Mosfellingur - 12.05.2022, Síða 18
- www.mosfellingur.is18
Reitir og Mosfellsbæ undirrita samning • 90 þúsund fermetrar af atvinnusvæði sunnan við fyrirhugaða íbúðabyggð
Uppbygging atvinnUkjarna í
landi reita á blikastöðUm hafin
Reitir og Mosfellsbær undirrituðu þann 6.
maí samkomulag um uppbygginu á nýjum
atvinnukjarna í landi Reita á Blikastöðum,
á svæði við Vesturlandsveg milli Úlfarsfells
og Korpu. Atvinnusvæði Reita er sunnan við
fyrirhugaða nýja íbúðabyggð á svæðinu.
Samkomulagið rammar inn samstarf
Mosfellsbæjar og Reita um afgreiðslu
deiliskipulags og gatnagerð í samræmi við
skipulagstillögur sem Reitir hafa unnið að
í samstarfi við sveitarfélagið á umliðnum
árum.
Atvinnukjarninn verður skipulagður
fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi eins og
skrifstofur, verslun og þjónustustarfsemi.
Skipulag atvinnukjarnans gerir ráð fyrir 90
þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði í um
30 byggingum. Þá tekur skipulagið mið af
fyrirhugaðri Borgarlínu í gegnum svæðið
og hverfið verður umhverfisvottað á grunni
krafna BREEAM Communities, sem felur í
sér að hugað verður mjög vel að umhverfis-
þáttum og sjálfbærni hverfisins.
Mun laða að sér framsýn fyrirtæki
Samkomulagið gerir ráð fyrir að gatna-
framkvæmdir geti hafist vorið 2023 og að
byggingarframkvæmdir fyrsta áfanga hefjist
strax í kjölfarið.
„Við hjá Mosfellsbæ erum mjög ánægð
með þróun þessa verkefnis og teljum að
hugmyndir Reita falli vel að áherslum okk-
ar og séu til þess fallnar að mæta framtíð-
arkröfum atvinnulífsins um lifandi og opna
atvinnukjarna,“ segir Haraldur Sverrisson,
bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Áherslur Reita á sviði umhverfismála
falla vel að áherslum Mosfellsbæjar sem
hefur verið leiðandi sveitarfélag á sviði
umhverfismála enda erum við í nánum
tengslum við náttúruna og landið og styðj-
um öll góð áform í þeim efnum. Hinn nýi
atvinnukjarni verður síðan vel tengdur við
stórefldar almenningssamgöngur sem og
nýja íbúabyggð í landi Blikastaða. Þessi
uppbygging Reita er því einkar ánægjuleg
og mun án alls efa stuðla að fleiri og fjöl-
breyttari atvinnutækifærum í Mosfellsbæ.“
Fjölbreytt atvinnutækifæri
„Þessi samningur er mikilvægur áfangi
fyrir okkur hjá Reitum því nú fer verkefnið
af skipulagsstigi yfir á framkvæmdastig,“
segir Friðjón Sigurðarson, framkvæmda-
stjóri þróunarsviðs Reita. „Samhliða af-
greiðslu á nýju deiliskipulagi getur gatna-
hönnun hafist ásamt hönnun bygginga í
fyrsta áfanga.“
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita tekur
í sama streng: „Á næstu árum munu Reitir
standa að uppbyggingu á nýjum atvinnu-
kjarna fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Land-
ið er ákaflega vel staðsett og nýtur mikilla
umhverfisgæða.
Svæðið hefur verið skipulagt með um-
hverfi og sjálfbærni að leiðarljósi, sem
mun án efa laða til sín framsýn fyrirtæki
sem vilja skapa fyrsta flokks aðstöðu fyrir
starfsfólk og viðskiptavini í grænu um-
hverfi.“
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri og Guðjón
Auðunsson forstjóri Reita handsala samninginn.