Fréttablaðið - 25.08.2022, Side 38

Fréttablaðið - 25.08.2022, Side 38
Okkur var sagt að við myndum ekkert finna því Bandaríkjaher hefði hreinsað svæðið svo vel. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Ólöf Birna Björnsdóttir Hávallagötu 32, Reykjavík, lést sunnudaginn 14. ágúst sl. Útförin fer fram frá Neskirkju í dag kl. 15.00. Jón Ólafsson Valgerður Jónsdóttir Sigþrúður Jónsdóttir Sverrir Hákonarson Ólafur Helgi Jónsson Estelle Toutain barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur pabbi, bróðir, afi og langafi, Þórarinn Óskarsson kerfisfræðingur, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut miðvikudaginn 17. ágúst. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 30. ágúst kl. 13. Loftur Gíslason Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir Berglind Gísladóttir Steen Johansson Ragna Fanney Óskarsdóttir Snjólaug Soffía Óskarsdóttir Guðjón Óskarsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, pabba, tengdapabba, afa og langafa, Karls Höfðdals Magnússonar sjómanns, Sigtúni 11, Patreksfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Heil brigðisstofnun Vestfjarða Patreksfirði fyrir góða umönnun og hlýju í hans garð. Björg Bjarnadóttir Sigríður Valdís Karlsdóttir Páll Hauksson Ásgeir Andri Karlsson Hrefna Sigurðardóttir Ólafía Kristín Karlsdóttir Rögnvaldur Bjarnason Jónas Dalberg Karlsson Ásrún Kristjánsdóttir Bjarnfríður Elín Karlsdóttir Örn Eiríksson Sóley Guðjóna Karlsdóttir Þorsteinn Björnsson afabörn og langafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, stjúpmóðir, amma og langamma, Sigríður Stephensen Pálsdóttir fv. bankastarfsmaður, lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítala Fossvogi mánudaginn 18. júlí. Jarðsungið verður frá Áskirkju fimmtudaginn 1. september kl. 13. Páll Ægir Pétursson Kristín Pétursdóttir Helgi Þór Jónasson Hannes Sigurður Pétursson Helena Ragnhildur Káradóttir Pétur Valgarð Pétursson Friðborg Jónsdóttir Guðbergur Pétursson Hjördís Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. John George Kassos lét lífið í flug- slysi á Melgerðismelum á þessum degi árið 1942. Margt er enn á huldu um slysið sem hefur heillað söguáhugamenn á svæðinu. arnartomas@frettabladid.is Í dag eru liðin áttatíu ár frá flugslysi John George Kassos í Eyjafirði. Kassos var bandarískur flugmaður sem dvaldist á Melgerðismelum sumarið 1942 og fórst með P-39 orrustuvél ameríska f lug- hersins á Melunum þann 25. ágúst 1942. Enskt heiti f lugvallarins hefur síðan þá verið Kassos Field. Í gegnum árin hefur margt verið óljóst í kringum flugslysið þar sem erfitt var að afla heimilda og ljósmyndir voru ekki til. Brynjar Karl Óttarsson, kennari og söguáhugamaður, hefur nú tekið sig til og kafað dýpra til að svipta hulunni af þessum dularfulla atburði. „Ég er sjálfur fæddur og uppalinn í þessari sveit, þótt það sé þó nokkrum kílómetrum frá Melgerðismelum þar sem þetta gerðist,“ segir Brynjar. „For- eldrar mínir eru báðir fæddir og upp- aldir í nágrenni við Melgerðismela svo ræturnar mínar liggja á þessum slóðum. Ég var mikið þarna í sveit sem strákur og á margt skyldfólk þarna.“ Brynjar tilheyrir Varðveislumönnum minjanna, hópi áhugafólks um sögu- minjar og útivist, sem hefur rannsakað dvöl setuliðsins í Eyjafirði á stríðs- árunum. „Við vorum við rannsóknir við Mel- gerðismela í fyrrasumar þegar ég ákvað að mig langaði að kynna mér þetta flug- slys betur,“ segir hann. „Sem unglingur hafði ég heyrt um slysið en bjó í raun- inni aðeins yfir yfirborðsþekkingu um málið.“ Ummerki slyssins Í kjölfarið ákvað Brynjar að leita sér upp- lýsinga um hvar vélin skall nákvæmlega niður. „Þá kom í ljós að það er rosalega lítið til um slysið á vefnum. Það kom líka í ljós að afskaplega fáir á þessum slóðum þekktu þessa sögu, sem bendir til að það sé farið að fenna svolítið yfir,“ útskýrir hann. „Þessir örfáu sem eitthvað töldu sig þekkja sögðu okkur að við myndum ekkert finna.“ Það var svo fyrir tilviljun að hópurinn rambaði á slysstaðinn þar sem fannst eitt og annað. „Okkur var sagt að við myndum ekkert finna því Bandaríkjaher hefði hreinsað svæðið svo vel,“ segir Brynjar. „Við fundum þó til dæmis heil skotfæri úr vopnabúri vélarinnar sem og per- sónulega muni Kassos.“ Áttræðisafmælið breyttist í Íslandsför Til þess að fá dýpri skilning á málinu hafði Brynjar einnig samband við fjöl- skyldu Kassos í Bandaríkjunum, sem reyndist mjög samvinnuþýð. Flugslysið á Melgerðismelum „Bróðurdóttir Kassos, Laura, er að verða áttræð en er í fullu fjöri og býr í Arkansas sem er heimaríki John. G Kassos. Hún er nú orðin svo áhugasöm um þetta allt saman að hún hefur dælt í mig upplýsingum, myndum og annað og ég segi henni frá niðurstöðum okkar rannsókna.“ Upphaflega stóð til að Laura myndi fagna áttræðisafmæli sínu í Yellow- stone-þjóðgarðinum, en nú hafa áætlan- ir breyst og mun fjölskyldan heimsækja Ísland til að heimsækja Melgerðismela í byrjun október. Nánari upplýsingar um John G. Kassos og slysið má finna í hlaðvarps- þættinum Leyndardómar Hlíðarfjalls – Kassos, sem Brynjar stýrir og eru aðgengilegir á grenndargral.is n 1895 Hið skagfirska kvenfélag er stofnað sem starfar síðar sem Kvenfélag Sauðárkróks. 1958 Bandaríski leikstjórinn og framleiðandinn Tim Burton fæðist. 1970 Stífla er sprengd í Miðkvísl í Laxá í Suður-Þingeyjar- sýslu í mótmælaskyni við stækkun Laxárvirkjunar. 1976 Jacques Chirac segir af sér embætti forsætisráð- herra Frakklands. 1985 6.500 konur taka þátt þegar kvennahlaupið Tjejmilen er haldið í annað sinn í Stokkhólmi. 1991 Hvíta-Rússland lýsir yfir sjálf- stæði frá Sovétríkjunum. 2001 Hákon krónprins Noregs kvænist Mette-MaritTjessem Høiby í Oslóardómkirkju. Merkisatburðir Varðveislu- menn minjanna við störf á Mel- gerðismelum. MYNDIR/AÐSENDAR John George Kassos. 50 cal. skot úr P-39 Airacobra orrustu- vélinni. TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.