Fréttablaðið - 25.08.2022, Side 28

Fréttablaðið - 25.08.2022, Side 28
Húðin skin clinic leggur áherslu á náttúrulegt útlit og að viðhalda heilbrigðri og fallegri húð. Auk fjölda húðmeðferða er boðið upp á einstaklingsmiðaða ráðgjöf við val á meðferð. Á stofunni starfa eingöngu hjúkrunar- fræðingar og læknar. Ýmislegt hefur áhrif á heilbrigði húðarinnar. Með hækkandi aldri missir hún smám saman styrk og teygjanleika en ýmsir umhverfis- þættir og venjur hraða þessu ferli. „Útfjólubláir geislar sólarinnar og ljósabekkja hraða þessu ferli og eru ábyrgir fyrir allt að 80% af öldrun húðar. Þeir skemma erfðaefni fruma og takmarka getu húðarinnar til að endurnýja sig. Reykingar valda því einnig að húðin eldist hraðar og takmarka súrefnisflutning til hennar,“ segir Lára Sigurðardóttir, læknir og annar eigandi Húðin skin clinic. „Síðan getur öldrun húðarinnar minnkað þykkt ysta lags og magn bandvefsfruma sem framleiða kollagen. Svefnskortur hefur sömuleiðis áhrif en hann hefur verið tengdur öldrunareinkennum húðar, eins og fínum línum, litabreytingum í húð og minni teygjanleika. Því fyrr sem maður byrjar að hugsa vel um húðina þeim mun betur eldist hún,“ upp- lýsir Lára. Góð meðferð fyrir fallegri húð Lára segir enn fremur að lang- flestar meðferðir hjá Húðinni skin clinic miðist við að gera húðina heilbrigðari, unglegri og fallegri. „Við erum ekki í því að breyta fólki heldur leggjum við áherslu á nátt- úrulegt útlit þannig að viðskipta- vinir séu ánægðir og þakklátir. Allir geta fundið meðferð við sitt hæfi og við ráðleggjum viðskipta- vinum við val á meðferðum,“ segir hún. „Langflestir sjá mikinn mun, oft strax eftir fyrstu meðferð en árangur er að sjálfsögðu ávallt ein- staklingsbundinn,“ segir hún. „Ýmsar meðferðir hjálpa við að byggja upp húðina. Þær með- ferðir sem hafa reynst árangurs- ríkastar til að styrkja húðina og gera hana unglegri eru laserlyfting og dermapen (microneedling) sem bæði styrkja og auka teygjan- leika með því að auka elastín og kollagen í húðinni,“ útskýrir Lára og bætir við: „Laserlyfting er kölluð and- litslyfting án skurðaðgerðar þar sem laserinn örvar uppbyggingu húðarinnar með því markmiði að gera hana þéttari, sléttari, heil- brigðari og unglegri.“ Fylliefni gefa frísklegra útlit „Notkun á hýalúrónsýrufylliefnitil að draga úr djúpum andlitslínum er vinsæl meðferð. Fylliefnið, sem er gert úr náttúrulegu rakaefni húðarinnar, er sett rétt undir húð sem dregur úr skuggaspili og gefur frísklegra útlit. Varir minnka oft með aldrinum og einnig er hægt að nota fylliefnið til að gera þær hold- meiri. Eftir meðferð með fylliefnum er ekki óalgengt að heyra hrós eins og hve úthvíldur maður er og líti vel út. Vinsælustu svæðin sem eru meðhöndluð eru línur frá nefi að munnvikum, munnvikin sjálf og varir,“ segir Sigríður Arna Sigurðar- dóttir, hjúkrunarfræðingur og hinn eigandi Húðarinnar skin clinic. „Margir kjósa að fara í húðslípun en sú meðferð frískar upp húðina, hreinsar og gefur ljóma. Húðslípun hentar fólki á öllum aldri. Einnig bjóðum við upp á ávaxtasýrumeð- ferðir sem hafa reynst fólki afar gagnlegar þegar húðvandamál gera vart við sig. Þær vinna á lita- breytingum, draga úr fíngerðum línum, jafna húðlit og auka ljóma. Vinsælar ávaxtasýrur eru til vægari frá Jan Marini og sterkari frá Perfect Derma. Einnig er PRX ávaxtasýrumeðferð sem við köllum stjörnumeðferð, þar sem hún gefur húðinni fallega áferð og ljóma en eykur einnig kollagen og elastín svo húðin verður þéttari og línur minnka.“ Sigríður segir að Cindarella sé einnig vinsæl meðferð. Um er að ræða inrautt ljós sem þéttir húðina og gefur henni ljóma. Cindarella gefur strax árangur og er því vinsæl fyrir ýmis tilefni, til dæmis brúð- kaup eða stórafmæli. Aðrar með- ferðir sem við bjóðum eru til dæmis háreyðingar, og þar sem háræðaslit í andliti og fótleggjum er fjarlægt auk þess að vinna á rósroða,“ segir hún. Matur sem gefur betri húð Húðin endurnýjar sig á um 28 dögum. Hún þarf næringarefni til að endurnýja sig og því er gott að borða mikið af ávöxtum, græn- meti og hnetum til að tryggja nægt C-, E-, A-vítamín, beta-karótín og selen. „Omega3-fitusýrur eru mikil- vægar fyrir húðina til að gefa henni raka og teygjanleika. Matur sem inniheldur ríkulega af Omega3- fitusýrum er feitur fiskur (lax, sardínur), valhnetur og svo er hægt að taka þær inn sem fæðubótarefni en mér hefur þótt kaldpressuð fiskiolía þolast best og hún bætir við sinki sem er einnig mikilvægt í uppbyggingu húðar. Fæða sem inniheldur sink er til dæmis kjöt, ostar, egg, skelfiskur og heilkorn,“ segir Lára. Dæmi um mat sem inniheldur góð næringarefni: n Aminósýrur: kjúklingur, fiskur, lambakjöt og egg. n C-vítamín: ávextir eins og appelsínur, sítrónur, greip og kíví. n E-vítamín: avókadó, möndlur og haframjöl. n A-vítamín og beta-karótín: gul- rætur, sætar kartöflur, grænkál, lifur og lýsi. n Selenium: Brasilíuhnetur, fiskur, kjöt og egg n Sink: kjöt, ostar, egg, skelfiskur og heilkorn. n Omega3-fitusýrur: lax, tún- fiskur, sardínur. Gagnlegar húðvörur Lára og Sigríður benda á að húðin tapi fitukirtlum með aldrinum og verði þurrari og því mikilvægt að nota góð rakakrem. „Vönduð krem með næringarefnum eru gagnleg og rannsóknir sýna að inntaka kollagens getur hjálpað við að auka og byggja upp kollagen í húðina. Forvarnir eins og að hugsa vel um sig og nota sólarvörn í styrk- leika 30 eða hærra (gegn bæði UVA og UVB) eru alltaf árangurs- ríkastar. Retonol sem er A- vítamín dregur úr öldrun húðar að því er rannsóknir sýna. Ávaxtasýrur í húðvörum fjarlægja dauðar húð- frumur og gefa húðinni ljóma. Einnig geta ávaxtasýrur hjálpað til við að draga úr bólum og fíla- penslum. Serum með C-vítamíni er vinsæl vara sem vinnur á móti öldrun með andoxunaráhrifum. Á stofunni seljum við vandaðar húðlæknavörur frá Jan Marini og gefum viðskiptavinum okkar góð ráð,“ segja þær. Heilbrigð húð bætir útlit og vellíðan Lára Sigurðardóttir læknir og Sigríður Arna Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur eiga Húðina skin clinic. Fylliefni geta gert kraftaverk, jafnt til að minnka þreytu- legar línur í andliti og til að fá þrýstnari varir. xÓtrúlegur munur eftir að háræðaslit hefur verið fjar- lægt. MYNDIR/AÐSENDAR Margar mismunandi meðferðir eru í boði hjá Húðinni. Boðið er upp á ráðgjöf. Það er mikill munur á fólki sem hefur farið í laserlyftingu. Hér má sjá fyrir og eftir. Húðin skin clinic er með laserlyft- ingu. Hér sést fyrir og eftir. Pantið tíma í ráðgjöf Ef þig langar að fríska upp á útlitið en ert ekki viss hvar þú átt að byrja þá er alltaf hægt að panta tíma í ráðgjöf hjá okkur. Markmið okkar er að fólk fari ánægt frá okkur. Við bjóðum upp á persónulega ráðgjöf sem gengur upp í fyrstu meðferð. Við tökum vel á móti þér. n Á heimasíðu Húðarinnar, hudin.is er að finna ítarlegar upplýsingar um allar meðferðir. Við erum á Facebook og Instagram. Húðin skin clinic er í Hátúni 6b og síminn er 519-3223. 20% afsláttur af laserlyftingu og Perfect derma ávaxtasýrum í ágúst. 10 kynningarblað 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGURHÚÐVÖRUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.