Fréttablaðið - 03.09.2022, Blaðsíða 32
Þessar niðurstöður
þarf hins vegar að
staðfesta með frekari
rannsóknum og skoða
klínísk áhrif til lengri
tíma.
Birna Guðrún
Ásbjörnsdóttir,
doktorsnemi
Margar rannsóknir
hafa sýnt að örveru
flóra mannslíkamans
getur haft áhrif á
efnaskipti hans og
starfsemi.
Snædís Huld
Björnsdóttir, ör-
verufræðingur
Vísbendingar
um að gervisæta
sé fitandi
Örveruflóra einstaklinga breytileg
Snædís Huld Björnsdóttir, örverufræðingur og
dósent við Háskóla Íslands, segir ör veru flór una
breytilega á milli einstaklinga og því þurfi að
skoða niðurstöðurnar betur.
„Margar rannsóknir hafa sýnt að örveruflóra
mannslíkamans getur haft áhrif á efnaskipti
hans og starfsemi,“ segir Snædís aðspurð um
niðurstöður rannsóknarinnar sem sýnir að
neysla sætuefna breyti örveruflóru meltingar-
vegarins.
Þarf að skoða áhrifin betur
„Örveruflóran er breytileg milli einstaklinga
og því þarf að skoða áhrifin betur, bæði í lengri
tíma og hjá fleiri hópum, til dæmis meðal fólks
á ólíku mataræði eða með efnaskiptasjúk-
dóma. Rannsóknin er skref í áttina að skilningi á
áhrifum sætuefna á örveruflóruna og á efna-
skipti mannslíkamans,“ segir hún og bætir við
að það verði afar áhugavert að sjá rannsóknir í
framtíðinni er beinast að því hvernig þessi áhrif
séu tilkomin.
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
f ljótt glúkósamagn í blóði kemst
aftur í eðlilegt horf eftir að glúkósa
er neytt og jafnframt voru munn-
vatns- og saursýni rannsökuð til
að skoða örverur.
Þegar örverur í munni og þörm-
um þátttakenda voru skoðaðar
reyndist marktækur munur á fjölda
baktería fyrir og eftir reglulega inn-
töku gervisætuefna, sérstaklega hjá
þátttakendum sem neyttu súkra-
lósa og sakkaríns. Engar breytingar
voru á örverum samanburðarhóp-
anna sem neyttu glúkósa eða tóku
enga viðbót.
Þátttakendur sem neyttu súkra-
lósa og sakkaríns sýndu einnig
hærri toppa í blóðsykri í glúkósa-
þolsprófum en þeir í glúkósavið-
miðunarhópnum, sem bendir til að
þessi sætuefni geti ýtt líkamanum
í átt að glúkósaóþoli, sem gerir það
að verkum að vefir eiga erfitt með
að taka upp glúkósa úr blóðinu.
Enginn marktækur munur á blóð-
sykurssvörun sást á hópunum sem
eingöngu fengu glúkósa, aspartam
eða stevíu, og samanburðarhópnum
sem var án inngrips.
Sönnuðu orsök og afleiðingu
Þó að þessar niðurstöður séu áhuga-
verðar þá er stóra fréttin sú að rann-
sakendum tókst að sanna orsök og
afleiðingu á milli ákveðinna gervi-
sætuefna, örvera í þörmum og glúk-
ósaóþols.
Rannsakendur tóku örverur úr
saur þátttakenda sem mældust
með hækkaðan blóðsykur og komu
þeim fyrir í sýklalausum músum.
Eftir nokkra daga, þegar örverurn-
ar höfðu komið sér fyrir í þörmum
dýranna, skoðuðu rannsakendur
blóðsykursviðbrögð þeirra. Niður-
staðan var að eiginleiki dýranna til
að stjórna blóðsykursgildum var
hamlaður.
Í grein The Scientist um rann-
sóknina er einnig rætt við Robert
Lustig, taugainnkirtlafræðing við
Kaliforníuháskóla sem kom ekki
að rannsókninni. Segir hann niður-
stöðurnar mikilvægar því þær sýni
fram á orsakasamhengi, ekki aðeins
fylgni. Hann bendir þó einnig á að
hér sé um skammtímarannsókn
að ræða þar sem ekki sé fylgst með
þyngd eða blóðsykurssvörun í
mönnum í hálft til eitt ár.
Samkvæmt honum myndi slík
rannsókn veita betri svör við grund-
vallarspurningunni um hvaða áhrif
gervisætuefni hafa þegar kemur að
þyngdaraukningu og þróun heilsu-
farsvanda eins og sykursýki. En
líklega verður á brattann að sækja
fyrir framleiðendur sætuefna, alla
vega virðast þau ekki vera svarið við
aukinni sykurneyslu mannfólks. n
Í liðinni viku birtist í vísinda-
tímaritinu Cell grein sem gæti
fengið þig til að sneiða hjá
vörum með gervisætu. Sam-
kvæmt greininni eru slíkar
vörur líklegri til að fita þig en
grenna og geta jafnvel valdið
heilsufarsvanda á við sykur-
sýki.
Jotham Suez við John Hopk-
ins-háskólann fór að skoða
gervisætuefni og áhrif þeirra
á heilsu manna fyrir tæpum
áratug. Sem nýútskrifaður
doktor í örverufræði einbeitti
hann sér að rannsóknum á
músum og gáfu þær rannsóknir til
kynna að gervisætuefni gætu valdið
offitu og tengdum heilsuvanda eins
og sykursýki og hjarta- og æðasjúk-
dómum.
Gervisæta breytti þarmaflórunni
Samkvæmt umfjöllun um niður-
stöður greinarinnar í tímaritinu
The Scientist á dögunum ollu þær
niðurstöður deilum enda mikið í
húfi hjá fjölmörgum framleiðend-
um sætuefna. Þó svo að þetta hafi
ekki verið í fyrsta sinn sem gervi-
sæta er tengd við offitu var þetta í
fyrsta sinn sem mögulegum mek-
anisma þar á bak við var lýst. Í ljós
kom að gervisætan breytti þarma-
bakteríum eða þarma f lóru músa,
en bakteríurnar eru mikilvægar í
stjórnun efnaskipta, matarlyst og
fitusöfnun.
Matvælaframleiðendur höfðu
sínar efasemdir varðandi þessar
upprunalegu niðurstöður og það
af góðri ástæðu – og bentu rétti-
lega á að rannsóknirnar væru ekki
á mönnum.
Próf á músum og mönnum
Rannsóknin sem Suez og félagar
hins vegar luku nýverið við Weiz-
mann Institute of Science í Ísrael
var aftur á móti á mönnum og voru
algengustu gervisætuefnin svo
sem sakkarín, súkralósi, aspartam
og stevía prófuð. Niðurstöðurnar
benda til þess að sætuefnin geri
það sama við menn og mýs – breyti
örveruflóru þarmanna.
Samkvæmt vísindamönnunum
hafa slíkar breytingar óhagstæð
áhrif á glúkósaþol, eða hversu fús-
lega líkaminn flytur sykur úr blóði
í vöðva og fitu, sem mögulega gæti
þá orsakað þyngdaraukningu og
sykursýki.
Tilraunin á mönnum
Rannsakendur fengu sjálf boðaliða
sem bæði mældust með eðlilegt
glúkósamagn í blóði og neyttu ekki
sætuefna, til að taka þátt í slembi-
raðaðri samanburðarrannsókn. 120
sjálf boðaliðum sem stóðust þessar
kröfu, var svo skipt í sex hópa.
Rannsóknin stóð yfir í tvær vikur
og neyttu fjórir hópanna daglega
sætuefnanna sakkaríns, súkralósa,
stevíu eða aspartam í sex skömmt-
um, sem voru innan marka um ráð-
lagða daglega neyslu.
Fimmti hópurinn fékk viðlíka
skammt af glúkósa, eða f imm
grömm, og sjötti hópurinn var laus
við inngrip.
Mældu glúkósamagn í blóði
Allir hóparnir mældu glúkósamagn
í blóði, fyrir, á meðan og á eftir vik-
urnar tvær með glúkósamæli sem
festur var við upphandlegg þeirra.
Eins notuðu þau glúkósaþolpróf
sem metur blóðsykurssvörun
líkamans með því að mæla hversu
Frekari rannsóknir
nauðsynlegar
Birna Guðrún Ásbjörnsdóttir,
doktorsnemi í heilbrigðis-
vísindum við Háskóla Íslands,
segir rannsóknina ágæta
þar sem hún sé gerð bæði á
mönnum og músum.
„Þessar niðurstöður þarf
hins vegar að staðfesta
með frekari rannsóknum og
skoða klínísk áhrif til lengri
tíma. Hér var til dæmis ekki
samræmi varðandi magn
sætuefna, en stuðst var við
ásættanlega daglega inntöku
(acceptable daily intake –
ADI) hvers efnis út af fyrir sig
(þ.e.; 240 mg (aspartam, ~ 8%
ADI), 180 mg (sakkarín, ~ 20%
ADI), 102 mg (súkralósi, 34 ~
ADI) og 180 mg (stevía, ~ 75%
ADI). Einnig þarf að skoða
hvort lægri skammtar hafi
sömu áhrif.“
Sykurneysla varhugaverð
Birna bendir jafnframt á
að mikilvægt sé að túlka
ekki niðurstöður þannig að
sykur sé hollur eða hollari en
sætuefni.
„Þar sem rannsóknir sýna
einnig að mikil sykurneysla
eykur áhættu á offitu, sykur-
sýki II, hjarta- og æðasjúk-
dómum og ákveðnum teg-
undum af krabbameinum.“
32 Helgin 3. september 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið