Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 33
Háskóli Íslands er leiðandi
í nýsköpun hér á landi,
hvort sem litið er til rann-
sókna eða kennslu, og innan
hans er stunduð nýsköpun
á öllum fræðasviðum. Á
síðustu árum hefur Háskóli
Íslands lagt áherslu á að
byggja upp öflugt stuðnings-
umhverfi nýsköpunar til að
auka verðmætasköpun og
velsæld fyrir land og þjóð.
Háskóli Íslands stofnaði Vísinda-
garða árið 2004 en starfsemi garð-
anna hefur eflst mikið síðustu ár.
„Í Vísindagörðum Háskóla Íslands
í Vatnsmýrinni eru starfandi öflug
alþjóðleg fyrirtæki sem m.a. koma
að þróun náms og kennslu sem og
rannsóknum og nýsköpun innan
skólans. Í nýjasta húsi Vísinda-
garða, Grósku, er að finna Mýrina –
sprotasetur Vísindagarða, þar sem
frumkvöðlar, fyrirtæki, starfsfólk
og nemendur, sem taka sín fyrstu
skref í nýsköpun, hafa aðsetur. Þar
starfa einnig mikilvægir stuðn-
ingsaðilar sprotaumhverfisins, s.s.
Auðna tæknitorg, Klak – Icelandic
Startups og Nýsköpunarstofa
menntunar,“ segir Jón Atli Bene-
diktsson, rektor Háskóla Íslands.
„Háskóli Íslands leiddi stofnun
tækniyfirfærsluskrifstofunnar
Auðna tæknitorg sem stofnuð var í
lok árs 2018, en hlutverk hennar er
m.a. að markaðssetja rannsóknir
sem verða til innan háskólanna
auk þess sem Auðna stendur fyrir
svokölluðu Master class-námskeiði
í verðmætasköpun sem starfsmenn
og nemendur Háskóla Íslands
sækja. Í byrjun árs var Nýsköp-
unarstofa menntunar stofnuð í
samstarfi við Reykjavíkur borg,
en tilgangur hennar er m.a. að
leiða saman krafta frumkvöðla úr
menntakerfinu, fræðasamfélaginu
og fyrirtækjum landsins, til að
skapa fjölbreyttan vettvang fyrir
mótun og þróun nýrra leiða og
aðferða á sviði náms og mennt-
unar. Háskóli Íslands er einn af eig-
endum Klaks – Icelandic Startups
og er bakhjarl Gulleggsins, stærstu
frumkvöðlakeppni landsins, en
auk Gulleggsins starfrækir Klak
ýmsa hraðla og aðstoðar nemendur
sem hafa aðstöðu í Sprotamýri í
Mýrinni. Háskóli Íslands og Reykja-
víkurborg standa að Snjallræði
sem er hraðall fyrir samfélagslega
nýsköpun. Þá hefur Háskóli Íslands
í samstarfi við sendiráð Banda-
ríkjanna um tveggja ára skeið
staðið fyrir AWE-nýsköpunarhraðli
fyrir konur. Ljóst er að auka þarf
þátttöku kvenna í nýsköpun og
hefur AWE-hraðallinn nú þegar
skilað miklu.
Háskóli Íslands er stoltur af
nýsköpunarframlagi starfsmanna
og nemenda sinna. Frá 1998 hefur
skólinn staðið fyrir árlegri sam-
keppni um Vísinda- og nýsköp-
unarverðlaun Háskóla Íslands þar
sem leitað er eftir nýstárlegum
hugmyndum til að stuðla að sam-
félagslegum og hagrænum fram-
förum. Mörg glæsileg verkefni hafa
komið út úr þessari samkeppni og
hafa sprotafyrirtæki verið stofnuð
um mörg þeirra, en Háskóli Íslands
á nú hlut í 20 sprotafyrirtækjum á
grunni rannsókna starfsfólks.
Auk framangreinds býður
Háskóli Íslands upp á meistara-
nám í nýsköpun og viðskiptaþróun
sem er sameiginleg námsleið
viðskiptafræðideildar og iðnaðar-
verkfræði-, vélaverkfræði og tölv-
unarfræðideildar. Því til viðbótar
býður Háskóli Íslands upp á um
70 nýsköpunartengd námskeið á
öllum fræðasviðum.
Í núverandi stefnu Háskóla
Íslands, HÍ26, er rík áhersla lögð
á nýsköpun og að efla enn frekar
umhverfi nýsköpunar nemenda og
starfsfólks í samstarfi við Vísinda-
garða, atvinnulíf og samfélag.
Liður í því er m.a. aukinn þungi
á samtal skólans við atvinnu-
líf, fjölgun þverfaglegra nám-
skeiða í frumkvöðlafræðum og
samfélagslegri nýsköpun, efling
íslenskunnar í heimi breytinga,
styrking nýsköpunarmenningar
og stuðningur við hagnýtingu
rannsókna og aukið samstarf við
önnur skólastig um nýsköpun
og vísindi. Hlutverk Háskóla
Íslands er að leggja af mörkum til
samfélags og atvinnulífs og vera
mikilvæg undirstaða nýsköpunar
og framfara í landinu. Því hlut-
verki ætlum við svo sannarlega að
standa undir.“ n
Háskóli Íslands er leiðandi í nýsköpun
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir að í núverandi stefnu
Háskóla Íslands, HÍ26, sé rík áhersla lögð á nýsköpun MYND/KRISTINN
Nú á haustdögum tekur
til starfa Nýsköpunar-
stofa menntunar í Grósku
á vettvangi Vísindagarða.
Hlutverk stofunnar er að
leiða saman krafta fræða-
samfélagsins, frumkvöðla
og atvinnulífs, til að stuðla
að nýsköpun á sviði mennt-
unar.
Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti
Menntavísindasviðs og stjórnar-
formaður stofunnar, segir að mikil
nýsköpun sé á sviði menntunar
og að ómetanleg tækifæri felist í
að efla tengslanet hagaðila á þeim
vettvangi.
Nýsköpunarstofa menntunar er
samstarfsverkefni aðila úr fræða-
og fagsamfélagi og úr atvinnulífinu
en háskólinn og Reykjavíkur-
borg standa að daglegum rekstri
hennar. „Menntun er grunnstoð
hvers samfélags og því skiptir öllu
máli að leiða saman krafta allra
þeirra sem starfa og brenna fyrir
menntun, hvort sem um er að ræða
formlegt eða óformlegt nám,“ segir
Kolbrún. Í kjölfar heims- og tækni-
væðingar kalla samfélög sífellt
á endurnýjaða hæfni og þekk-
ingu. „Hlutverk Nýsköpunarstofu
menntunar er að skapa tengslanet
og vettvang til samstarfs fyrir
breiðan hóp hagsmunaaðila
sem eiga mikið undir því að efla
nýsköpun á sviði náms, kennslu,
þjálfunar og fræðslu.“
Á undanförnum áratugum hefur
stafrænni þróun og nýtingu hug-
búnaðar til kennslu fleytt gríðar-
lega fram og Kolbrún bendir á að
sú staðreynd hafi meðal annars
gert nemendum að hluta til kleift
að stunda nám á tíma heims-
faraldurs. „En tæknin er eingöngu
verkfæri, hún er ekki markmið í
sjálfu sér,“ segir hún. „Við þróum
og innleiðum tækni í þágu til-
tekinna markmiða sem á vett-
vangi menntunar snúast ávallt um
menntahugsjónina sjálfa, mennsk-
una, samskipti milli fólks og betra
samfélag. Okkur er því ekki alltaf
tamt að tala um nýsköpun í þessu
samhengi, þar sem nýsköpun
er gjarnan fyrst og fremst tengd
þróun tækni og verkvits.“
Kolbrún telur mikilvægt að
renna styrkari stoðum undir
reynslu ungs fólks á öllum
skólastigum af samfélagslegri
nýsköpun: „Eitt af verkefnum
Nýsköpunarstofunnar verður
einmitt að bjóða upp á fræðslu og
þjálfun í aðferðum og verkfærum
samfélagslegrar nýsköpunar, ekki
síst fyrir áhugasama kennara allra
skólastiga en einnig fyrir nem-
endur, ekki síst háskólanema.“
Auk þess mun stofan skipu-
leggja árlegan nýsköpunarvið-
burð á sviði menntunar og skapa
formlegan og óformlegan vettvang
til samvinnu um nýsköpun og
framtíð menntunar. Horft er
til erlendra fyrirmynda, meðal
annars Finnlands og Kanada,
og stendur til að bjóða til lands-
ins erlendum sérfræðingum til
skrafs og ráðagerða. „Við finnum
fyrir góðum stuðningi stjórn-
valda, sem hafa raunar þegar falið
háskólanum að halda utan um
tiltekin verkefni á sviði nýsköp-
unarmenntunar, svo sem nýsköp-
unarkeppni grunnskóla,“ segir
Kolbrún.
Skóla- og frístundasvið Reykja-
víkurborgar rekur Mixtúru,
sköpunar- og tæknismiðju fyrir
skóla- og frístundastarf og mun sú
eining koma að starfsemi stof-
unnar. „Hér er að skapast tækifæri
til að nýta mannauð og þekkingu
í þágu landsins alls. Nýsköpunar-
stofa menntunar mun leggja kapp
á að hugvit og þekking á sviði
menntunar nýtist til að skapa
betra samfélag, sem einkennist af
velferð, árangri og virkri þátttöku
samfélagsþegna.“ n
Nýsköpunarstofa menntunar tekur til starfa
Kolbrún segir að Nýsköpunarstofa menntunar muni leggja kapp á að hugvit
og þekking á sviði menntunar nýtist til að skapa betra samfélag. MYND/K.I.
Snorri Þór Sigurðsson,
prófessor í efnafræði við
Raunvísindadeild Háskóla
Íslands, hefur þróað stak-
eindir sem munu nýtast vel
í rannsóknum á fjölmörgum
fræðasviðum.
Kjarnsegulgreining er mikið
notuð við rannsóknir á lífsam-
eindum sem tengjast sjúkdómum
í því augnamiði að leita lækninga.
Líklegt er að stakeindirnar muni
gagnast við slíkar rannsóknir
og þar með hafa óbein áhrif á
þróun læknisfræði, að því er
Snorri greinir frá. Þegar hann er
spurður um hagnýtt gildi upp-
finningarinnar, svarar hann:
„Flestir þekkja segulómun, sem
notuð er til að skoða vefjabygg-
ingu. Slíkar mælingar fara fram
í segulsviði og gefa upplýsingar
um atómkjarna sem notaðir eru
til að útbúa myndir af vefjunum.
Kjarnsegulgreining er almennt
nafn yfir slíkar litrófsmælingar
og er mikið notuð til rannsókna á
byggingu margvíslegra efnasam-
banda, sem nýtist meðal annars
við þróun á nýjum efnum með
eftirsóknarverðari eiginleika,“
útskýrir Snorri og bætir við: „Einn
galli við þessa greiningaraðferð
er að hún er ekki mjög næm. Hún
krefst mun meira efnis en margar
aðrar litrófsgreiningaraðferðir og
mælingar taka langan tíma. Sum
efni er því hreinlega ekki hægt
að rannsaka með þessari aðferð.
Aftur á móti er unnt að auka veru-
lega næmni kjarnsegulgreininga
með því að bæta stöðugum stak-
eindum í sýnin og nota sérútbúna
kjarnsegulgreina. Þar skiptir
bygging stakeindanna miklu máli.
Stakeindirnar, sem við höfum
þróað, Asympol og Pyrrotripol,
eru fremstar í f lokki varðandi
mögnun á næmni kjarnsegul-
greiningar,“ segir hann.
Snorri er spurður hvers vegna
þróuð hafi verið tvö mismunandi
efni. „Það kom í ljós að virkni
stakeindanna fer eftir styrk segul-
sviðsins. Asympol gefur betri
niðurstöður við lægra segulsvið
og Pyrrotripol við hærra segul-
svið. Einnig má nefna að efnin
sem við höfum útbúið eru í raun
f leiri en tvö, því Asympol og Pyr-
rotripol eru efnaflokkar sem inni-
halda afleiður er hafa mismun-
andi eðliseiginleika, til að mynda
leysni,“ segir hann, en unnið hefur
verið að þróun þessara efna frá
árinu 2015. „Við erum búin að
fá einkaleyfi fyrir Asympol og
sóttum um einkaleyfi fyrir Pyr-
rotripol í september 2021. Tvær
Asympol-afleiður voru settar á
markað í byrjun þessa árs, Asym-
pol-POK, sem er fyrir mælingar í
vatnslausnum, og Asympol-TEK,
sem er fyrir mælingar í lífrænum
leysum,“ segir Snorri Þór.
„Verkefnið er unnið í sam-
starfi við vísindamenn við
CEA rannsóknastofnunina í
Grenoble, Frakklandi, sem og
við Florida State-háskólann í
Bandaríkjunum. Okkar sérfræði-
þekking liggur í efnasmíðum á
stakeindum, en samstarfsmenn
okkar eru sérfræðingar í notkun
tölvureikninga til að meta mögn-
unarhæfni stakeinda áður en við
ráðumst í efnasmíðar þeirra. Sam-
starfsmenn okkar mæla einnig
hversu mikið næmni kjarnsegul-
greiningar eykst við notkun nýrra
stakeinda.“ n
Uppgötvun sem nýtist við rannsóknir
Snorri Þór Sigurðsson hefur verið að
þróa stakeindir sem munu nýtast
vel í framtíðinni við rannsóknir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
kynningarblað 19FÖSTUDAGUR 26. ágúst 2022 NÝSKÖPUN