Fréttablaðið - 03.09.2022, Blaðsíða 92
tsh@frettabladid.is
Tónleikaröðin Ár íslenska einsöngs-
lagsins hefst í Salnum, Kópavogi á
sunnudag en alls verða haldnir átta
tónleikar mánaðarlega í vetur, fjórir
fyrir áramót og fjórir eftir áramót.
Á tónleikunum verður varpað ljósi
á þær gersemar sem tónskáld og
ljóðskáld liðins tíma og samtímans
hafa skapað; þekktar sem óþekktar
söngperlur.
Tónleikaröðin er hugarfóstur
Jónasar Ingimundarsonar, píanó-
leikara og tónlistarfrömuðar, og eru
fyrstu tónleikarnir í röðinni haldnir
honum til heiðurs. Jónas er þekktur
fyrir píanóleik sinn, bæði sem ein-
leikari og meðleikari.
„Við erum að f lytja sönglög og
útsetningar eftir Jónas Ingimundar-
son en við höfum öll í gegnum tíðina
unnið þessi lög með honum,“ segir
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzo-
sópran, sem kemur fram á tónleik-
unun.
„Við erum líka að fagna útgáfu
á hljóðritun á þessum sönglögum
sem var að koma inn á Spotify og
ber heitið Með vorið í höndunum.“
Flytjendur fyrstu tónleikanna
á Ári íslenska einsöngslagsins eru
fimm söngvarar, þau Auður Gunn-
arsdóttir, Hallveig Rúnarsdóttir,
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Gunn-
ar Guðbjörnsson og Kristinn Sig-
mundsson. Píanóleikari er Hrönn
Þráinsdóttir, sem er fyrrverandi
nemandi Jónasar.
„Það er svolítið gaman að píanist-
inn sem leikur með okkur, Hrönn
Þráinsdóttir, var nemandi Jónasar
og hann hafði mikil áhrif á að hún
lagði fyrir sig að vera meðleikari
aðallega með söngvurum,“ segir
Sigríður.
Sigríður segir langan aðdraganda
hafa verið að tónleikunum en platan
sem kom nýlega út var tekin upp
fyrir Covid-faraldurinn.
„Við höfum unnið með Jónasi og
hann hefur gefið okkur öllum rosa-
lega mikið, mikill kennari og tón-
listarmaður, og okkur fannst að við
ættum að hljóðrita þetta og fagna
því og halda tónleika af því tilefni.“
Á tónleikunum á sunnudag verða
eingöngu flutt lög úr smiðju Jónasar
og munu áheyrendur því fá að kynn-
ast píanóleikaranum í hlutverki tón-
skálds og útsetjara. Að sögn skipu-
leggjenda hefur íslenska sönglagið
verið Jónasi sérstaklega hugleikið og
er starf hans í þágu þess ómetanlegt.
Eftir hann liggja fjölmargar hljóðrit-
anir með hinum ýmsu söngvurum
og hefur hann staðið fyrir fjölda
tónleika þar sem íslensk tónlist eftir
ýmsa höfunda er í forgrunni.
„Það er Jónas sem á hugmyndina
að þessari tónleikaröð. Þess vegna
var upplagt að hefja tónleikana
með sönglögum eftir hann og það er
okkar hugmynd að gera það,“ segir
Sigríður.
Tónleikarnir fara fram í Salnum,
Kópavogi á sunnudag kl. 13.30.
Miðasala fer fram á Tix.is. n
Ári íslenska einsöngslagsins fagnað
Á tónleikunum koma fram Auður Gunnarsdóttir, Hallveig Rúnarsdóttir, Sigríður
Ósk Kristjánsdóttir, Gunnar Guðbjörnsson og Kristinn Sigmundsson. Píanó-
leikari er Hrönn Þráinsdóttir. MYND/AÐSEND
Lára Sóley Jóhannsdóttir,
framkvæmdastjóri Sin-
fóníunnar fer yfir komandi
starfsár hljómsveitarinnar
sem hún segir fjölbreytt.
Lára Sóley Jóhannsdóttir hefur
gegnt stöðu framkvæmdastjóra
Sinfóníuhljómsveitar Íslands síðan
2019 en Lára er sjálf fiðluleikari og
var áður konsertmeistari Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands.
„Við erum náttúrlega afar spennt
að fara af stað inn í starfsár án tak-
markana. Við erum með áskriftar-
raðir þar sem fólk getur komið og
valið sér einhverja línu sem það vill
fylgja. Raðirnar eru afar fjölbreyttar
með úrvali af flottum tónleikum og
glæsilegum listamönnum sem við
fáum til liðs við okkur,“ segir Lára
Sóley.
Hún bætir við að allir tónleikar
Grænu raðarinnar verði í beinni
útsendingu á RÚV en Lára Sóley
segir það afar mikilvægt að allir
landsmenn geti notið tónleika Sin-
fóníunnar.
Stórviðburður í Eldborg
Star fsár Sinfóníuhljómsveitar
Íslands hófst með tveimur tón-
leikum á menningarnótt en eigin-
legir upphafstónleikar fara fram í
Eldborg í Hörpu fimmtudaginn 8.
september.
„Upphafstónleikarnir eru með
Daniil Trifonov, sem er einn fræg-
asti píanisti í heiminum í dag.
Hann mun leika píanókonsert nr.
4 eftir Beethoven og þar verður líka
frumflutt á Íslandi verk eftir Önnu
Þorvaldsdóttur, staðartónskáldið
okkar, sem er einmitt nýbúið að
frumflytja á BBC Proms tónlistarhá-
tíðinni í Royal Albert Hall í London,“
segir Lára Sóley.
Tónleikunum verður stýrt af aðal-
hljómsveitarstjóra Sinfóníunnar,
Evu Ollikainen, sem stýrði einnig
tónleikunum á BBC Proms.
„Við tökum á móti erlendu lista-
fólki í fremstu röð nánast í hverri
einustu viku. Það er engu að síður
stórviðburður þegar að Trifonov
kemur í fyrsta sinn til landsins og
þá nýtum við tækifærið og bjóðum
upp á sérstaka einleikstónleika í
Eldborg laugardaginn 10. septem-
ber. Þannig að það er alveg einstakt
tækifæri að geta séð hann bæði spila
með hljómsveitinni og svo einan,“
segir Lára Sóley.
Fjölskyldu- og fræðslustarf
Að sögn Láru Sóleyjar mun Sin-
fónían taka á móti fjölda glæsilegra
listamanna í vetur, erlendra sem
innlendra. Ein þeirra er sópran-
söngkonan Dísella Lárusdóttir, sem
hlaut Grammy-verðlaun í ár fyrir
bestu óperuupptökuna.
„Við hlökkum líka mikið til að fá
Dísellu til að syngja með hljómsveit-
inni. Hún ætlar að koma og vera á
fyrstu tónleikunum í gulri röð,“
segir Lára Sóley og bætir því við að
Sinfóníuhljómsveitin sinni einnig
öflugu fjölskyldu- og fræðslustarfi.
„Einmitt í síðustu viku tókum við
á móti yfir 3.000 leikskólabörnum
sem komu á tónleika. Pétur og úlfur-
inn og verkið Tobbi túba eru fyrstu
Tónsprotatónleikar vetrarins þar
sem Daníel Bjarnason stjórnar og
Halldóra Geirharðsdóttir er sögu-
maður. Túbuleikari Sinfóníunnar,
Nimrod Ron, leikur einleik í Tobba
túbu líka. Það er alltaf sívinsælt að
koma og sjá Pétur og úlfinn.“
Laufey og Harry Potter
Einir tónleikar sem ríkir mikil eftir-
vænting fyrir eru tónleikar Sinfóní-
unnar með söngkonunni Laufey
Lin sem hefur skotist hratt upp á
stjörnuhimininn undanfarið ár.
„Það verður mjög gaman að fá
hana Laufeyju Lin til samstarfs. Hún
er svona hálfpartinn alin upp hjá
hljómsveitinni, mamma hennar, Lin
Wei, er fiðluleikari í Sinfó og Laufey
spilaði sjálf líka í Ungsveit Sinfóní-
unnar. Hún verður með okkur í lok
október og flytur sína tónlist í bland
við þekktar djassperlur sem er búið
að útsetja fyrir hljómsveitina. Það
verður alveg frábært,“ segir Lára
Sóley.
Þá nefnir hún einnig kvikmynda-
tónleika Sinfóníunnar næsta vor
þegar kvikmyndin Harry Potter og
leyniklefinn verður sýnd í mars.
„Fyrsta Harry Potter-myndin var
sýnd á síðasta starfsári í fyrra og
sló rækilega í gegn þannig að við
ákváðum að fá mynd númer tvö
líka. Þá verða kvikmyndatónleikar
þar sem hljómsveitin leikur tónlist-
ina eftir John Williams samhliða því
að myndin er sýnd,“ segir Lára Sóley.
Mikið fagnaðarefni
Að sögn Láru ættu allir að finna eitt-
hvað sitt hæfi í dagskrá Sinfóníunn-
ar enda kappkostar hljómsveitin að
ná til allra landsmanna.
„Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur
marga hatta. Sem þjóðarhljómsveit
þá viljum við ná til allra, og að allir
finni eitthvað við sitt hæfi í okkar
dagskrá. Aðaláherslan er á klassíska
tónlist og samtímatónlist og á okkar
metnaðarfulla fræðslustarf sem
skiptir okkur einnig mjög miklu
máli,“ segir hún.
Höfðu takmarkanir Covid-ár-
anna mikil áhrif á Sinfóníuna?
„Já, þær gerðu það klárlega. Í sin-
fóníuhljómsveit eru oftast á sviðinu
á milli 80 og 90 hljóðfæraleikarar
sem eru allir að spila saman og þú
vilt helst að fólk sitji sem þéttast. Í
Covid var það auðvitað ekki mögu-
legt og við þurftum bara að leita
leiða. Ég held líka að þessi Covid-
tími hafi kennt okkur margt en
það sem stendur upp úr hjá mér er
hversu gríðarlega mikils virði það
er að geta farið á tónleika og notið
þess að vera í samfélagi með öðrum.
Þannig að það er mikið fagnaðarefni
að það verði hægt í vetur.“ n
Hljómsveit
margra hatta
Lára Sóley segir
Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands
vilja ná til allra
Íslendinga og
vonast til að allir
finni eitthvað
við sitt hæfi
í dagskránni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
Sem þjóðarhljómsveit
þá viljum við ná til
allra, og að allir finni
eitthvað við sitt hæfi í
okkar dagskrá.
52 Menning 3. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 3. september 2022 LAUGARDAGUR