Fréttablaðið - 03.09.2022, Blaðsíða 4
1.155 15,7
prósent
kvenna sem starfa á
opinberum vettvangi
hérlendis hafa orðið
fyrir kynferðislegri
áreitni eða ofbeldi.
58,8
prósentum
hærra
útboðsgjald
er nú lagt á af ríkinu á
erlendar búvörur en
var í apríl á þessu ári.
976
þúsund
krónur er
meðalverð
á fermetra íbúðarhús-
næðis í Vatnsmýri og
Skerjafirði.
5.678
höfðu
smitast oftar
en einu sinni af Covid
hér á landi í lok ágúst.
Frá því að verðkönnun
ASÍ birtist í fyrra
höfum við lækkað
álagningu hjá okkur.
Sigríður Margrét
Oddsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Lyfju
n Tölur vikunnar
FIAT.IS • ISBAND.IS
FULLKOMINN Í
BORGARFERÐIR
„Ítölsk hönnun hefur alltaf veitt okkur í HAF
studio mikinn innblástur og þess vegna
varð rafknúinn Fiat 500e fyrir valinu.“
Haf steinn Júlí us son og Karítas Sveins dóttir
NÝ SENDING Á LEIÐINNI – TRYGGÐU ÞÉR EINTAK
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
börn í Reykjavík biðu í
þessari viku eftir plássi á
frístundaheimili.
Lilja
Alfreðsdóttir
menningar- og
viðskiptaráðherra
sætir harðri
gagnrýni fyrir að
hafa nýtt undan
þágu heimild og
skipað þjóðminjavörð án þess að
auglýsa stöðuna. „Þarna taldi ég
að við værum klárlega að tryggja
það að fagmennskan fengi að njóta
sín,“ sagði Lilja við Fréttablaðið í
vikunni.
Lára
Þorsteinsdóttir
23 ára kona með
ein hverfu
náði áfangasigri
í vikunni er hún
fékk inngöngu í
áfanga um sagn
fræðileg vinnubrögð við Háskóla
Íslands. Hún hefur gagnrýnt náms
framboð við skólann fyrir fatlað
fólk.
„Það er ástæða til að þakka öllum
þeim sem lögðu þessu baráttu
máli mínu lið og opnuðu leiðina
fyrir mér inn í sagnfræðinám við
Háskóla Íslands,“ skrifaði Lára á
Facebook.“ SJÁ SÍÐU 6
Þórólfur
Guðnason
sóttvarnalæknir
lét af embætti í
lok ágúst. „Þetta
hafa verið ansi
erfið síðustu þrjú
ár og það hefur
gengið mikið á við heimsfaraldur,“
sagði Þórólfur við Fréttablaðið,
„en þetta er eitthvað sem maður
er búinn að undirbúa sig fyrir og
mennta sig fyrir og þegar maður
er að vinna með góðu fólki og fyrst
þessi faraldur þurfti að koma er ég
þakklátur fyrir að hafa átt þátt í að
berjast við hann.“ n
n Þrjú í fréttum
Niðurstöður verðkönnunar
sem Veritabus gerði á dög
unum á lyfjaverði hjá þeim
fjórum lyfsölum sem eru með
netverslanir benda til þess að
lyfjaverð hafi lækkað hér á
landi á milli ára.
olafur@frettabladid.is
NEYTENDUR Svo virðist sem lyfja
verð hafi lækkað um nálega þrjú
prósent frá því að ASÍ gerði sam
bærilega könnun í nóvember í
fyrra. Þá hefur verðbil milli lyfsala
dregist mjög saman. Lyfjaver er eftir
sem áður með lægsta verðið en mest
hefur verðið lækkað í Lyfju.
Lyfsalarnir sem verð var kannað
hjá eru Lyfjaver, Lyfja, Garðsapótek
og Lyfjaval. Garðsapótek er í eigu
Lyfja og heilsu og Lyfjaval er í eigu
Orkunnar, sem aftur er í eigu Skeljar
fjárfestingafélags.
Verð í Lyfju hefur lækkað um tæp
níu prósent frá því í nóvember 2021.
Í Lyfjavali hefur verð lækkað um tvö
prósent. Í Lyfjaveri og Garðsapóteki
hefur verð hins vegar hækkað um
rúm þrjú prósent á sama tímabili.
Vísitala neysluverðs hefur hækkað
um 8,2 prósent á sama tíma. Raun
lækkun lyfjaverðs er því um 11 pró
sent og verð í Lyfju hefur lækkað um
meira en 15 prósent að raunvirði.
Verðbil milli aðila á lyfsölumark
aði hefur því minnkað verulega.
Í nóvember 2021 var munurinn á
meðaltalsverði milli dýrustu og
ódýrustu lyfjakörfunnar 21,5 pró
sent en nú er munurinn einungis
ríflega 7 prósent, eða um þriðjungur
þess sem var.
Þá virðist verðlagning lyfjaversl
ana mun agaðri en fyrr og mun
minna er um mikinn verðmun á
einstökum vörum milli verslana.
Reglur um gjaldtöku fyrir heim
sendingu eru nokkuð flóknar. Alls
staðar er ókeypis ef keypt er fyrir
9.900 krónur eða meira (8.900 í
Lyfju). Verð heimsendingar þegar
keypt er fyrir lægri fjárhæð er 990
Mikil lækkun lyfjaverðs á milli ára
Lyf hafa lækkað verulega í verði milli ára, mest í Lyfju. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
krónur í Lyfju og Garðsapóteki en
1.390 í Lyfjavali og Lyfjaveri. Lyfja
býður ávallt ókeypis heimsendingu
ef eitt lyfseðilsskylt lyf er í körfunni
en hjá öðrum er skilyrði um að tvö
ávísanaskyld lyf séu í körfunni til að
heimsending sé ókeypis þegar keypt
er fyrir minna en 9.900 krónur. Frí
heimsending er almennt einungis í
boði á höfuðborgarsvæðinu.
Sigríður Margrét Oddsdóttir,
framkvæmdastjóri Lyfju, segir
fyrirtækið ávallt vinna markvisst
að því að halda vöruverði í skefjum.
Lyfja rekur 46 apótek hringinn í
kringum landið og sama verð er
alls staðar. „Auk þess erum við með
þrjár verslanir hér á höfuðborgar
svæðinu sem eru opnar frá 8 til 24
alla daga ársins. Frá því að verð
könnun ASÍ birtist í fyrra höfum
við lækkað álagningu hjá okkur
og ráðist í markvissar aðgerðir til
að halda kostnaði í skefjum til að
leggja okkar af mörkum til að halda
vöruverði lágu án þess að það komi
niður á því háa þjónustustigi sem
við bjóðum.“
Sigríður Margrét nefnir sem dæmi
að dótturfyrirtæki Lyfju, Heilsa,
sem f lytur inn ýmsar vörur sem
Lyfja selur, hafi náð að festa verð á
bætiefnum frá Gula miðanum fram
til áramóta.
Niðurstöður könnunar Verita
bus gefa til kynna virka og vaxandi
samkeppni á lyfsölumarkaði, en
þar eru turnarnir tveir, Lyfja og Lyf
og heilsa, með stærstu markaðs
hlutdeildina, Lyfjaval virðist vera í
mikilli sókn og Lyfjaver með lægsta
verðið. n
4 Fréttir 3. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ