Fréttablaðið - 25.08.2022, Page 45
þannig að Beast gaf þeim félögum
kærkomið tækifæri, enda margt sem
tengir þá.
„Við erum á svipuðum aldri.
Hann er aðeins yngri en ég og við
eigum báðir börn með fleiri en einni
konu. Hann er búinn að lifa lífinu,
skilurðu?“ Báðir eru þeir vitaskuld
leikarar og Elba hefur áhuga á að
leikstýra auk þess sem hann langar
til þess að opna kvikmyndaver í
Sierra Leone þaðan sem hann er
ættaður og horfir til þess sem Balt-
asar hefur verið að gera hér heima
sem fyrirmynd. „Honum finnst það
mjög spennandi og það eru bara
margir svona fletir.“
Baltasar ítrekar það sem hann
hefur áður sagt, um að fyrir honum
sé Elba einn fárra leikara „sem er
með allan pakkann. Hann er jafn
mikil stjarna og hann er frábær
leikari.
Sannur gæðingur
Hann hefur rosalega vigt og ofboðs-
lega persónutöfra. Unga fólkinu
finnst hann geggjaður og strákar
og stelpur eru alveg jafn skotin í
honum og það er merkilegt að mér
finnst fólk hérna meira spennt fyrir
honum heldur en til dæmis Denzel
Washington sem er stærra nafn,“
segir Balti, sem eins og frægt varð
hélt í tauminn á Washington við
gerð 2 Guns.
„Við höfum talað um að vinna
meira saman og hann hefur komið
með ýmsar hugmyndir sem ég vil
ekki fara nánar út í núna. Það eru
ýmsir möguleikar og hann er í raun
til í hvað sem er. Síðan er þetta alltaf
spurning um tíma, hvað hentar og
rétta hlutverkið. Við erum að skoða
það og það hefði ekki getað farið
betur á milli okkar. Við erum bara
vinir í dag.“
Þegar ég tók viðtal við þig 2012
sagðir þú mér að það hefði verið
svolítið eins og að vera með villtan
hest þegar þú leikstýrðir Denzel
Washington og það þýddi ekkert að
rykkja í tauminn. Var þetta eitthvað
svipað með Idris Elba?
„Hann er gæðingur hann Idris og
með allan gang. Það er bara þann-
ig. Hann er auðvitað kvikmynda-
stjarna og allt það en mjög geðugur
að vinna með og mjög gefandi.
Þannig að þetta var mjög ólíkt sam-
band.
Sækir ekki í stjörnurnar
Ég hef aldrei leitað eftir vinskap
kvikmyndstjarna þótt það hafi
gerst. Við Mark Wahlberg urðum
félagar og við Idris núna,“ segir Balti
og nefnir einnig danska leikarann
Nikolaj Coster-Waldau. „Þetta er
meira bara eitthvað sem kemur
ef það er, en ég er ekki eitthvað
spenntur fyrir að hanga með kvik-
myndastjörnum. Það er svo mikið
vesen á þeim alltaf.
Ég vil bara fara heim og fara á
hestbak þegar ég er búinn að vinna.
Mér finnst geggjað að vinna með
þeim og stundum eru einhver
tengsl eins langt og það nær. Við
erum ekkert að fara í Vesturbæjar-
laugina saman, skilurðu. En þarna
er strengur til að halda áfram með.“
Engir Smugutúrar
Baltasar segist aðspurður vera
afskaplega ánægður með þá stöðu
sem hann hefur komið sér í og hann
hafi gaman af því að geta farið í stór
verkefni í Hollywood, en sú taug er
römm sem bindur hann við Ísland,
sem er og hefur verið hans heimili
og varnarþing í hinum stóra heimi
kvikmyndanna.
„Ég sæki laun sem eru eitthvað
sem maður fær ekki hérna og er
búinn að byggja upp kvikmynda-
ver, hvort sem mönnum líkar það
betur eða verr. Ég hefði ekkert gert
það án þess að hafa farið þá leið sem
ég gerði og ég er mjög stoltur af því.
Ég er of boðslega stoltur af því að
hafa gert þetta og nú eru að hrúgast
inn verkefni og stúdíóið fer að verða
sjálfbært.
En auðvitað er þetta búin að vera
mikil vinna og langir túrar, fyrir
Ég hef aldrei leitað eftir
vinskap kvikmynd-
stjarna þótt það hafi
gerst. Við Mark Wahl-
berg urðum félagar og
við Idris núna.
Idris Elba og
Baltasar eru
orðnir góðir
vinir eftir langa
dvöl í Afríku og
leikstjórinn lýsir
leikaranum sem
gæðingi. Hann
sé einn af fáum
sem sé allur
pakkinn; frábær
leikari og kvik-
myndastjarna.
MYNDIR/AÐSENDAR
Idris Elba er, eins og honum er tamt, í toppformi undir stjórn Balta.
Baltasar gerir
klárt fyrir næstu
árás ljónsins
sem hann tók
þátt í að skapa
og gerir per-
sónum Beast
margar skrá-
veifurnar.
utan það að ég er að framleiða hérna
heima líka. En ég get nú ekki kallað
það að fá að vera í Afríku í sex mán-
uði neinn Smugutúr.
Kærastan mín var með mér allan
tímann sem var frábært, þann-
ig að þetta eru rosaleg forréttindi
líka. Mig langar ekki að vera hluti
af þessu Hollywood lífi. Ég sækist
ekki eftir því og langar ekki að eiga
hús þarna,“ segir Balti sannfærandi.
Dýr Snerting
„Ég er búinn að gera mér frábæra
aðstöðu á Íslandi sem mér líður vel
í. En mér finnst geggjað að geta farið
og gert myndir sem fara út um allan
heim og komið með ágóðann af því
heim og gert eitthvað hérna sem
byggir bransann upp.
Ég sé þetta sem heild og núna er
ég að fara að gera Snertingu, sem
verður sennilega dýrasta mynd sem
hefur verið gerð hérna,“ segir Balti
um næsta verkefni, mynd byggða á
skáldsögunni Snertingu eftir Ólaf
Jóhann Ólafsson.
„Það er ekki út af því að ég hef svo
gaman af því að eyða peningum. Í
fyrsta lagi vinnur náttúrlega enginn
frítt fyrir mig. Það eru engir greiðar
eftir. Það er bara þannig,“ segir Balti
og hlær.
„Svo er hitt að ég er að taka þetta
upp á Englandi, Japan og á Íslandi.
Þetta er stór mynd,“ heldur hann
áfram og bætir við að hann efist
um að þetta væri gerlegt ef hann
ætti ekki þennan feril sinn að baki
með öllum þeim samböndum sem
störf hans síðustu áratugi hafi aflað
honum.
Tár á Everest
„Þegar ég var í grunnbúðum Everest
fékk ég tár í augun og hugsaði : Vá!
Djöfulsins lukkunnar pamfíll að
lífið hefur fært mér þetta. Að fá að
fara með flottustu þyrlu í Nepal upp
á Everest og vinna hérna.
Og að vera í Afríku í störukeppni
við fíl í frumskóginum. Þetta er ekk-
ert sjálfgefið og ég er fullur þakklæt-
is. Þetta eru náttúrlega forréttindi
en ég er alveg búinn að vinna fyrir
þessu. Og ég er auðmjúkur gagnvart
þessu og mér finnst þetta geðveikt.
Þannig að þú ert sáttur við lífið og
tilveruna?
„Alveg rosalega. Sérstaklega
núna. Það eru skin og skúrir eins og
hjá öllum og erfiður tími að baki. En
núna, já. Þá er ég bara mjög sáttur
og hlakka svolítið til. Hlakka til svo
margs sem mig langar að gera.
Í raun og veru er aðalatriðið bara
að ná tökum á sjálfum sér og þá eru
bara spennandi tímar fram undan.
Hvernig sem það verður,“ segir Balti
sem horfir á lífið í skeiðum. „Svo er
bara að njóta hvers skeiðs og nú er
ég á nýju skeiði. Ég er búinn að festa
mig í sessi, með fullt af verkefnum
og búinn að koma mér á góðan stað
fjárhagslega. Og þá er það bara, hvað
næst?
Ég hlakka rosalega til að vera afi.
Ég var að verða afi og mig langar að
vera geggjaður afi. Ég er með mikinn
metnað í því. Þú getur alltaf verið á
einhverjum öðrum stað en þú ert á,
en ef maður aðeins hvílir á staðnum
sem maður er þá er maður í góðum
málum.“ n
FRÉTTABLAÐIÐFIMMTUDAGUR 25. ágúst 2022 Lífið 25