Fréttablaðið - 03.09.2022, Blaðsíða 70
Þrívíð litrík verk Krist-
ínar Dýrfjörð sýna meðal
annars þúfur, móa og fjöll.
Hún sýnir verk sín á Safna-
safninu á Akureyri þessa
dagana. Næsta sumar mun
hún halda sýningu í Lista-
safni Samúels Jónssonar í
Selárdal.
starri@frettabladid.is
Kristín Dýrfjörð, dósent við Hug- og
félagsvísindasvið við Háskólann á
Akureyri, sýnir útsaumaðar myndir
á Safnasafninu á Svalbarðseyri við
Eyjafjörð þessa dagana. Sýningin
ber heitið Að undrast með nál – Þar
sem þráðurinn verður sagan, og
verður í gangi út ágúst en færist
ásamt fleiri verkum yfir í Háskól-
ann á Akureyri um miðjan október.
„Verkin mín eru frjáls saumur,
þau verða til þegar ég horfi á stram-
mann sem ég sauma í. Upphaflega
voru þau alfarið tvívíð þar sem ég
saumaði aðallega fugla, jurtir og
barnabörnin mín við leik í nátt-
úrunni. En ég er mjög nýjungagjörn
og þarf sífellt að ögra mér og þá kom
upp sú hugmynd að reyna að gera
verkin þrívíð, reyna að gera þúfur
og fjöll í þau.“
Saumar líka minningar
Hugmyndir að verkum koma úr
ólíkum áttum að hennar sögn.
„Fyrst voru það bara hugmyndir
um þúfur, seinna voru það jafn-
vel þúfur tengdar upplifun af stað,
eins og af Holtavörðuheiði þegar
ég hef stoppað þar. Ég tek mikið af
myndum af jurtum og landslagi, en
segist þá vera að safna litum sem
Blanda af slökun
og skapandi
áskorunum
Kristín Dýrfjörð, dósent við Hug- og félagsvísindasvið við Háskólann á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Verk Kristínar
Dýrfjörð sýna
meðal annars
þúfur, móa og
fjöll.
Þrívíð verk Kristínar Dýrfjörð eru bæði litfögur og falleg.
stundum og stundum ekki lenda í
myndunum mínum.“
Í vor og sumar tók hún upp á
því að sauma minningar um ferðir
eða atvik. „Sem dæmi saumaði ég
litla sögu sem mamma sagði mér
úr sínu lífi. Með því varð hennar
minning mín minning og okkur
sameiginleg.“
Í upphafi saumaði Kristín alfarið
með tvinna en hún hefur víkkað
út notkun sína. „Í dag nota ég allt
mögulegt garn í myndirnar. Ég
nota ull, útsaumsgarn, hör, silki og
raunar hvaða þráð sem er. Mikið
hefur mér verið fært en svo kaupi ég
líka á nytjamörkuðum og einstaka
sinnum fell ég í freistingu og kaupi
mér í búðum.“
Lengi verið aðdáandi útsaums
Það eru ekki mörg ár síðan Kristín
tók upp saumaskap en árið 2019
var hún stödd í útlöndum við vinnu
í nokkrar vikur og þurfti að hafa
eitthvað í höndunum til að skapa,
svo hún sykki ekki inn í tölvuna
sína. „Hins vegar hef ég alla tíð
verið ákafur aðdáandi útsaums en
taldi mig ekki geta talið út eða farið
eftir uppskrift, bara dáðst að þeim
sem það geta. Mín leið varð því að
vera eins og málverk eða teikning.
Verkin verða að flæða fram.“
Horfir og hugsar
Í erilsömu starfi sínu hjá Háskólan-
um á Akureyri er gott að geta skipt
yfir í öðruvísi skapandi verkefni. „Í
saumaskap hef ég fundið slökun en
líka skapandi áskoranir. Mér líður
samt eins, þegar ég horfi á tómt
efnið, og þegar ég ætla að byrja að
skrifa fræðigrein. Ég horfi og horfi
og hugsa, ég hugsa um hvað eigi að
vera til staðar, hvaða stóru mynd ég
ætla að draga í grein og á mynd. Oft
á ég erfitt með að koma mér af stað,
en þegar ég byrja rennur verkið vel
áfram, svona oftast.“
Ekki hætt að ögra sér
Sýningin á Safnasafninu verður
fram yfir annan sunnudag í sept-
ember en verkin, auk fleiri verka,
færast svo yfir í gallerí bókasafns
Háskólans á Akureyri í október.
Kristínu hefur einnig verið boðið að
sýna í Listasafni Samúels Jónssonar
í Selárdal næsta sumar.
„Það finnst mér einstakur
heiður og ætla ég að sauma verk sem
tengjast staðnum og verkum hans.
Að öðru leyti reikna ég með að
sauma áfram enda ekki enn hætt að
ögra mér og er þegar farin að hugsa
öðruvísi myndir. Hvort mér auðnist
að framkvæma hugsanir mínar á
eftir að koma í ljós. Í starfi mínu við
háskólann er líka margt spennandi
fram undan, rannsóknir og kennsla.
En ég hef lengi verið upptekin af
vinnuaðstæðum í leikskólum
landsins og leik barna, þessa daga
er ég að byrja að skrifa um hvort
tveggja.“ n
Verkin mín eru
frjáls saumur, þau
verða til þegar ég horfi á
strammann sem ég
sauma í.
Kristín Dýrfjörð
ME
KO
.IS
10 kynningarblað A L LT 3. september 2022 LAUGARDAGUR