Fréttablaðið - 03.09.2022, Blaðsíða 38
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Þótt haustið sé skollið á í
allri sinni dýrð er alltaf jafn
gaman að gera vel við sig í
mat á góðum degi. Íslenska
lambakjötið getur verið svo
safaríkt og lungamjúkt að
njóta og fullkomið á grillið á
fallegum haustdegi.
Hinrik Örn Lárusson, matreiðslu-
maður og eigandi að Sælkera-
búðinni og Lux veitingum, veit fátt
skemmtilegra en að skella lambi á
grillið. Þrátt fyrir að það sé nóg um
að vera gefur hann sér tíma til að
njóta með sínum nánustu og grilla
sælkerakræsingar.
„Þessa dagana er allt á fullu hjá
okkur í Sælkerabúðinni, sumarið
búið að vera flott og landsmenn
enn á fullu að grilla. Um þessar
mundir erum við félagarnir að
opna tvö ný útibú í samvinnu við
Hagkaup, en nýju útibúin verða
staðsett í Hagkaup í Garðabæ og
Hagkaup í Kringlunni. Við erum
virkilega spenntir fyrir komandi
tímum og trúum við að þetta verði
frábær viðbót við okkar búð á
Bitruhálsi 2 og horfum fram á að
þetta muni reynast mjög vel,“ segir
Hinrik.
Hinrik býður hér lesendum upp
á sælkerauppskrift að grilluðu
lambakonfekti með ljúffengu með-
læti sem kitlar bragðlaukana og
gleður matarhjartað.
Grillað lambakonfekt í
svart-hvítlauksmaríneringu
Fyrir tvo
600 g lambakonfekt
50 g gerjuð hvítlauksmarínering
(black garlic fæst til dæmis í Sæl-
kerabúðinni)
3 msk. olía
Byrjið á því að velta lambakonfekt-
inu upp úr maríneringu og olíu og
látið marínerast að minnsta kosti
í 2 klukkustundir. Grillið á heitu
grilli í 2-3 mínútur á hvorri hlið (fer
eftir þykkt á kjötbitanum).
Grískt kartöflusalat
600 g soðnar smælkikartöflur
300 g majónes
70 g fetaostur
60 g sólþurrkaðir tómatar
60 g ólífur ( steinlausar)
3 g steinselja
5 g kapers
1 stk. sítróna
Byrjið á því að blanda vel saman
fetaosti og majónesi. Síðan skerið
þið kartöflurnar til helminga og
Grillað lambakonfekt með ljúffengu meðlæti
Hinrik nýtur þess að grilla allan ársins hring og haustin eru einn uppáhalds
grilltíminn hans, ekki er verra ef veðrið er gott. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Lambakon-
fektið er algjört
sælgæti og enn
betra með ljúf-
fengu meðlæti.
Grillað lamba-
konfekt ber
nafn með rentu.
setjið út í feta-majónesið. Gróf-
saxið og setjið svo út í blönduna
sólþurrkaða tómata, ólífur, stein-
selju og kapers. Rífið niður börk
af einni sítrónu og bætið út í og
blandið öllu vel saman. Smakkið
til með salti og pipar eftir smekk.
Grillaður maís og aspas
2 stk. hrár maís
1 búnt aspas
Olía
Smjör
Salt
Byrjið á því að sjóða maísinn í
saltvatni í 10 mínútur. Veltið síðan
maísnum og aspas upp úr olíu og
kryddið til með salti eftir smekk.
Grillið vel á öllum hliðum þar til
falleg brúning er komin á græn-
metið. Setjið síðan í eldfast mót og
smjörklípu ofan á og látið bráðna.
Gott er að velta grænmetinu upp
úr smjörinu.
Hvítlaukssósa
200 g majónes
200 g sýrður rjómi
1 geiri hvítlaukur
1 tsk. sinnepsduft
Safi úr ½ sítrónu
Salt og pipar eftir smekk.
Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél
og blandið vel saman saman,
smakkað til eftir smekk með salti
og pipar. n
LIPINORM A-800
Fæst í apótekum og almennum verslunum.
Ert þú að glíma við of hátt
gildi kólesteróls í blóðinu?
Besta ráðið er aukin dagleg hreyfing og breytt matarræði.
Lipinorm A-800 er góð viðbót við þá lífsstílesbreytingu.
Virk náttúrleg innihaldsefni í Lipinorm stuðla að eðlilegri
blóðfitu og hjartastarfssemi.
Ekki slá vandamálinu á frest og hugsaðu með hjartanu.
6 kynningarblað A L LT 3. september 2022 LAUGARDAGUR