Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 21
Sjóðurinn er mjög sterkur og við höfum burði til að styðja myndarlega við spenn- andi verkefni. Una Steinsdóttir Una Steinsdóttir er fram- kvæmdastjóri Viðskipta- banka Íslandsbanka, sem veitir bankaþjónustu til lítilla og meðalstórra fyrir- tækja. Hún er mikil áhuga- manneskja um nýsköpun, frumkvöðlastarfsemi og vöxt fyrirtækja. „Stuðningur við nýsköpun hér á landi er mikilvægur þáttur í rekstri Íslandsbanka. Við höfum unnið með það í huga að vera jákvætt hreyfiafl í samfélaginu og fátt samræmist því markmiði betur en að styðja heilshugar við bak þeirra frumkvöðla sem halda munu áfram að þróa okkar efnahags- líf og viðhalda hagvexti. Öflugur stuðningur við nýsköpun er því ekki einungis samfélagsleg skylda okkar heldur lykilatriði í að móta það efnahagslíf sem tryggja mun góðan rekstrargrundvöll bankans okkar til framtíðar,“ segir Una. „Við höfum stærsta hlutdeild banka meðal lítilla og meðalstórra fyrirtækja þegar kemur að láns- fjármögnun, en veitum fjármagni einnig til nýsköpunar með öðrum hætti, meðal annars með veg- legum styrkveitingum.“ Una útskýrir að helsta framlag bankans á sviði styrkveitinga sé úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka. Veittir eru styrkir til frum- kvöðlaverkefna sem stuðla að þeim heimsmarkmiðum Samein- uðu þjóðanna sem bankinn hefur lagt sérstaka áherslu á, en þau eru menntun fyrir alla, jafnrétti kynjanna, aðgerðir í loftslagsmál- um og nýsköpun og uppbygging. „Sjóðurinn er mjög sterkur og við höfum burði til að styðja myndarlega við spennandi verk- efni. Árið 2021 veittum við til 35 milljónum króna til tólf verkefna, svo sem FabLab á Ísafirði, þar sem smíðaðar verða plastplötur úr gömlum fiskinetum, Hreppa- mjólkur, sem býður mjólk beint frá býli í sjálfsafgreiðslu, Fatalínunnar MAGNEU eftir Magneu Einars- dóttur, Framhaldslífs, þar sem Plastplan ehf. eykur úrvinnslu úr endurunnu plasti, og Orbs, sem nýtir gervigreind til að mæla skóga og kolefnisbindingu þeirra, svo eitthvað sé nefnt. Frá árinu 2019 hafa 48 verkefni hlotið samtals 125 milljónir króna úr sjóðnum og fyrirtækjum í vexti munar um slíkar fjárhæðir. Þau verkefni sem við höfum styrkt eru vitnisburður um þá heilmiklu grósku sem finna má í íslensku samfélagi og það magnaða hugvit sem svo mikilvægt er að styðja við og rækta,“ segir hún. Vilja fleiri umsóknir frá landsbyggðinni Una segir að það sé ánægjulegt hversu erfitt það er að velja styrk- þega, en heilmikill fjöldi umsókna berst sjóðnum ár hvert. „Ég hef veitt stjórn Frumkvöðla- sjóðsins formennsku en með mér í stjórninni sitja þau Hrund Gunn- steinsdóttir, framkvæmdastjóri Festu, og Ari Kristinn Jónsson, forstjóri Aware GO, sem áður var rektor Háskólans í Reykjavík, þannig að ekki skortir reynsluna. Ástæða þess að valið er þetta erfitt eru heilmikil gæði umsókna og ég skal alveg viðurkenna að ég myndi vilja veita miklu fleiri styrki. Fjöldi umsókna sem ekki hlýtur styrk er þó vel til þess fallinn,“ segir hún. „Þrátt fyrir mikinn fjölda umsókna þykir mér eitt þó sárlega vanta. Við veitum styrki til verk- efna úti um allt land en áberandi stærstur fjöldi umsókna berst frá höfuðborgarsvæðinu. Það væri ánægjulegt að fá fleiri styrkum- sóknir frá landsbyggðinni, þar sem ég veit að frumkvöðlar eru á hverju strái,“ bætir hún við. „Ég hugsa að í dag bjóðist frum- kvöðlum fleiri tækifæri til að sækja fjármögnun en nokkru sinni fyrr og ég er stolt af þeim þætti sem við eigum í því. En nýsköpun snýst um meira en peninga og skipta aðstaða og tengsl sem dæmi miklu máli. Því höfum við um langt árabil stutt dyggilega við nýsköpunarmiðstöðvar á borð við Sjávarklasann, sem í dag hýsir yfir 50 fyrirtæki og frumkvöðla í starf- semi sem með einum eða öðrum hætti tengjast hafinu, hvort sem það er í eldi, líftækni, snyrtivörum eða öðru. Við höfum auk þess stutt við Orkuklasann, þar sem aðrir 50 aðilar starfa að verkefnum sem aðallega tengjast jarðvarma og vatnsafli. Þá höfum við stutt við atvinnu- og nýsköpunarsetrið SKÓP í Kópavogi og lausnamótið Hacking Hekla, sem tengt hefur saman frumkvöðla í dreifbýli og þéttbýli á Íslandi.“ Opnað fyrir umsóknir á haustin Una segir að almennt sé opnað fyrir umsóknir að hausti til og styrkir veittir fyrir lok ársins. „Í ár verður hægt að sækja um frá september og styrkirnir veittir í lok nóvember. Sótt er um með ein- földum hætti á vef Íslandsbanka. Eins og ég nefndi lítum við sérstak- lega til fjögurra heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna þegar styrkir eru veittir,“ segir hún. „Í ár hvetjum við umsækjendur einnig til að kynna sér undirmark- mið og útskýra í umsókninni hvernig þau tengjast viðkomandi verkefni. Ég hvet frumkvöðla til að fylgjast vel með en við munum auglýsa eftir umsóknum þegar þar að kemur.“ n Stuðningur við nýsköpun samfélagsleg skylda Una Steinsdóttir segir að stuðningur við nýsköpun hér á landi sé mikilvægur þáttur í rekstri Íslandsbanka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Frá úthlutun úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka en heilmikill fjöldi umsókna berst sjóðnum ár hvert. MYND/AÐSEND kynningarblað 7FÖSTUDAGUR 26. ágúst 2022 NÝSKÖPUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.