Mosfellingur - 12.05.2022, Qupperneq 4

Mosfellingur - 12.05.2022, Qupperneq 4
Í þá gömlu góðu... Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is) MOSFELLINGUR www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is Næsti Mosfellingur kemur út 2. júní Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is Ritstjórn: Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is Prentun: Landsprent. Upplag: 5.000 eintök. Dreifing: Afturelding. Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf. Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265 Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag. Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti. Á laugardaginn kjósum við okkur fulltrúa í bæjarstjórn Mosfells- bæjar til næstu fjögurra ára. Ég hvet að sjálfsögðu alla til að mæta á kjörstað og nýta sér sinn lýðræðislega rétt til að hafa áhrif í bæjarfélaginu. Berum virðingu fyrir atkvæðinu okkar og veljum þann flokk og fólk sem við treystum best til að vinna vel fyrir Mosfellsbæ. Valdið liggur hjá okkur bæjar- búum. Sýnum að lýðræðið virki með því að mæta á kjörstað og kjósa. Sjö listar bjóða fram og ættu allir að geta tengt við einhverja af þeim 154 Mosfellingum sem eru í framboði. Ég dáist að öllu því fólki sem vill vinna vel fyrir Mosfellsbæ og hafa góð áhrif á samfélagið okkar. Laugardagurinn verður spenn- andi. Bæjarstjórnarkosningar, Ísland keppir í úrslitum Eurovision og bikarúrslitaleikur Liverpool og Chelsea fer fram. Þetta verður ekki mikið meira spennandi. Ég óska ykkur öllum góðrar helgar og segi áfram Ísland og áfram Mosó! Gengið að kjörborðinu Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings www.isfugl.is 6 Héðan og þaðan - Fréttir úr bæjarlífinu4 Mynd og texti er úr safni Mosfelllspóstsins en barmmerkið báru allir gestir sem heimsóttu skólann í tilefni 60 ára skólahalds í Mosfellssveit. Ellefu af þeim tuttugu og tveimur nemendum, sem voru við nám í Brúarlandsskólanum fyrir sextíu árum, mættu til þess að minnast afmælisins á sunnudaginn var. Fimm nemendur tóku fullnaðarpróf um vorið án þess að hafa setið á skólabekknum um veturinn. Á myndinni eru á fremri röð frá vinstri: Haukur Einarsson frá Miðdal, Ólafur Magnússon frá Mosfelli, Þóra Brynjólfs- dóttir frá Blikastöðum, Guðrún Magnúsdóttir frá Mosfelli, Oddný Halldórsdóttir frá Varmá. Efri röð frá vinstri: Karl Ágústsson frá Skeggjastöðum, Ferdinand Jóhannsson var á Reykja- hvoli, Karl Jónsson frá Hrísbrú, Héðinn Steinsson frá Leirvogstungu og Halldór Benediktsson frá Álafossi. Á myndina vantar Árna Magnússon sem var farinn þegar til myndatökunnar kom. Heimsókn á 60 ára afmæli gamlir nemendur brúarlandsskóla árið 1982 K e t t l e b e l l s I c e l a n d laugardagInn 21. maí LíkLega skemmtiLegasta hLaup Landsins! utanvegahLaup með fjöLbreyttum þrautum skráning og uppLýsingar á www.kettLebeLLs.is

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.