Mosfellingur - 23.08.2022, Síða 1

Mosfellingur - 23.08.2022, Síða 1
MOSFELLINGUR R É T T I N G AV E R K S TÆ Ð I Jóns B. ehf Flugumýri 2, Mosfellsbæ Símar: 566 7660 og 697 7685 jonrett@internet.is www.jonb.iS Bílaleiga á staðnum Þjónustuverkstæði skiptum um framrúður 10. tbl. 21. árg. þriðjudagur 23. ágúst 2022 • Dreift frítt inn á öll heimili í mosfellsbæ • vefútgáfa: www.mosfellingur.is Kjarna • Þverholti 2 • 270 mosfellsbær • s. 586 8080 svanþór einarsson • lögg. fasteignasali • www.fastmos.is eign vikunnar www.fastmos.is Björt 104,6 m2 endaíbúð með glæsilegu útsýni á efstu hæð með sérinngangi af opnum svalagangi, ásamt 29,2 m2 endabíl- skúr. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, sjónvarpshol, eldhús, stofu/borðstofu, geymslu og bílskúr. V.79,0m. Fálkahöfði- endaíbúð Fylgstu með okkur á Facebook FESTU NIÐUR TRAMPÓLÍNIÐ! Með Trampólínskrúfum Einfalt að setja niður og fara örugg inn í sumarið Frá REDDER Hyrjarhöfða 2 S. 558 0888 www. redder.is2900 kr. AÐEINS SKRÚFAN FESTU NIÐU TRAMPÓLÍNIÐ! Með Trampólínskrúfum Einfalt að setja niður og fa a örugg inn í sumarið Frá R DDER Hyrjarhöfða 2 S. 55 0 88 ww. redder.is2900 kr. AÐEINS SKRÚFAN HátíðarblaðBæjarhátíð mosfellsBæjar 26.-28. ágúst 2022 í túninu heima ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 17:00-20:00 PERLAÐ MEÐ KRAFTI Kraftur kemur í Hlégarð og perlar armbönd með Aftureldingu og Mosfellingum. Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein. Skemmti- leg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið að láta gott af sér leiða. 18:00 PRJÓNASKREYTINGAR Í MIÐBÆNUM Kvenfélag Mosfellsbæjar skreytir aspirnar við Háholt í miðbæ Mosfellsbæjar. Íbúar geta tekið þátt og komið með það sem þeir eru með á prjónunum. MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 14:00 SAMGöNGUSTÍGUR vÍGÐUR Samgöngustígur í gegnum Ævintýragarð frá Brúarlandi að Leirvogstunguhverfi verður vígður kl. 14. Stígurinn er tvöfaldur þar sem annars vegar eru hjólareinar í sitthvora áttina og hins vegar hefðbundin göngustígur og er verkefnið hluti af sam- göngusáttmála fyrir höfuðborgarsvæðið. Samgönguráðherra, forstjóri Vegagerðar- innar, bæjarstjórn Mosfellsbæjar og fleiri góðir gesti. Tindatríóið tekur nokkur lög. 19:30-22:00 UNGLINGABALL Í HLÉGARÐI Upphitun fyrir bæjarhátíðina. Ball fyrir unglinga fædda ‘06-’09. Club Dub og Dj. XB mæta. 1.500 kr. inn. FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST ÍBÚAR SKREYTA HÚS OG GöTUR Í HvERFISLITUM GULUR Hlíðar, Höfðar, Tún og Mýrar RAUÐUR Tangar, Holt og Miðbær BLEIKUR Teigar, Krikar, Lönd, Ásar, Tungur og Mosfellsdalur BLÁR Reykja- og Helgafellshverfi 9:00-21:00 NETTÓ ALLA HELGINA Frábær tilboð á hamborgurum, pylsum og skrauti fyrir hátíðina. Allir sem versla um helgina og nota Sam- kaupa-appið fara í pott og fá þrír heppnir viðskiptavinir 25.000 kr. inneign. Opið alla daga frá 09 - 21. 14:00 GAMAN SAMAN GRILLPARTý á HLAÐHöMRUM Eldri borgurum boðið að koma í heimsókn í félagsstarfið, Hlaðhömrum 2. Þar verður notið samveru, hlustað á tónlist og tekið lagið. Ýmislegt góðgæti í boði. 14:30-16:30 - FATAMARKAÐUR BÓLSINS Fatamarkaður félagsmiðstöðvarinnar Bólsins kl: 14:30-16:30 í Varmá Bóli. Unglingar selja notuð föt. Opið fyrir alla Mosfellinga, komið og gerið góð kaup. 16:30 - UPPSKERUHáTÍÐ SUMARLESTURS Í BÓKASAFNINU Frábærum árangri þátttakenda í lestrarátaki safnsins yfir sumartímann verður fagnað með pompi og prakt. Bjarni Fritzson rithöfundur kemur í heimsókn og les upp úr bókum sínum. Húlladúllan mætir með alls konar sirkusdót og kennir öll helstu húllatrixin á torginu fyrir framan safnið. Aðgangur ókeypis og öll velkomin. 18:00-22:00 HERNáMSSýNING Í KJARNA Á sýningunni verða munir og myndir frá hernámsárunum á Íslandi og einnig munir sem tengjast Mosfellsbæ sérstaklega. Safngripirnir eru í eigu Tryggva Blumen- stein. Gengið er inn norðan meginn í Kjarna, Þverholti 2. 18:00-22:00 SUNDLAUGARKvöLD Í LáGAFELLSLAUG Fjölskyldan skemmtir sér saman. Blaðrar- inn tekur á móti börnum, Dj. Baldur heldur uppi stuðinu, Lalli töframaður, Daníel Sirkus, Sumartríóið StúfurZumba og Wipe Out-braut. Frítt inn fyrir alla. 19:00 SKáLDAGANGA UPP MEÐ vARMá Hvað eiga Íslandsbersi, Aðalheiður Hólm og hljómsveitin The Kinks sameiginlegt? Svarið er: Þau koma öll við sögu í skálda- göngu sem Bjarki Bjarnason rithöfundur leiðir. Lagt verður af stað frá Brúarlandi kl. 19 en skólinn á 100 ára afmæli um þessar mundir. Gengið er upp með Varmá að Reykjum. Sögustaðir verða tengdir við skáldskap, lesið upp úr bókum á vel völdum stöðum og sönghópurinn Stöllurn- ar tekur lagið. 19:00 FELLAHRINGURINN – FJALLAHJÓLAKEPPNI Hjólakeppni um stíga umhverfis fellin í Mosfellsbæ. Keppnin hefst við íþróttahúsið að Varmá. Tvær vegalengdir í boði, 15 km og 30 km. Keppt er í almenningsflokk eða rafmagnshjól. Boðið upp á súpu eftir keppni. Útdráttarvinningar eru meðal annars fjallahjól frá Markinu. Sjá nánar á facebook (Fellahringurinn). Skráning á hri.is 20:00 BÍLAKLÚBBURINN KRÚSER vIÐ KJARNA Bílaklúbburinn Krúser safnast saman á bílaplaninu við Kjarna. Tilvalið að kíkja á flottar drossíur og klassíska bíla frá liðinni tíð. Fjöldi glæsivagna á svæðinu ef veður leyfir og eru heimamenn sérstaklega hvattir til að mæta. 20:00 TÓNLEIKAR Í LáGAFELLSKIRKJU Hljómsveitin LÓN kemur fram og syngur hugljúf lög í kirkjunni. Meðlimir LÓNs kalla sig sveitapabba í útlegð í úthverfunum en þessir þjóðþekktu tónlistarmenn, Valdimar Guðmundsson, Ásgeir Aðalsteinsson og Ómar Guðjónsson, vildu spreyta sig á lítil- látari hljóðheim sem hæfir þeirri skilgrein- ingu. Frítt inn meðan húsrúm leyfir. 20:30-22:00 SUNDLAUGARPARTý Í LáGAFELLSLAUG Sundlaugarparty í Lágafellslaug fyrir 8.-10. bekk kl: 20:30-22:00. Frítt inn. 20:30 LOKSINS EFTIRHERMUR Í HLÉGARÐI Skemmtikrafturinn Sóli Hólm mætir í Hlégarð með sýninguna Loksins eftirherm- ur sem gekk fyrir fullu húsi í Bæjarbíói í vetur. Í sýningunni fer Sóli um víðan völl og bregður sér í líki þjóðþekktra Íslendinga eins og hann gerir best. Miðasala á Tix.is 21:00 HáTÍÐARBINGÓ á BARION Bingó fullorðna fólksins á Barion með stórglæsilegum vinningum, m.a. flug til Tenerife. Hægt er að tryggja sér spjöld í forsölu á www.barion.is/boka. Bingóstjóri er Hilmar Gunnarsson og hefst gleðin kl. 21:00. FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 07:30–17:30 MOSFELLSBAKARÍ Bakaríið í hátíðarskapi alla helgina og býður gestum og gangandi upp á ferskt brauð og frábæra stemningu. Bakkelsi í hverfalitunum og vöfflur til hátíðarbrigða. Opið til kl. 16 laugardag og sunnudag. 11:00-17:00 HÚSDýRAGARÐURINN á HRAÐASTöÐUM Í MOSFELLSDAL Geitur, kettlingar, grís, kálfur, hænur, kanínur, naggrísir og mörg önnur húsdýr. Aðgangur 1.000 kr. (frítt fyrir 2 ára og yngri) 11:00-18:00 MYNDÓ OG SIGURBJöRG Opið fyrir gesti og gangandi í Þverholti 5. Ljósmyndastofan Myndó og hannyrða- búðin Sigurbjörg hafa opið fyrir gesti og gangandi. Flott tilboð, léttar veitingar og lifandi tónlist. 12:00-20:00 ÚTvARP MOSFELLSBÆR Útsendingar föstudag, laugardag og sunnudag kl. 12-20. Umsjón: Ástrós Hind Rúnarsdóttir og Tanja Rasmussen www.utvarpmoso.net 14:00-20:00 HERNáMSSýNING Í KJARNA Á sýningunni verða munir og myndir frá hernámsárunum á Íslandi og einnig munir sem tengjast Mosfellsbæ sérstaklega. Safngripirnir eru í eigu Tryggva Blumen- stein. Gengið er inn norðan meginn í Kjarna, Þverholti 2. 16:00-17:30 LISTAMANNASPJALL Í LISTASAL MOSFELLSBÆJAR Listapúkinn Þórir Gunnarsson verður með listamannaspjall í Listasal Mosfellsbæjar í tengslum við sýningu sína, Sýning Listapúkans. 18:00-21:00 vELTIBÍLLINN á MIÐBÆJARTORGINU Veltibíllinn kemur í heimsókn á torgið þar sem Mosfellingum gefst kostur á því að finna hversu mikilvægt er að nota bílbelti. 19:30-23:00 KAFFIHÚS MOSvERJA Skátafélagið Mosverjar verður með kaffihús í Skálanum í Álafosskvos. Rjúkandi heitar vöfflur og kakó eða kaffi. 19:30-22:00 ÚTIMARKAÐUR Í áLAFOSSKvOS Markaðstjöld full af fjölbreyttum varningi. 19:30-23:00 SÚPUvEISLA FRIÐRIKS v Í áLAFOSSKvOS Matreiðslumeistarinn Friðrik V galdrar fram kraftmikla kjötsúpu. Allur ágóði fer til kaupa á eldhúsi í skátaheimili Mosverja. 20:00-23:00 vÍKINGATJöLD vIÐ HLÉGARÐ Víkingar í tjöldum við Hlégarð. Varningur til sölu og leikir. Kynnist tíðaranda vígamanna sem uppi voru á víkingaöld. 20:30 ÍBÚAR SAFNAST SAMAN á MIÐBÆJARTORGI GULIR, RAUÐIR, BLEIKIR og BLÁIR. Allir hvattir til að mæta í lopapeysu. 20:45 SKRÚÐGöNGUR LEGGJA AF STAÐ Hestamannafélagið Hörður leiðir gönguna með vöskum fákum. Göngustjórar frá Leikfélagi Mosfellssveitar. 21:00-22:30 ULLARPARTÍ Í áLAFOSSKvOS Brekkusöngur og skemmtidagskrá. Halla Karen Kristjánsdóttir formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar setur hátíðina. Benedikt búálfur og Dídí mannabarn skemmta. Tónlistarkonan Sigga Ózk tekur nokkur lög. Hilmar Gunn og Gústi Linn stýra brekku- söng. Björgunarsveitin Kyndill kveikir í blysum. Rauðakrosshópurinn sinnir gæslu ásamt Kyndli. 20:30 LOKSINS EFTIRHERMUR Í HLÉGARÐI Skemmtikrafturinn Sóli Hólm mætir í Hlégarð með sýninguna Loksins eftirherm- ur sem gekk fyrir fullu húsi í Bæjarbíói í vetur. Í sýningunni fer Sóli um víðan völl og bregður sér í líki þjóðþekktra Íslendinga eins og hann gerir best. Miðasala á Tix.is 23:00-01:00 SvEITABALL á BARION Danshljómsveitin Blek og byttur leikur við hvern sinn fingur undir handleiðslu tónbóndans í Túnfæti, Þorkels Jóelssonar. Fimm manna hljómsveit og fjölbreytt efnis- skrá. Dragið fram dansskóna - Frítt inn! LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST • Frítt í Strætó í boði Mosfellsbæjar • Frítt í Varmárlaug • Frítt á Gljúfrastein TÍvOLÍ vIÐ MIÐBÆJARTORG UM HELGINA Aðgöngumiðar seldir á staðnum. 8:00-20:00 GOLFKLÚBBUR MOSFELLSBÆJAR Tveir fyrir einn af vallargjaldi á golfvellinum í Bakkakoti í Mosfellsdal meðan á hátíðinni stendur. 10:00-17:00 FRÍTT á GLJÚFRASTEIN Gljúfrasteinn – hús skáldsins opnar dyrnar að safninu upp á gátt og verður frítt inn í tilefni bæjarhátíðar Mosfellsbæjar, Í túninu heima. Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður Halldórs Laxness og fjölskyldu hans um hálfrar aldar skeið. Í nágrenni safnsins eru skemmtilegar gönguleiðir, meðal annars upp að Helgufossi. 9:00-17:00 ÍÞRÓTTASvÆÐIÐ á TUNGUBöKKUM Fótboltamót Aftureldingar og Weetos, 6. og 7. flokkur stráka og stelpna. 9:00-16:00 TINDAHLAUP MOSFELLSBÆJAR Náttúruhlaup sem hefst við Íþróttamið- stöðina að Varmá. Ræst verður í þremur ráshópum 5 og 7 tindar kl. 9:00, 1 tindur og 3 tindar kl. 11:00. Fjórar vegalengdir í boði, 7 tindar (38 km), 5 tindar (34 km), 3 tindar (19 km) og 1 tindur (12 km). Nánari upplýsingar á www.mos.is og www.hlaup.is. Tindahlaup Mosfellsbæjar er í boði Nettó. 10:00-15:00 MOSSKÓGAR Í MOSFELLSDAL Útimarkaður: Grænmeti frá Mosskógum, silungur frá Heiðarbæ, rósir frá Dalsgarði og önnur íslensk hollusta á boðstólnum. 11:00-20:00 HERNáMSSýNING Í KJARNA Á sýningunni verða munir og myndir frá hernámsárunum á Íslandi og einnig munir sem tengjast Mosfellsbæ sérstaklega. Safngripirnir eru í eigu Tryggva Blumen- stein. Gengið er inn norðan meginn í Kjarna, Þverholti 2. 11:00-17:00 HÚSDýRAGARÐURINN á HRAÐASTöÐUM Í MOSFELLSDAL Geitur, kettlingar, grís, kálfur, hænur, kanínur, naggrísir og mörg önnur húsdýr. Aðgangur 1.000 kr. (frítt fyrir <2 ára) 11:00-17:00 MYNDÓ OG SIGURBJöRG Opið fyrir gesti og gangandi í Þverholti 5. Ljósmyndastofan Myndó og hannyrða- búðin Sigurbjörg hafa opið fyrir gesti og gangandi. Flott tilboð, léttar veitingar og lifandi tónlist. 11.00 LEIKHÓPURINN LOTTA vIÐ HLÉGARÐ Söngvasyrpa með ævintýrapersónum úr leikhópnum Lottu. Stútfull syrpa af sprelli og fjöri fyrir allan aldur. Frítt á svæðið. 11:00-15:00 LEIKJAvAGN UMSK á STEKKJARFLöT Leikjavagn UMSK fyrir káta krakka. Fótboltatennis, ringó, krolf, boccia, mega jenga, spike ball, frisbí, kubb, leikir, sprell, tónlist og margt fleira. 12:00-20:00 ÚTvARP MOSFELLSBÆR Útsendingar föstudag, laugardag og sunnudag kl. 12-20. Umsjón: Ástrós Hind Rúnarsdóttir og Tanja Rasmussen www.utvarpmoso.net 12:00–17:00 KARLAR Í SKÚRUM MOSFELLSBÆ - HANDvERKSSýNING Opið hús að Skálahlíð 7A,Litlahlíð, á svæði Skálatúns. Margskonar verk til sýnis og karlar að störfum. Útskurður, tálgun, rennismíði, módelsmíði, fluguhnýtingar ofl. Komið og fræðist um starfsemina. Kaffi og meðlæti. 12:00-16:00 SÚPUvEISLA FRIÐRIKS v Í áLAFOSSKvOS Matreiðslumeistarinn Friðrik V galdrar fram kraftmikla kjötsúpu. Allur ágóði fer til kaupa á eldhúsi í skátaheimili Mosverja. 12:00-17:00 WINGS AND WHEELS – TUNGUBAKKAFLUGvöLLUR FORNvÉLASýNING Gamlar flugvélar, dráttarvélar úr Mosfells- bæ, mótorhjól, fornbílar og flugsýning. Heitt á könnunni fyrir gesti og karamellu- kast fyrir káta krakka. 12:00 HÓPAKSTUR UM MOSFELLSBÆ Ferguson-félagið stendur fyrir hópakstri dráttarvéla og fornbíla. Lagt er af stað frá Tungubakkaflugvelli og keyrður hringur um Mosfellsbæ. 12:00-15:00 OPIÐ HÚS HJá ÓLöFU BJöRGU Í áLAFOSSKvOS Ólöf Björg Björnsdóttir myndlistarkona opnar heimili sitt og vinnustofu fyrir gest- um og gangandi í gömlu Álafossverksmiðj- unni í Kvosinni á 3. hæð. Ólöf Björg er að vinna að einkasýningu sem verður opnuð í haust. Ólöf lofar skemmtilegu spjalli ásamt léttum veitingum. 12:00-18:00 KAFFIHÚS MOSvERJA Skátafélagið Mosverjar verður með kaffihús í Skálanum í Álafosskvos. Rjúkandi heitar vöfflur og kakó eða kaffi. Blaðrarinn kíkir í heimsókn kl. 16 og skemmtir börnum. 12:00-16:00 ÚTIMARKAÐUR Í áLAFOSSKvOS Markaðstjöld full af fjölbreyttum varningi og ýmsar uppákomur á sviði. 12:00 Skósveinar (Minions) á röltinu 13:00 Mosfellskórinn 14:00 Rokkbál 15:00 Drullusokkarnir 15:30 Red Line 13:00-15:00 KAJAKAR á STEKKJARTJöRN Skátafélag Mosverjar verða með kajaka á Stekkjarflöt. Krökkum velkomið að prófa. 13:00-18:00 vÍKINGATJöLD vIÐ HLÉGARÐ Víkingar í tjöldum við Hlégarð. Varningur til sölu og leikir. Kynnist tíðaranda vígamanna sem uppi voru á víkingaöld. 13:00-18:00 BÍLSKÚRSALA Í LITLAKRIKA 43 Ýmislegt til sölu, glös, diskar, eldhúsdót annar húsbúnaður 13:00–17:00 SKOTTMARKAÐUR vIÐ KJARNA Mosfellingum gefst kostur á að koma með alls kyns gull og gersemar úr skápum og bílskúrum og bjóða gestum og gangandi til sölu. Alvöru flóamarkaðsstemning. Einnig er handverksfólk velkomið. Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við Herdísi, herdisheimisdottir@gmail.com. 13:00-16:00 OPIN vINNUSTOFA Í DESJAMýRI 1 Ugla handverk með opið hús í Desjamýri 1 kl. 13-16. Handverk úr timbri, leðri, prjónavörur, skurðarbretti, tækifærisgjafir og fleira. Fjölbreytt úrval af gjafavöru. 13:30 BÆJARLEIKHÚSIÐ – MOSFELLINGAR BJÓÐA HEIM Leikfélag Mosfellssveitar og kvennakórinn Stöllur bjóða í garðpartý við Bæjarleik- húsið. Hljómsveit hússins leikur ásamt gestum. Boðið upp á kaffi og vöfflur. 14:00-16:00 KJÚKLINGAFESTIvAL Stærstu kjúklinga- og matvælaframleið- endur landsins kynna afurðir sínar, selja og gefa smakk við íþróttamiðstöðina að Varmá. Matur og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Ýmis skemmtiatriði, Greipur Hjaltason með uppistand o.fl. 14:00-17:00 STEKKJARFLöT Frítt fyrir káta krakka í hoppukastala og auðvitað ærslabelg. 14:00-17:00 BÍLSKÚRSSöLUR Í BRöTTUHLÍÐ Íbúar í Bröttuhlíð 25, 27, 42, 44 og ef til vill fleiri verða með bílskúrssölur. Eldhúsáhöld og tæki, fatnaður og skór, húsbúnaður, skrautmunir, myndir, jólaskraut, leikföng, húsgögn og fleira. Alls konar skemmtilegt að gramsa í. 15:00 áLMHOLT 10 – MOSFELLINGAR BJÓÐA HEIM Þóra Einarsdóttir sópran og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzosópran syngja aríur og dúetta. Davíð og Stefán mæta einnig ásamt Helga Má píanista. Kaffisala til styrktar börnum sem glíma við veikindi. 15:00 REYKJABYGGÐ 33 – MOSFELLINGAR BJÓÐA HEIM Íris Hólm og Ingibjörg Hólm syngja við undirleik Davíðs Atla Jones sem leikur á bassa og Þóris Hólm sem leikur á slagverk. 15:00 KRÓKABYGGÐ 5 – MOSFELLINGAR BJÓÐA HEIM Stórsöngvarinn Dagur Sigurðsson og hljómsveit verða með tónleika í garðinum í Krókabyggð 5. Öll velkomin í tónlistar- veislu. 15:00-16:00 STEKKJARFLöT – HESTAFJöR Teymt undir börnum á Stekkjarflötinni í boði Hestamenntar. 16:00 NJARÐARHOLT 10 – MOSFELLINGAR BJÓÐA HEIM Garðtónleikar með hljómsveitinni Pipar- korn. Djassskotin funk/popp hljómsveit úr Mosfellsbæ sem skipa Magnús Þór Sveinsson, Hjálmar Karl Guðnason, Emma Eyþórsdóttir, Gunnar Hinrik Hafsteinsson, Ragnar Már Jónsson, Þorsteinn Jónsson og Sigurrós Jóhannesdóttir. 16:30 KARMELLUKAST á FLUGvELLINUM TUNGUBöKKUM 17:00-21:00 GöTUGRILL Í MOSFELLSBÆ Íbúar í Mosfellsbæ halda götugrill í vel skreyttum götum bæjarins. Tríóið Kókos fer á milli staða og heimsækir heppna íbúa. 21:00-23:00 STÓRTÓNLEIKAR á MIÐBÆJARTORGI Skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem Mosfellsbær býður upp á stórtónleika á Miðbæjartorginu. Fram koma: Piparkorn, Hr. Hnetusmjör, Páll Óskar og Stuðmenn. Kynnir verður Sóli Hólm. 23:00 FLUGELDASýNING KYNDILS 23:00-01:00 TRÚBADOR á BARION Trúbadorinn og Mosfellingurinn Bjarni Ómar mætir með gítarinn og heldur uppi stuðinu á Barion. Frítt inn. 23:30-04:00 STÓRDANSLEIKUR MEÐ PáLI ÓSKARI Hinn eini sanni Páll Óskar mætir í íþrótta- húsið að Varmá eftir þriggja ára hlé. Miðverð á Pallaball 3.500 kr. í forsölu og 4.500 kr. við inngang. Forsala fer fram í íþróttahúsinu að Varmá (18 ára aldurstak- mark) á www.afturelding.is. SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 8:00-20:00 GOLFKLÚBBUR MOSFELLSBÆJAR Tveir fyrir einn af vallargjaldi á golfvellinum í Bakkakoti í Mosfellsdal meðan á hátíðinni stendur. 9:00-17:00 ÍÞRÓTTASvÆÐIÐ á TUNGUBöKKUM Fótboltamót Aftureldingar og Weetos, 6. og 7. flokkur stráka og stelpna. 11:00-17:00 HÚSDýRAGARÐURINN á HRAÐASTöÐUM Í MOSFELLSDAL Geitur, kettlingar, grísir, kálfar, hænur, kanínur, naggrísir og mörg önnur húsdýr. Aðgangur 1.000 kr. (frítt fyrir <2 ára) 11:00-20:00 HERNáMSSýNING Í KJARNA Á sýningunni verða munir og myndir frá hernámsárunum á Íslandi og einnig munir sem tengjast Mosfellsbæ sérstaklega. Safngripirnir eru í eigu Tryggva Blumen- stein. Gengið er inn norðan meginn í Kjarna, Þverholti 2. 12:00–17:00 KARLAR Í SKÚRUM MOSFELLSBÆ - HANDvERKSSýNING Opið hús að Skálahlíð 7A,Litlahlíð, á svæði Skálatúns. Margskonar verk til sýnis og karlar að störfum. Útskurður, tálgun, rennismíði, módelsmíði, fluguhnýtingar ofl. Komið og fræðist um starfsemina. Kaffi og meðlæti. 12:00-20:00 ÚTvARP MOSFELLSBÆR Útsendingar föstudag, laugardag og sunnudag kl. 12-20. Umsjón: Ástrós Hind Rúnarsdóttir og Tanja Rasmussen www.utvarpmoso.net 13:00 BLIKAHöFÐI 10 - MOSFELLINGAR BJÓÐA HEIM Djasskrakkar úr Mosó ásamt gestum halda stofutónleika í Blikahöfða 10. Þau eru nýkomin frá Osló þar sem þau tóku þátt í Kids in jazz tónlistarhátíðinni. 13:00-18:00 BÍLSKÚRSALA Í LITLAKRIKA 43 Ýmislegt til sölu, glös, diskar, eldhúsdót annar húsbúnaður 13:00 GLAPPAKAST Í ÆvINTýRAGARÐINUM Barnasýning í Ævintýragarðinum í Ullarnesbrekkum. Bílastæði við Varmá. Í sýningunni eru Daníel og Urður klaufar sem vinna saman til að gera eitthvað skemmtilegt til að sýna, við fáum hjálp frá krökkunum og komum okkur stundum í klaufalegar aðstæður sem við vitum ekki alveg hverning við eigum að bregðast við. Í sýningunni má sjá fimleika, jöggl og brjálaða skemmtun. 13:00-17:00 vÍKINGATJöLD vIÐ HLÉGARÐ Víkingar í tjöldum við Hlégarð. Varningur til sölu og leikir. Kynnist tíðaranda vígamanna sem uppi voru á víkingaöld. 14:00 HLÉGARÐUR – HáTÍÐARDAGSKRá • Umhverfisnefnd veitir umhverfis- viðurkenningar Mosfellsbæjar 2022 og fallegasta tré ársins útnefnt. • Mosfellsbær heiðrar starfsmenn sem eiga 25 ára starfsafmæli. • Útnefning bæjarlistarmanns Mosfellsbæjar 2022. • Söngkonan Stefanía Svavars kemur fram. • Heitt á könnunni og öll velkomin. 14:00-16:00 OPIÐ HÚS á SLöKKvISTöÐINNI Slökkvistöðin við Skarhólabraut verður til sýnis fyrir hátíðargesti. Gestum býðst að skoða bíla, tæki og búnað slökkviliðsins í bílasal. Öll velkomin. 16:00 STOFUTÓNLEIKAR á GLJÚFRASTEINI Davíð Þór Jónsson, píanóleikari og tónskáld, verður við flygilinn á síðustu stofutónleikum Glúfrasteins þetta sumarið. Davíð Þór hefur frá unga aldri leikið með allflestum þekktari tónlistarmönnum landsins og komið fram á tónlistarhátíð- um víða um heim. Davíð Þór var valinn bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2017. Aðgangseyrir er 3.500 kr. og miðasala fer fram í móttöku safnsins fyrir tónleika. 18:00 ÍHUGUNARKRISTNI OG KvöLDMESSA Í MOSFELLSKIRKJU 18:00 Kyrrðarbæn, Bylgja Dís Gunnars- dóttir leiðir stundina í kirkjunni. 18:30 Biblíuleg íhugun, Sr. Henning Emil Magnússon leiðir. 18:45 Göngutúr. 19:30 Hressing. 20:00 Kvöldmessa. Lágstemmd stund í kirkjunni með mikla áherslu á íhugun, iðkun og söng. Þórður Sigurðsson, organisti, leiðir tónlistina. Sr. Henning Emil Magnússon þjónar. krá h tíð ri ar má finna í miðopnu blaðsins Ástrós og Tanja ætla að starfrækja útvarpsstöð um hátíðarhelgina og Tryggvi Blumenstein heldur hernáms- sýningu tengda Mosfellsbæ í Kjarna. Í túninu heima fer fram helgina 26.-28. ágúst GleðileGa bæjarhátíð mynd/raggiÓla

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.