í LEIÐINNI
Fylgdu
okkur á
Facebook Skoðið
laxdal.is
Nýtt frá gerry weber
4 kynningarblað A L LT 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR