Fréttablaðið - 03.09.2022, Blaðsíða 22
Þetta var góður leikur
hjá okkur og sann-
færandi sigur.
Þorsteinn Halldórsson,
landsliðsþjálfari Íslands
Okkur datt í hug að
það væri skemmti-
legast að vera á þeirra
vettvangi, nálgast þau
á þeirra forsendum.
Guðrún Þóra Arnardóttir hjá
Sorgarmiðstöðinni
Þrátt fyrir erfiðleika í
Bestu deildinni á tíma-
bilinu gæti FH enn náð
í Evrópusæti með því
að sigra í úrslitaleik
Mjólkurbikarsins gegn
Víkingi R.
helgifannar@frettabladid.is
FÓTBOLTI Það hefur lifnað yfir
karlaliði FH undanfarið, en rúmar
tvær vikur eru frá því að haldinn var
samstöðufundur í Kaplakrika til að
bregðast við afar döpru gengi liðs-
ins á tímabilinu, enda liðið komið í
algjöra fallbaráttu.
Þegar fundurinn var haldinn
hafði FH ekki unnið í ellefu leikj-
um í röð í deild. Í kjölfar hans kom
þó loks sigur, 3-0 gegn Keflavík á
heimavelli. Við tók svo markalaust
jafntefli á útivelli gegn KR.
Á fimmtudag tryggði FH sér sæti
í úrslitaleik Mjólkurbikarsins með
2-1 sigri gegn KA á heimavelli. Fögn-
uðurinn eftir leik var ósvikinn og
andrúmsloftið í Krikanum breytt.
Það væri því hægt að færa sterk
rök fyrir því að samstöðufundurinn
hafi skilað sínu í Hafnarfirðinum.
Þó vindurinn blási með Eiði
Smára Guðjohnsen og FH þessi
misserin er þó ekki hægt að horfa
fram hjá því að liðið er enn í fallbar-
áttu. Bikarsigur myndi hins vegar
fara langt með að fá stuðnings-
menn til að fyrirgefa slæmt gengi í
deildinni, svo lengi sem FH heldur
sér í henni. n
Samstöðufundur
hefur skilað sínu
helgifannar@frettabladid.is
RAFÍÞRÓTTIR Sorgarmiðstöðin held-
ur á næstunni mót í tölvuleiknum
vinsæla FIFA 22, til styrktar ung-
mennastarfi sínu.
Mótið verður haldið þann 11.
september klukkan 14. Fer það fram
hjá Arena Gaming, þjóðarleikvangi
Íslands í rafíþróttum. Rafíþrótta-
samtök Íslands og GameTíví styðja
við bakið á mótinu.
Það kostar 3.900 krónur að taka
þátt, með þátttökugjaldinu fylgja
einnig þrír miðar í lukkupott.
Hægt verður að kaupa f leiri miða
í lukkupottinn á meðan mótinu
stendur. Glæsilegir vinningar verða
í boði, eins og Playstation 5 tölva
og FIFA 23, auk vinninga frá Cinta-
mani, Origo Brandson, Bestseller,
66°Norður, Sambíóunum, Nexus,
Sportvörum, Altis, Músík og sport,
Bætiefnabúllunni, Ölgerðinni og
fleirum.
Sorgarmiðstöðin hefur það að
markmiði að styðja við syrgjendur.
Í samtali við Fréttablaðið segir Guð-
rún Þóra Arnardóttir hjá samtök-
unum að þau hafi viljað halda við-
burð sem tengist ungmennastarfi
þess sérstaklega.
„Við vorum að hugsa um ein-
hverja skemmtilega leið til að safna
fyrir ungmennastarfið okkar, líka
til að ná til ungmenna sem hafa
misst. Svo okkur datt í hug að það
væri skemmtilegt að vera á þeirra
vettvangi, nálgast þau á þeirra for-
sendum.“
Sorgarmiðstöðin fékk sterka aðila
með sér í lið til að gera mótið sem
flottast.
„Við höfðum samband við Arena
og þau voru rosalega til í að gera
þetta með okkur. Fljótlega komu
svo Rafíþróttasamtök Íslands með
í þetta líka og vildu lyfta þessu á enn
hærra plan.“
Tveir verða saman í liði á mótinu.
Íslenska landsliðið í FIFA 22 verður
á staðnum. Verður hægt að skora á
þau í leik. n
Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta
á mótið þurfa ekki að örvænta. Því
verður streymt á Stöð 2 esport, mbl.
esport og Twitch-rás RÍSÍ. Því verð-
ur lýst af Ómari Frey Sævarssyni.
Öllu til tjaldað á FIFA-móti Sorgarmiðstöðvarinnar
Eiður Smári Guðjohnsen, þjálfari FH,
ásamt Sigurvini Ólafssyni.
Það verður keppt í tölvuleiknum FIFA 22 til styrktar Sorgarmiðstöðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu er í kjörstöðu fyrir
hreinan úrslitaleik gegn Hol-
landi á útivelli í undankeppni
Heimsmeistaramótsins 2023
eftir stórkostlegan 6-0 sigur
á Belarús á Laugardalsvelli í
gærkvöldi
aron@frettabladid.is
FÓTBOLTI Gestirnir frá Belarús
réðu ekkert við leikmenn íslenska
liðsins sem stjórnuðu leiknum alveg
frá fyrstu mínútu. Hápressa liðsins
sem og föst leikatriði reyndust gest-
unum sérstaklega erfið.
Sara Björk Gunnarsdóttir og
Dagný Brynjarsdóttir skoruðu tvö
mörk hvor í leiknum og þær Selma
Sól Magnúsdóttir og Glódís Perla
Viggósdóttir settu síðan eitt markið
hvor og innsigluðu sigur Íslands.
Sigurinn þýðir að jafntefli gegn Hol-
landi í lokaumferð riðilsins nægir til
þess að tryggja Íslandi beint sæti á
HM.
Eftir sigur gærkvöldsins situr
Ísland á toppi síns riðils með einu
stigi meira en Holland en liðin
mætast í lokaumferð undankeppn-
innar á þriðjudaginn næstkomandi.
Örlögin enn í höndum íslenska
landsliðsins.
Það er eiginlega alveg sama
hvar gripið er niður í tengslum við
íslenska liðið í gærkvöldi, það virtist
allt ganga upp. Miðja liðsins var þétt
fyrir, hraði Sveindísar Jane á hægri
kantinum í bland við teknísku hlið
Amöndu Andradóttur úti vinstra
megin olli gestunum miklum vand-
ræðum
Þorsteinn Halldórsson, lands-
liðsþjálfari Íslands vildi hins vegar
ekki meina að um óaðfinnanlega
frammistöðu hjá sínu liði hafi verið
að ræða. „Sem þjálfari er maður
alltaf að leita að einhverjum smá-
atriðum og vill alltaf gera betur en
heilt yfir var þetta góður leikur hjá
okkur og sannfærandi sigur.
Við gerðum vel í því að láta leik-
mönnum Belarús aldrei líða vel
inn á vellinum. Við sýndum mikla
grimmd, vinnusemi og þrýstum
þeim niður þannig það var alltaf
langt hjá þeim í markið.“
Það var vel mætt á Laugardalsvöll
í gærkvöldi og áhorfendur studdu
rækilega við bakið á íslenska lands-
liðinu, eitthvað sem Þorsteinn telur
að leikmenn taki með sér til Hol-
lands.
,,Áhorfendur skipta okkur máli,
stuðningurinn og hvatningin er
eitthvað sem við tökum með okkur.
Þetta ýtir við fólki, hjálpar því og
hvetur það áfram. Það var virkilega
gaman að vera viðstaddur þennan
leik á Laugardalsvelli og finna fyrir
þessum stuðningi frá áhorfendum.“ n
Stelpurnar okkar skrefi nær HM
Stelpurnar
okkar fögnuðu
hverju markinu
á fætur öðru
í leik gær-
kvöldsins og
færði sigurinn
stelpurnar á
toppinn í sínum
riðli. Þær keppa
næst við Hol-
land í hreinum
úrslitaleik um
sæti á HM.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTONBRINK.
Sveindís Jane átti frábæran leik í gærkvöldi.
22 Íþróttir 3. september 2022 LAUGARDAGUR