Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 31
Við héldum sem
dæmi fyrstu
nýsköpunarkeppni
Samkaupa fyrr á árinu
þar sem öllu okkar
starfsfólki gafst kostur á
að senda inn hugmyndir
til nýsköpunar.
Pétur Karl Ingólfsson
Samkaup er leiðandi
fyrirtæki í viðskiptaháttum,
vörugæðum og þjónustu,
sem og virkur þátttakandi
í nærsamfélaginu. Hluti af
þeirri vegferð er að hvetja
til og stuðla að nýsköpun á
öllum sviðum innan fyrir-
tækisins.
Samkaup reka yfir 60 verslanir
víðs vegar um landið. Þær spanna
allt frá lágvöruverðsverslunum til
þægindaverslana þar sem helstu
merki Samkaupa eru Nettó, Kjör-
búðin, Krambúðin og Iceland.
Þá leggja Samkaup áherslu á að
vera eftirsóttur vinnustaður með
öfluga framlínu. Hjá félaginu starfa
yfir 1.300 starfsmenn í rúmlega
660 stöðugildum.
Samkaup er leiðandi fyrirtæki
í viðskiptaháttum, vörugæðum
og þjónustu sem og virkur þátt-
takandi í nærsamfélaginu. Hluti af
þeirri vegferð er að hvetja og stuðla
til nýsköpunar á öllum sviðum
innan fyrirtækisins, ekki aðeins
í tengslum við tækninýjungar
heldur einnig vinnuferla, grænna
lausna, minni sóunar og mennt-
unar starfsfólks, segir Pétur Karl
Ingólfsson, forstöðumaður Upp-
lýsingatæknideildar Samkaupa.
„Við erum óhrædd við að kalla
eftir hugmyndum úr öllum áttum.
Við héldum sem dæmi fyrstu
nýsköpunarkeppni Samkaupa fyrr
á árinu þar sem öllu okkar starfs-
fólki gafst kostur á að senda inn
hugmyndir til nýsköpunar. Fjöl-
margar hugmyndir bárust þar, líkt
og sérkjör til nemendahópa, hollt
snjallnesti fyrir börnin, uppskeru-
hátíð bænda og margt fleira. Með
þessu koma allir jafnt að borðinu
að hugmyndum og innleiðingu að
nýsköpun hjá fyrirtækinu.“
Fersk og forvitin augu
Samkaup komu að stofnun náms-
línu í Verzlunarskóla Íslands á
sviði verslunar og þjónustu og
er þetta í fyrsta skipti sem slíkur
áfangi með starfsnámi kemur að
nýsköpunarverkefnum hjá Sam-
kaupum, bætir Íris Ósk Ólafsdóttir,
lausnastjóri í upplýsingatækni-
deild, við. „Þar gefst nemendum
kostur á að vinna með okkur í
rannsóknum að bættum ferlum og
hugmyndum. Það reynist okkur
því gríðarlega mikilvægt að fá fersk
og forvitin augu á okkar lausnir frá
ýmsum sjónarhornum.“
Stafræn verkefni margfaldast
Gísli Tryggvi Gíslason, lausna-
stjóri í upplýsingatæknideild, segir
Samkaup vera í stöðugri sókn í
stafrænni þróun og sjálfvirknivæð-
ingu, bæði til að gera verslunar-
störf verðmætari og bæta upplifun
viðskiptavina sinna. „Sterkir inn-
viðir þurfa að vera til staðar í svona
stóru fyrirtæki sem er staðsett um
land allt. Það hefur því verið mikil
gróska í nútíma verslunarrekstri
og í kjölfarið hafa stafræn verkefni
hjá okkur margfaldast undanfarin
ár.“
Til að styðja við þessa aukningu
og skapa sjálfbærni við inn-
leiðingu á stafrænum lausnum, þá
hafa stjórnendur Samkaupa lagt
ríka áherslu á fjárfestingu í réttum
tæknilegum innviðum og staf-
rænum verkfærum, bætir Pétur
við. „Með þessum innviðum hefur
okkur tekist að þróa og samþætta
stafrænar lausnir á mun meiri
hraða en áður. Markmið okkar
hefur einnig verið að sjálfvirkni-
væða alla virðiskeðjuna og er ein
birtingarmyndin þar útleiðing á
óhagkvæmum pappírsferlum. Þar
nýttum við okkur stafræna tækni
og innleiddum meðal annars raf-
ræna hillumiða, upplýsingaskjái,
og sjálfvirknivæddum pantanir og
uppröðun á vörum í verslunum.
Rafræn þjálfun starfsmanna, verk-
lag og aðgengi að upplýsingum, er
annað lykilatriði í vegferð okkar
við að styrkja kjarnann og stuðla
að sveigjanleika í nýsköpun.
Við sjáum fjölmörg tækifæri í
virðissköpun á þeim lausnum með
snjöllum samþættingum og gagna-
stefnu.“
Samkaupa-appið
hefur vakið lukku
Í byrjun árs 2021 fór á markað
fyrsta vildakerfi á matvöru-
markaði með Samkaupa-app-
inu. Íris Ósk segir að hægt sé að
nýta appið í öllum verslunum
Samkaupa, Nettó, Kjörbúðinni,
Krambúðinni og Iceland. „Í dag
eru notendur hátt í 50 þúsund, sem
fá fastan afslátt af öllum vörum í
formi inneignar. Í hverri viku eru
svokallaðir appslættir þar sem
notendur fá hátt í 50% appslátt af
ákveðnum vörum eða vörulínum.
Þar má nefna að síðustu jól voru 24
sértilboð á vinsælustu jólavörum
í körfum viðskiptavina, til dæmis
bækur, konfekt og jólamaturinn. Í
lok árs 2021 voru 20% af veltu Sam-
kaupa að fara í gegnum appið.“
Með innleiðingu appsins
skapast svigrúm til betri kjara til
neytenda og sparar meðalnotandi
hátt í 100.000 krónur á ári, að sögn
Gísla. „Einnig má nefna að það eru
frábær auka appsláttartilboð til
starfsfólks, sem velur sín tilboð
sjálft með innanhússkosningu. Það
eru spennandi tímar fram undan
þar sem fjölmargar nýjungar í
appinu munu líta dagsins ljós. Þar
má nefna innkaupalista, ómann-
aðar verslanir, persónuleg tilboð
og leiki, þar sem notendum gefst
tækifæri til að vinna ákveðnar
vörur frítt í hverri viku.“
Nýjar lausnir og aðferðir
Þau eru sammála um að Samkaup
leggi mikla áherslu á að starfs-
fólk skapi saman nýjar lausnir
og aðferðir í teymisvinnu. „Til að
mynda komu um 150 skapandi og
kröftugir starfsmenn úr verslunum
okkar að innleiðingu appsins,
þar sem þeir lögðu til hugmyndir
og vinnu við að þróa það áfram
með viðskiptavinum. Án þeirra
hefðum við ekki náð þeim árangri
sem við höfum náð til þessa, það
er kjarninn sem einkennir Sam-
kaupa-liðið.“ n
Nýsköpun er stór þáttur í rekstri Samkaupa
Frá vinstri eru Gísli Tryggvi Gíslason og Íris Ósk Ólafsdóttir, lausnastjórar í upplýsingatæknideild, og Pétur Karl Ingólfsson, forstöðumaður upplýsingatæknideildar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Samkaupa-appið kom út í byrjun árs 2021 og er með um 50.000 notendur.
kynningarblað 17FÖSTUDAGUR 26. ágúst 2022 NÝSKÖPUN