Fréttablaðið - 26.08.2022, Side 26
_ CUSTOMER SERVICE LEAD
W E A R E R EC R U I T I N G O U T STA N D I N G S P EC I A L I ST S A N D D E V E LO P E R S
_ GENERAL APPLICATIONS
_ QUALITY ASSURANCE ENGINEERS
_ SOFTWARE ENGINEERS
Tern Systems are a trusted provider of Air Traffic Control solutions. We
are looking for collaborators with great talents and a passion for solving
meaningful problems to join us in building a new generation of Air
Traffic Control systems
We are a diverse company with over a third of our staff hailing from
outside of Iceland, an incredible 16 nationalities in total.
Our homegrown and foreign talent work with Air Traffic Navigation
industry experts to create solutions that appeal far beyond our borders
_ A P P LY @ jobs@tern.is_ E N Q U I R I E Swww.tern.systems
SideWind er að þróa vind
túrbínur sem nýta hliðar
vind til rafmagnsfram
leiðslu fyrir flutningaskip.
starri@frettabladid.is
Nýsköpunarfyrirtækið SideWind
er í eigu hjónanna Óskars Svavars-
sonar og Maríu Kristínar Þrastar-
dóttur en þau vinna að þróun
umhverfisvænnar lausnar fyrir
f lutningaskip. Fyrirtækið stefnir
að framleiðslu vindtúrbína sem
nýta þann hliðarvind, sem annars
færi til spillis á hafi úti, til raf-
magnsframleiðslu. „Hugmyndin
er að nýta gamla 40 feta gáma
sem ekki er hægt að nýta lengur
til f lutninga, taka úr þeim hlið-
arnar, koma ákveðinni tegund
af vindmyllu lárétt inn í gámana
og tengja hana við rafal sem er
staðsettur í hverjum gámi,“ segir
Óskar, en hugmyndin kviknaði hjá
honum fyrir um 35 árum síðan.
„Þessir vindmyllugámar eru svo
hífðir eins og hver annar gámur
sem efsta lag á gámasamstæður
f lutningaskipa. Þar munu vindtúr-
bínurnar ná að nýta þá hliðar-
vinda sem eru á hafi úti. Áhugi er
fyrir að nýta túrbínurnar einnig á
landi þar sem auðvelt er að flytja
þær á milli staða.“
María segir að meðalstórt skip
á Íslandi geti sparað 2-300 tonn af
olíu á ári með 20 slíkum túrbínum.
„Með hækkandi olíuverði hækkar
þessi sparnaður í krónum talið.
Einnig myndi þetta lækka kol-
efnisskatta fyrirtækja. Á Íslandi
er einnig skattaívílnum fyrir
fyrirtæki sem fjárfesta í grænum
lausnum þannig að sparnaður-
inn er meiri en bara olían sem
sparast.“
Byggt á gamalli hugmynd
Hugmyndin fæddist á mennta-
skólaárum Óskars fyrir um 35
árum, þegar hann var að rökræða
við eðlisfræðikennara sinn um þá
hugmynd að byrja aftur að nýta
vindinn til að knýja skip áfram.
„Hann var nú ekki sammála því
og sagði að ég þyrfti ekki að hafa
neinar áhyggjur af því. Það væri
til nóg af olíu í heiminum.“ Árið
2018 bað María Óskar um að koma
með einhverja sniðuga hugmynd
til þess að leggja okkar af mörkum
í baráttunni við loftslagsbreyt-
ingar.
„Þá fór ég aftur að hugsa um
hugmyndina frá menntaskólaár-
unum og hvernig væri hægt að
nýta vindinn betur fyrir f lutn-
ingaskip. Skipin hafa takmarkað
pláss fyrir stór segl og því var
hugsunin að nýta þá innviði sem
væru til staðar og beisla vindinn
með það í huga. Við fórum því í
að rannsaka hvort þessi hugmynd
væri nú þegar til, sem var ekki og
Hliðarvindurinn nýttur til rafmagnsframleiðslu
Óskar Svavars-
son og María
Kristín Þrastar-
dóttir eru eig-
endur Sidewind.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
sóttum því um einkaleyfi sem við
erum komin með á Íslandi og er í
vinnslu í öðrum löndum.“
Fyrsta frumgerðin tilbúin
Í dag er búið að smíða fyrstu frum-
gerðina sem verður prófuð á landi
í haust með Verkís, segir María.
„Síðan í framhaldinu verður hún
prófuð á f lutningaskipi Samskipa.
Einnig erum við að fara á fullt í
frumgerð tvö sem verður gerð úr
endurunnu plasti. Við erum einn-
ig komin í stórt samstarfsverkefni
með innlendum og erlendum
aðilum sem við segjum frá síðar.“
Stuðningsumhverfið gott
Þau segjast hafa fengið góðar
viðtökur alls staðar og allir séu
boðnir og búnir til að aðstoða þau.
„Við erum mjög þakklát fyrir að
hafa fengið styrk frá Tæknirþóun-
arsjóði til þess að útbúa frumgerð-
ina, en það hefði verið best að fá
styrkinn á styttri tíma en tveimur
árum. Við þurftum því að hægja
á öllu ferlinu til þess að eiga fyrir
frumgerðinni. Einnig var mjög
hjálplegt að fá aðstoð frá FabLab
Reykjavík við að útbúa þrívíddar-
prentaða frumgerð í 1:20 sem
fór í vindgöng hjá Háskólanum í
Reykjavík. Þá breyttist þetta úr
því að vera hugmynd á blaði yfir í
áþreifanlegan hlut.“
SideWind er einnig búið að
fá framhaldsstyrk frá Tækni-
þróunarsjóði til þess að halda
áfram með verkefnið næstu tvö
árin. „Við vorum einnig valin í
átta vikna nýsköpunarhraðal
hjá KLAK Icelandic Startups. Þar
fengum við góða hjálp í formi
fyrirlestra, aðgangi að mentorum,
æfingu í að kynna verkefnið og
margt f leira. Einnig fórum við
með Íslandsstofu til Þýskalands á
stærstu orkusýningu í Evrópu og
kynntum þar lausnina. Við höfum
því góða reynslu af stuðningsum-
hverfinu á Íslandi.“ n
Vindmylla er sett lárétt inn í gám og tengd við rafal sem er staðsettur þar.
12 kynningarblað 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGURNÝSKÖPUN