Fréttablaðið - 03.09.2022, Blaðsíða 41
Mannauðsstjóri
Um sýslumenn gilda lög nr. 50/2014
um framkvæmdarvald og stjórnsýslu
ríkisins í héraði.
Sýslumenn fara með framkvæmdar-
vald og stjórnsýslu ríkisins í héraði,
hver í sínu umdæmi.
Hjá Sýslumanninum á höfuðborgar-
svæðinu starfa um 100 manns og
íbúar umdæmisins eru um 240.000.
Embætti sýslumanna hafa á síðustu
mánuðum verið á fleygiferð í
stafrænni þróun og lögð er áhersla á
rafrænar afgreiðslur.
Nánari upplýsingar um sýslumenn
má finna á: www.syslumenn.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu leitar að metnaðarfullum, faglega sterkum og kraftmiklum
einstaklingi í starf mannauðsstjóra. Mannauðsstjóri heyrir undir sýslumann og situr í framkvæmdastjórn
embættisins. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á stefnum embættisins sem tengjast mannauðsmálum, veitir
stjórnendum stuðning og leggur til sérþekkingu og ferla til að styðja við mannauðsstefnu embættisins.
Skjalamál og mötuneyti heyra undir mannauðsstjóra.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir
(hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.
• Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk í
mannauðstengdum málum
• Þróun og eftirfylgni með mannauðsstefnu og
jafnréttisstefnu
• Umsjón með málefnum tengdum starfsumhverfi,
aðbúnaði, öryggi, heilsu og vinnuvernd.
• Ábyrgð á launavinnslu, jafnlaunakerfi og jafnlaunavottun
• Eftirfylgni með framkvæmd kjara- og stofnanasamninga
• Mat á mannaflaþörf ásamt umsjón með ráðningum og
móttöku nýliða í samvinnu við stjórnendur
• Ábyrgð á fræðslu- og starfsþróunarmálum
• Framkvæmd og eftirfylgni vinnustaðagreininga
• Þátttaka í almennri stefnumótun embættisins og
starfshópum
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 19. september. Umsókn óskast útfyllt á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf, hvort tveggja
á íslensku, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið ásamt afriti af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu
lokinni. Um launakjör fer eftir kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisstefnu embættisins.
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. á sviði
mannauðsmála
• Þekking á kjarasamningum og opinberri stjórnsýslu er
æskileg
• Starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Stjórnunarreynsla er kostur
• Leiðtogahæfni, yfirsýn og árangursmiðað viðhorf
• Framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og rík
þjónustulund
• Góð tölvukunnátta, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
• Mjög gott vald á íslensku í mæltu og rituðu máli
Kerfisstjóri
Vegagerðin óskar eftir að ráða öflugan kerfisstjóra í fjölbreytt og áhugavert starf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kolbrún Halldórsdóttir, forstöðukona
upplýsingatæknideildar í síma 522 1000.
Umsóknarfrestur er til og með 19. september 2022. Áhugasamir eru beðnir að sækja um starfið á www.vegagerdin.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til
að gegna starfinu. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Tekið skal fram að
umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
• Rekstur á sýndarumhverfum
• Uppsetning og rekstur skýjaþjónustu
• Rekstur á netþjónum, staðar- og víðnetum
• Samskipti við þjónustuaðila
• Skipulagning, skjölun og áætlanagerð
• Þátttaka í teymisvinnu innan upplýsingatæknideildar
• Önnur tilfallandi verkefni
Starfssvið:
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af rekstri Microsoft skýjaumhverfis
• Góð þekking á Windows Server rekstri
• Góð þekking á rekstri sýndarumhverfa
• Þekking á Linux og gagnagrunnum er kostur
• Skipulögð vinnubrögð og góðir samstarfs- og
samskiptahæfileikar
• Metnaður og frumkvæði í starfi
• Góð íslensku- og enskukunnátta
Menntunar- og hæfniskröfur:
Vakin er athygli á því að persónuupplýsingum um umsækjendur kann að verða miðlað til ráðningarstofu sem kæmi að vinnu við ráðningarferlið. Öll vinnsla og meðferð persónuupplýsinga
í ráðningarferlinu fer fram í samræmi við persónuverndarstefnu sem birt er á heimasíðu Vegagerðarinnar, sjá hér https://www.vegagerdin.is/um-vegagerdina/markmid-og-stefnur/
personuverndarstefna/
ATVINNUBLAÐIÐ 3LAUGARDAGUR 3. september 2022