Mosfellingur - 12.05.2022, Side 49
verslum í heimabyggð
Opnunartími
sundlauga
lágafellslaug
Virkir dagar: 06.30 - 21.30
Helgar: 08:00 - 19:00
Varmárlaug
Virkir dagar: 06.30-08:00 og 15:00-21:00
Laugard. kl. 08:00-17:00 og sunnud. kl. 08:00-16:00
Við sinnum öllum alhliða garðyrkjustörfum s.s
jarðvegsvinnu, hellulögnum, steinhleðslum,
timburverki, gróðursetningu, trjáklippingum.
Garðmenn leggja áherslu á fagleg vinnu-
brögð, vandvirkni og skjóta þjónustu.
Sími 893 5788
www.bmarkan.is
GÓÐiR mENN EHF
Rafverktakar
GSM: 820-5900
• nýlagnir • viðgerðir
•
• hönnun og uppsetning á öryggiskerfum
• síma og tölvulagnir
Löggiltur rafverktaki
Á fundi bæjarstjórnar 4. maí sl. var
samþykktur samningur Blikastaða-
lands ehf. sem er í eigu Arion banka
og Mosfellsbæjar um uppbyggingu á
Blikastaðalandi.
Samningurinn var samþykktur með
5 atkvæðum fulltrúa meirihlutans. Þar
sem ég fulltrúi Viðreisnar í bæjarstjórn
Mosfellsbæjar átti enga aðkomu að
þessum samningi sat ég hjá við atkvæðagreiðsl-
una.
Samningurinn er líklega sá stærsti sem Mos-
fellsbær hefur gert til þessa og markar tímamót
í uppbyggingu í Mosfellsbæ. Hann er að mörgu
leyti okkur hagfelldur og í honum er kveðið á
um að landeigendur greiði samtals 10 milljarða
til uppbyggingar innviða á Blikastaðalandinu.
Það er vissulega fagnaðarefni að hafin sé
uppbygging á Blikastaðalandi en það eru
vonbrigði hvernig aðkoma kjörinna fulltrúa að
samningnum var. Við bæjarfulltrúar fengum
kynningu á honum rúmri viku áður en hann var
samþykktur endanlega í bæjarstjórn. Það var sá
tími sem við höfðum til þess að taka afstöðu til
hans og vorum bundin trúnaði á þeim tíma.
Viðreisn vill ná breiðari samstöðu í stórum
ákvarðanatökum sem þessi samningur sannar-
lega er. Eðlilegt hefði verið að bæjarstjórn, þar
sem fulltrúar íbúa eiga sæti, hefði verið
með í því að móta samningsmarkmið
og verið upplýst að einhverju leyti um
gang mála. Um svona samning þarf að
vera trúnaður meðan á samningavið-
ræðum stendur en þegar við komum
að borðinu var samningum lokið, og
okkur boðið að samþykkja eða hafna
honum.
Ég lýsti því meðal annars á fundinum að
ég hefði viljað fá nánari greiningar á áhrifum
þessarar uppbyggingar sem eru fyrirhuguð er á
landinu. Við erum að tala um 9 þúsund manna
byggð sem bætist við bæinn og það þarf að meta
hvaða áhrif það hefur á bæjarfélagið í heild
sinni. Einnig lét Viðreisn bóka að mikilvægt
væri að uppbygging á Blikastaðalandi komi ekki
í veg fyrir uppbyggingu á öðrum byggingarreit-
um í sveitarfélaginu.
Það bíður næstu bæjarstjórnar að fjalla áfram
um þennan samning því lögum samkvæmt er
skipulagsvaldið i höndum Mosfellsbæjar. Ég
vona að þeim fulltrúum sem í henni munu
sitja beri gæfa til þess að eiga betra samtal við
íbúa um svona stór mál. Við í Viðreisn munum
sannarlega beita okkur fyrir því.
Valdimar Birgisson
Bæjarfulltrúi Viðreisnar
Takmörkuð aðkoma bæjarstjórnar
að samningi um Blikastaðaland
Um þessar mundir er leitun að stjórn-
málaflokki sem á jafnt lítið erindi inn
í stjórnmál og Vinstri græn. Hvort sem
litið er til þátttöku þeirra í ríkisstjórn
eða sveitarstjórn.
Flokkur sem málar sig upp í sterkum
litum, en á bak við þá er ekkert vinstri
og ekkert grænt lengur. Þetta sést hvað
gleggst í stuðningi VG við spillingar-
flokkana í ríkistjórn og nú síðast í
tengslum við söluna á Íslandsbanka.
Hann leggur fátt til og er aðgerðalítill í
að koma stefnumálum sínum sem hann
var stofnaður í kringum á framfæri.
Passar bara upp á að stjórnin hangi.
Sextán ár
Þannig hefur það líka verið um enn
lengri tíma hér í Mosfellsbæ eða í 16 ár. Eftir
allan þann tíma sem flokkurinn hefur verið í
samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn í Mosfellsbæ
stendur lítið eftir nema lítið notað fuglaskoð-
unarhús við Leiruvoginn. Þvílíkt afrek!
Í hverju málinu á fætur öðru hefur fulltrúi
VG stutt Sjálfstæðisflokkinn jafnvel þótt það
hafi gengið gegn yfirlýstum meginmarkmið-
um flokksins. Rétt eins og við höfum séð hjá
ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sem hefur
ekki þótt ástæða til að taka á spillingarmálum
ráðherra ríkistjórnar sinnar og brotum þeirra á
jafnréttislögum svo eitthvað sé nefnt.
Lokaorð bæjarfulltrúa VG í oddvitakappræð-
um á RÚV voru lýsandi fyrir þetta erindisleysi.
Sagan endurtók sig síðan á fundi í Hlégarði sem
boðað var til af félagi aldraðra í bænum. Enginn
metnaður um úrbætur eða framtíðarsýn.
Sama var uppi á teningnum í umræðum á
síðasta bæjarstjórnarfundi þar sem bæjarfull-
trúinn tók þátt í að þvinga í gegn með
íhaldinu áform um Blikastaðaland
með samningi við banka sem ekki var
unninn af kjörnum fulltrúum heldur
embættismönnum í mikilli leynd.
Kjörnir fulltrúar fengu viku til að
skoða málið og máttu ekki ráðfæra
sig við neina aðra, þar sem málið var
flokkað sem trúnaðarmál. Samningur
sem varðar tugi milljarða króna.
Stóra og nánast eina áhyggjuefni
bæjarfulltrúa VG var hvort einhver
starfsemi yrði í gamla Blikastaðabæn-
um því jú þar hefði aldrei fokið hey.
Með fullri virðingu fyrir þeim bæ, því-
líkt erindi inn í pólitík!
Fólk með framtíðarsýn
Í aðdraganda þessara kosninga hefur orðið
deginum ljósara að atkvæði greitt Vinstri græn-
um í Mosfellsbæ er atkvæði greitt Sjálfstæðis-
flokknum, enn einu sinni.
Gefum núverandi meirihluta frí og gefum
fólki með framtíðarsýn og metnað fyrir góðri
þjónustu við íbúa Mosfellsbæjar tækifæri.
Tækifæri til að styðja betur við skólana okkar,
til að hlúa betur að öldruðum og fötluðum,
til að fjölga fjölbreyttum búsetukostum, til að
skipuleggja bæinn í samstarfi við íbúa og til að
vera til fyrirmyndar í umhverfismálum.
Ef þú kjósandi góður ert til í þetta þá er það
góður kostur að setja X við S á kjördag.
Ólafur Ingi Óskarsson, skipar 2. sæti
á framboðslista Samfylkingarinnar
Sunna Arnardóttir, skipar 6. sæti
á framboðslista Samfylkingarinnar
Hvað er vinstri og hvað er grænt?
www.fastmos.is
586 8080
Sími:
Viltu selja?
Hafðu
samband
Svanþór Einarsson
Löggiltur fasteignasali
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Þverholti 2 • S. 586 8080 • www.fastmos.is
Aðsendar greinar - 49