Mosfellingur - 12.05.2022, Side 4
Í þá gömlu góðu...
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 2. júní
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn:
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 5.000 eintök. Dreifing: Afturelding.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Á laugardaginn kjósum við okkur
fulltrúa í bæjarstjórn Mosfells-
bæjar til næstu fjögurra ára. Ég
hvet að sjálfsögðu alla til að mæta á
kjörstað og nýta sér
sinn lýðræðislega
rétt til að hafa áhrif
í bæjarfélaginu.
Berum virðingu fyrir
atkvæðinu okkar og
veljum þann flokk
og fólk sem við
treystum best til
að vinna vel fyrir
Mosfellsbæ.
Valdið liggur hjá
okkur bæjar-
búum. Sýnum að lýðræðið virki með
því að mæta á kjörstað og kjósa. Sjö
listar bjóða fram og ættu allir að
geta tengt við einhverja af þeim 154
Mosfellingum sem eru í framboði. Ég
dáist að öllu því fólki sem vill vinna
vel fyrir Mosfellsbæ og hafa góð áhrif
á samfélagið okkar.
Laugardagurinn verður spenn-
andi. Bæjarstjórnarkosningar,
Ísland keppir í úrslitum Eurovision
og bikarúrslitaleikur Liverpool og
Chelsea fer fram. Þetta verður ekki
mikið meira spennandi. Ég óska
ykkur öllum góðrar helgar og segi
áfram Ísland og áfram Mosó!
Gengið að kjörborðinu
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
6
Héðan og þaðan
- Fréttir úr bæjarlífinu4
Mynd og texti er úr safni Mosfelllspóstsins en
barmmerkið báru allir gestir sem heimsóttu skólann í
tilefni 60 ára skólahalds í Mosfellssveit.
Ellefu af þeim tuttugu og tveimur nemendum,
sem voru við nám í Brúarlandsskólanum fyrir
sextíu árum, mættu til þess að minnast afmælisins á
sunnudaginn var. Fimm nemendur tóku fullnaðarpróf
um vorið án þess að hafa setið á skólabekknum um
veturinn. Á myndinni eru á
fremri röð frá vinstri: Haukur
Einarsson frá Miðdal,
Ólafur Magnússon frá
Mosfelli, Þóra Brynjólfs-
dóttir frá Blikastöðum,
Guðrún Magnúsdóttir
frá Mosfelli, Oddný
Halldórsdóttir frá
Varmá.
Efri röð frá vinstri:
Karl Ágústsson frá
Skeggjastöðum, Ferdinand
Jóhannsson var á Reykja-
hvoli, Karl Jónsson frá Hrísbrú,
Héðinn Steinsson frá Leirvogstungu
og Halldór Benediktsson frá Álafossi.
Á myndina vantar Árna Magnússon sem var farinn
þegar til myndatökunnar kom.
Heimsókn á 60 ára afmæli
gamlir nemendur brúarlandsskóla árið 1982
K e t t l e b e l l s I c e l a n d
laugardagInn 21. maí
LíkLega skemmtiLegasta hLaup Landsins!
utanvegahLaup með fjöLbreyttum þrautum
skráning og uppLýsingar á www.kettLebeLLs.is