Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 10
Þar er ákveðið endurmat á
viðbrögðum danskra
stjórnvalda við þessum
hamförum og sýnir hve
seint þau brugðust við.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og systir,
Gróa Bjarnadóttir
lést á gjörgæsludeild Landspítala
í Fossvogi miðvikudaginn 24. ágúst
síðastliðinn. Útförin verður auglýst síðar.
Eyrún Harpa Hlynsdóttir Torfi Jóhannsson
Berglind Hrönn Hlynsdóttir Steinar Smári Einarsson
Arnþór Ingi Hlynsson
barnabörn og systkini.
Ástkær eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma, dóttir,
tengdadóttir, systir
og mágkona okkar,
Ragnheiður Thelma
Björnsdóttir
lést þann 5. ágúst.
Útför hennar mun fara fram í kyrrþey en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á að styrkja Nýrnafélagið.
Brynjar Örn Sigurðsson
Írena Ósk Brynjarsdóttir og fjölskylda
Aron Lloyd Green og fjölskylda
Björn Árnason
Sif Björnsdóttir og fjölskylda
Svava Friðþjófsdóttir
Hafsteinn Halldórsson
Kristján Hafsteinsson og fjölskylda
Friðþjófur Hafsteinsson og fjölskylda
Ragnheiður Sigurðardóttir
Sigurður Jónsson Olga Ólafsdóttir
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ingvar Gíslason
fyrrverandi alþingismaður
og ráðherra,
sem lést miðvikudaginn 17. ágúst,
verður jarðsunginn frá Áskirkju í Reykjavík
miðvikudaginn 31. ágúst klukkan 13.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Karl Sævar Benediktsson
sem lést þann 19. júlí sl. verður
jarðsunginn frá Laugarneskirkju
fimmtudaginn 1. september kl. 13.
Helga Steinunn Hróbjartsdóttir
Hróbjartur Darri Karlsson Þórhildur Sveinsdóttir
Bjarni Karlsson Jóna Hrönn Bolladóttir
Árni Heiðar Karlsson
Aldís Ívarsdóttir
og aðrir ástvinir.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
amma og langamma,
Agnes Kjartansdóttir
til heimilis í Mörk,
Suðurlandsbraut 58,
lést þann 23. júlí síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu Mörk þökkum við
einstaka hlýju og alúð við umönnun síðustu vikurnar
í lífi hennar.
Dadda Guðrún Ingvadóttir Sveinn Óskarsson
Benedikt Ingvason Áshildur Jónsdóttir
Sigrún Björg Ingvadóttir Halldór Þorvaldsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Nýútgefin bók um séra Jón
Steingrímsson varpar nýju ljósi á
viðbrögð danskra stjórnvalda við
hamförum móðuharðindanna.
arnartomas@frettabladid.is
Jón Steingrímsson og Skaftáreldar er
nýútgefin bók Jóns Kristins Einars-
sonar sagnfræðings, sem býður upp á
nýja sýn á atburðarás sem eldklerkurinn
lenti í í miðjum Skaftáreldum. Bókin er
að stofninum til BA-ritgerð í sagnfræði
sem Jón Kristinn skilaði í byrjun árs
2020 undir leiðsögn Más Jónssonar. Hún
er nú komin út í auknu og endurbættu
bókarformi.
„Miðpunkturinn í rannsókninni er
séra Jón Steingrímsson sem er í seinni
tíð aðallega þekktur fyrir sjálfsævi-
söguna sem hann ritaði á árunum eftir
Skaftárelda og hins vegar eldritin þar
sem hann lýsir Skaftáreldum og áhrifum
þeirra,“ segir Jón Kristinn. „Hann lendir
svo í máli sumarið 1784 þegar hann er
beðinn af Lauritz Thodal stiftamtmanni
á Bessastöðum um að flytja sex hundruð
ríkisdali í innsigluðum böggli til sýslu-
mannsins í Vík í Mýrdal.“
Á leiðinni ákvað séra Jón að opna
böggulinn og deildi úr honum pen-
ingum til bágstaddra sem og sín sjálfs.
Sú ákvörðun átti eftir að koma honum
í vandræði og var hann kærður til yfir-
valda í Kaupmannahöfn. Hann þurfti
fyrir vikið að greiða sekt og biðjast opin-
berlega afsökunar.
Síðbúin viðbrögð
Í bókinni greinir Jón Kristinn málið út
frá áður ónýttum samtímaheimildum.
„Það má segja að meginniðurstaðan sé
sú að þarna eru íslenskir embættismenn
annars vegar og danskir hins vegar í
átökum um hvernig skuli haga þess-
ari neyðaraðstoð, sem er að einhverju
leyti nýtt sjórnarhorn á þessa atburði,“
útskýrir Jón Kristinn.
Hvernig var sýn þeirra á hvernig
skyldi haga neyðaraðstoðinni ólík?
„Thodal stiftamtmaður vill senda Jón
með peningana til Lýðs Guðmundssonar
sýslumanns með mjög nákvæmar leið-
beiningar og vildi fá reikninga og kvitt-
anir fyrir því hvernig þeim væri úthlut-
að. Það má eiginlega segja að hann hafi
viljað fjarstýra þessari atburðarás með
einhverjum hætti frá Bessastöðum,“
segir Jón Kristinn. „Þetta er í takt við
þróun innan dansk-norska ríkisins, sem
hófst um miðbik átjándu aldar og fólst í
því að reynt var að auka miðstýringu og
herða tök miðstjórnarinnar á fjarlægum
svæðum eins og Íslandi.“
Þessar aðgerðir mættu andstöðu frá
íslenskum embættismönnum sem vildu
fá að haga málum eftir sínu lagi.
Það tók Jón Kristin talsverðan tíma að
vinna sig inn í skjölin sem hann notaðist
við í rannsóknum sínum.
„Skriftin er torlesin og ég naut mjög
góðrar leiðsagnar frá Má leiðbeinanda
mínum við að komast í gegnum þetta,“
segir hann og bætir við að eitt og annað
hafi komið á óvart við rannsóknina.
„Þeir sem hafa skrifað um atburði áður
segja að það hafi verið sendir peningar
til landsins frá Kaupmannahöfn 1784
og að peningarnir sem Jón deildi út hafi
verið afrakstur söfnunar sem átti sér
stað þar um veturinn.“
Þegar Jón Kristinn fór að gaumgæfa
skjölin kom hins vegar í ljós að engir
peningar voru sendir til landsins um
vorið.
„Þessir peningar sem Jón deildi út
voru því ekki úr þessari söfnun heldur
voru teknir úr sjóði tukthússins við Arn-
arhól. Þannig að þar er ákveðið endur-
mat á viðbrögðum danskra stjórnvalda
við þessum hamförum og sýnir hve seint
þau brugðust við.“ n
Eldklerkur í nýju ljósi
Bókin byggir á
BA-ritgerð Jóns
Kristins sem
hann skilaði inn
2020.
MYND/AÐSEND
Framhlið á fimm
ríkisdala seðli
frá árinu 1779.
Hugsanlega hafa
seðlarnir sem
séra Jón hafði
með sér litið
svona út.
MYND/MYNT-SAFN
SEÐLABANKA
ÍSLANDS
1896 Jarðskjálfti ríður yfir Suðurland og falla margir bæir
í Rangárvallasýslu. Styrkur skjálftans hefur verið
metinn 6,9 stig á Richter.
1929 Vélbáturinn Gotta kemur úr Grænlandsleiðangri
með fimm sauðnautskálfa til Íslands.
1972 Sumarólympíuleikar eru settir í München í Vestur-
Þýskalandi.
1978 Albino Luciani verður
Jóhannes Páll I. páfi.
1979 Snorrahátíð er
haldin í Reykholti
til að minnast átta
alda afmælis Snorra
Sturlusonar.
1984 Fyrsta Reykjavíkur-
maraþonið er haldið
með 214 þátttak-
endum.
1991 Ísland tekur fyrst
allra ríkja upp form-
legt stjórnmálasam-
band við Eistland, Lettland og Litáen.
2001 Norska flutningaskipið Tampa bjargar 438 flótta-
mönnum við Jólaeyju í Kyrrahafi.
2002 Leiðtogafundur um sjálfbæra þróun hefst í Jóhann-
esarborg.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGUR