Mosfellingur - 23.08.2022, Blaðsíða 6
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ6
Fimmtudagur 25. ágúst
Lágafellskirkja kl. 20: Tónleikar með
hljómsveitinni LÓN í Lágafellskirkju.
Hljómsveitina skipa þjóðþekktir
tónlistarmenn: Valdimar Guðmunds-
son, Ásgeir Aðalsteinsson og Ómar
Guðjónsson. Ókeypis aðgangur.
sunnudagur 28. ágúst
Mosfellskirkja kl. 18: Kyrrðarstund og
biblíuleg íhugun í og við Mosfellskirkju.
Umsjón: Sr. Henning Emil Magnússon
og Bylgja Dís Gunnarsdóttir.
Létt hressing í boði.
Kvöldmessa í Mosfellskirkju kl. 20.
Sr. Henning Emil Magnússon þjónar.
Þórður Sigurðarson, organisti, leiðir
tónlistina.
sunnudagur 4. september
Kl. 11: Guðsþjónusta í Lágafellskirkju.
Sr. Henning Emil Magnússon þjónar.
Kl. 13: Upphaf barnastarfsins í
Lágafellskirkju. Söngur, saga, leikir og
brúðuleikrit. Umsjón: Bogi æskulýðs-
fulltrúi og sunnudagaskólaleiðtogar.
sunnudagur 11. september
Kl. 11: Guðsþjónusta í Lágafellskirkju.
Sr. Henning Emil Magnússon þjónar.
Kl. 13: Sunnudagaskóli í Lágafellskirkju.
Fermingarskráning
Fyrir vorið 2023
Minnum á skráningu í fermingar-
fræðslu á heimasíðu safnaðarins.
Stekkjarflöt
álafoSSkvoS
kjarni
varmárvöllur
íþróttamiðStöðin
að varmá
Hlégarður
Að vanda verður líf og fjör í Mosfellsbæ
þegar bæjarhátíðin Í túninu heima fer fram
helgina 26.-28. ágúst. Loksins geta Mos-
fellingar komið saman á bæjarhátíðinni Í
túninu heima eftir tveggja ára hlé vegna
heimsfaraldurs.
Íbúar, félagasamtök og fyrirtæki taka
virkan þátt í hátíðinni og ættu allir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Þekktir liðir verða á sínum stað, svo sem
flugvéla- og fornvélasýning á Tungubökk-
um, kjúklingafestival og Pallaball, en einnig
opið hús á slökkvistöðinni við Skarhóla-
braut sem notið hefur mikilla vinsælda.
setning og ullarpartý á föstudagskvöld
Dagskrá hátíðarinnar verður æ veglegri
með árunum og hefst nú á þriðjudegi, en
hátíðin er þó formlega sett á föstudag.
Skrúðgöngur í hverfalitunum fjórum leggja
af stað frá Miðbæjartorgi kl. 20:45 á föstu-
dag með hestamannafélagið Hörð í broddi
fylkingar. Þaðan liggur leiðin í Álafosskvos
þar sem hátíðin er sett. Að því loknu verður
Ullarpartý með brekkusöng og skemmti-
dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Í Álafosskvos fer fram markaður og
skátafélagið Mosverjar skapar notalega
kaffihúsastemningu. Útimarkaður í Mos-
fellsdal verður á sínum stað. Gljúfrasteinn
opnar dyrnar að safninu upp á gátt og
verður frítt inn á laugardeginum í tilefni
bæjarhátíðarinnar.
Heilsueflandi dagskrárliðir
Mosfellsbær er heilsueflandi samfé-
lag og því vel við hæfi að á dagskrá
hátíðarinnar eru fjallahjólakeppn-
in Fellahringurinn, fótboltamót
og Tindahlaupið, en það er eitt
vinsælasta utanvegahlaup
landsins. Fjórar vegalengdir
eru í boði, einn, þrír, fimm
eða sjö tindar á fellunum
umhverfis bæinn.
mosfellingar
bjóða heim
Mosfellingar taka vel á
móti gestum og gangandi,
skreyta hús og garða sína
í hverfislitunum og bjóða
heim.
Fjölbreytileg dagskrá
er í görðum bæjarbúa og
opnar vinnustofur víða.
Hápunktur á torginu
Stórtónleikar á Mið-
bæjartorgi eru hápunktur
hátíðarinnar. Þar skemmta
landsþekktar hljómsveitir ásamt
heimamönnum og björgunarsveitin
Kyndill stendur fyrir glæsilegri flug-
eldasýningu.
Frítt verður í strætó, í Varmárlaug og á
Gljúfrastein allan laugardaginn. Dagskrá
hátíðarinnar er að finna í miðopnu blaðsins
og á vefsíðu Mosfellsbæjar www.mos.is.
Í túninu heima fer fram um helgina • Líf og fjör um allan bæ • Dagskrá í miðopnu
loksins hægt að halda
bæjarhátíð Mosfellsbæjar
Höfðar, Hlíðar,
Tún og Mýrar
Tangar, Holt
og Miðbær
Teigar, Krikar, Lönd,
Ásar, Tungur og Dalur
Reykjahverfi og
Helgafellshverfi
HveRfasKReyTingaR
Mosfellsbæ er skipt upp í fjóra
hluta og hefur hver hluti sinn
sérstaka lit til að skreyta með.
Íbúar
eru hvattir
til að skilja
bílinn eftir
heima eða á þar til
gerðum bílastæðum
og rölta um og njóta.
karamellukaSt
moSfellSbær á góðum degi
Stuðmenn verða á
miðbæjartónleikunum
Fjölbreyttur úti
markaður í Kvosinni
Markaðurinn í Álafosskvosinni
verður á sínum stað Í túninu
heima. Opið verður föstudagskvöld
kl. 19:30-22:00 og á laugardag kl.
12:00-16:00. Á föstudagskvöldinu
fer fram Ullarpartí í Kvosinni með
skemmtidagskrá og brekkusöng.
Á laugardeginum verður fjölbreytt
dagskrá á sviðinu allan daginn.
Hópakstur traktora
og fornvélasýning
Wings’n Wheels fornvélasýning
fer fram á Tungubakkaflugvelli í
tengslum við bæjarhátíðina um
helgina. Sýningin er haldin á
laugardaginn kl. 12-17 og er að-
gangur ókeypis. Þar er hægt að virða
fyrir sér gamlar flugvélar, fornbíla,
dráttarvélar, mótorhjól og kl. 16:30
verður karamellukastið vinsæla.
Þeir sem eiga spennandi tæki sem
ættu heima á sýningu eru beðnir
um að hafa samband við Sigurjón í
s. 858-4286. Hátíðin hefst kl. 12 með
hópakstri dráttarvéla, fornbíla og
tækja um Mosfellsbæ. Ferguson-
félagið stendur fyrir akstrinum og
hvetur alla til þátttöku.
Kjúklingafestival
haldið í sjöunda sinn
Hjalti Úrsus býður til matarveislu
ársins í Mosfellsbæ laugardaginn
27. ágúst. Kjúklingafestivalið hefur
fest sig í sessi á bæjarhátíðinni og
stækkar með
hverju árinu.
Festivalið fer
fram við íþrótta-
miðstöðina að
Varmá kl. 14-16.
„Kjúklingafram-
leiðendur sem
dagsdaglega eru
í harðri samkeppni koma saman
í einn dag, sameina krafta sína og
kynna fyrir fólki þennan holla og
góða mat,“ segir Hjalti Úrsus. „Mos-
fellsbær hefur alltaf verið þekktur
sem kjúklingabær og stendur svo
sannarlega undir nafni.“
bærinn Skreyttur
miðbæjar-
torg