Fréttablaðið - 03.09.2022, Blaðsíða 53
442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Viltu verða sérfræðingur
hjá Skattinum?
Skatturinn leitar að góðum liðsfélögum til starfa á álagningarsviði í Reykjavík.
Meginhlutverk álagningarsviðs er að leggja skatta og gjöld á einstaklinga og
lögaðila og sinna þeim verkefnum sem því tengjast, þ.m.t. undirbúningi, þjón-
ustu, eftirliti og afgreiðslu erinda og kæra. Gildi Skattsins eru fagmennska,
framsækni og samvinna.
Helstu verkefni:
Um fjölbreytt verkefni er að ræða, m.a. við virðisaukaskatt, tekjuskatt og aðra skatta og gjöld,
yfirferð skattframtala og skýrslna, afgreiðslu erinda, endurákvarðanir og endurskoðunarverk-
efni til viðbótar við úrvinnslu ýmissa gagna sem tengjast starfsemi Skattsins. Um er að ræða
100% starf.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi (lágmarksmenntun er bakkalár gráða).
• Þekking á reikningsskilum, málsmeðferðarreglum og almennri skattframkvæmd
æskileg.
• Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
• Frumkvæði og metnaður.
• Fáguð framkoma og lipurð í samskiptum.
• Jákvæðni og rík þjónustulund.
• Geta til að vinna undir álagi.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Stefán Skjaldarson, sviðsstjóri álagningarsviðs,
í síma 442-1000 eða með tölvupósti á netfangið stefan.skjaldarson@skatturinn.is
Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu Skattsins, skatturinn.is eða á vefsíðu Starfatorgs, starfatorg.is.
Ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf,
umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi.
Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem
kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Skatturinn hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt gildandi
kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2022 og verður öllum umsóknum svarað þegar
ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar.
Flataskóli
• Leiðbeinandi á frístundaheimili
• Leiðbeinandi við leikskóladeild
• Stuðningsfulltrúi
Sjálandsskóli
• Leiðbeinandi á frístundaheimili
• Stuðningsfulltrúi
Urriðaholtsskóli
• Leiðbeinendur á frístundaheimili
Leikskólinn Akrar
• Deildarstjóri
• Leiðbeinandi
Leikskólinn Bæjarból
• Sérkennslustjóri
Leikskólinn Holtakot
• Leikskólakennari
• Sérkennslustjóri
Krókamýri – heimili fatlaðs fólks
• Starfsmenn
Sigurhæð – heimili fyrir fötluð börn og
ungmenni
• Starfsfólk
Fjölskyldusvið
• Starf á heimili ungrar konu
• Starfsmenn í stuðningsþjónustu
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
Matreiðslumaður/matráður
Dalakofinn á Laugum, Reykjadal, leitar að tveimur
jákvæðum og vinnusömum einstaklingum, gjarnan
hjónum eða pari, með góða reynslu af matreiðslu.
Umsóknafrestur er til 13. september
Sjá nánar á
Fullt starf Tvær stöður
Þarftu að ráða starfsmann?
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum
lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
ATVINNUBLAÐIÐ 15LAUGARDAGUR 3. september 2022