Mosfellingur - 23.08.2022, Side 8
Völuteig 4 - 270 Mosfellsbær
www.vinnuvelarehf.is - vinnuvelar@vinnuvelarehf.is - S: 496 4400
STEMA KERRUR
Hágæða þýskar kerrur með áralanga reynslu hérlendis.
Litlar kerrur, stórar kerrur, vélakerrur og sturtukerrur.
189.000
M.VSK
VERÐ FRÁ
Þorbjörg ráðin sveit
arstjóri Kjósarhrepps
Þorbjörg Gísladóttir hefur verið
ráðin sveitarstjóri Kjósarhrepps.
Þorbjörg var sveitarstjóri Mýrdals-
hrepps frá 2018 til 2022 og áður var
hún skrifstofu- og mannauðsstjóri
hjá Rafnar ehf. í
um 7 ár. Þorbjörg
sat einnig í fram-
kvæmdastjórn
Rafnar og hefur
verið formaður
stjórna og nefnda
er tengjast fyrra
starfi hennar,
meðal annars formaður stjórnar
Hulu byggðasamlags um úrgangs-
mál, Kötluseturs og formaður
rekstrarstjórnar hjúkrunarheimil-
isins Hjallatúns. Þorbjörg er með
B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá
Háskólanum á Bifröst, hefur lokið
APME gráðu í verkefnastjórnun frá
Háskóla Íslands og stjórnsýslurétti
frá sama skóla. Hún hefur jafnframt
klárað námskeiðið sveitarfélaga-
skólinn hjá Opna Háskólanum.
Sveitarstjórn var einhuga í ákvörðun
sinni um ráðninguna.
- Fréttir úr bæjarlífinu8
Næsti mosfelliNgur
kemur út 15. sept.
mosfellingur@mosfellingur.is
Miklar endurbætur við Kvíslarskóla hafa
staðið yfir síðustu mánuði þar sem við
rannsókn EFLU verkfræðistofu í vor kom í
ljós að rakaskemmdir voru til staðar í gólf-
plötu fyrstu hæðar Kvíslarskóla.
Um var að ræða nýtt tjón og mikilvægt
að bregðast strax hratt við af hálfu Mos-
fellsbæjar. Í byrjun apríl var hafist handa
við hreinsun byggingarefna og unnið að
mótvægisaðgerðum til að tryggja góða
innivist svo unnt væri að nýta neðri hæð
Kvíslarskóla út vorönnin 2022.
Að loknum frekari rannsóknum var tekin
ákvörðun um að nýta sumarlokun skólans
til að vinna að endurbótum og endurinn-
réttingu Kvíslarskóla.
Koma fyrir lausum kennslustofum
Framkvæmdir hafa gengið vel en þó
reyndist nauðsynlegt að seinka skólasetn-
ingu um nokkra daga vegna þess að vinna
við að koma fyrir lausum stofum reyndist
tímafrekari en til stóð. Gert er ráð fyrir að
stofurnar verði hver á fætur annarri til-
búnar til kennslu í fyrstu viku september
og á sama tíma verði lokið við að innrétta
anddyri og salerniskjarna fyrstu hæðar
Kvíslarskóla.
Meginhluti neðri hæðar skólans verður
ekki í notkun fram að áramótum vegna
endurinnréttingar hæðarinnar.
Umfangsmikið og krefjandi verkefni
Samkvæmt upplýsingum frá Kvíslarskóla
verður foreldrum boðið á árgangafundi
í vikunni 22.-25. ágúst. Á þeim fundum
verður farið yfir skólastarfið í vetur í hverj-
um árgangi fyrir sig, fyrirkomulag kennslu í
upphafi skólaárs auk þess sem veittar verða
nánari upplýsingar um stöðu endurbóta og
endurinnréttingar á húsnæði Kvíslarskóla.
„Það er ljóst að það óskar sér enginn að
vera í þessari stöðu og þetta er umfangs-
mikið og krefjandi verkefni,“ segir Halla
Karen Kristjánsdóttir, formaður bæjarráðs.
„Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að
útkoman verður mikið endurnýjað skóla-
húsnæði sem stenst nútímakröfur og við
megum alls ekki missa sjónar á því.
Það er mikilvægt að tryggja það að skóla-
samfélagið allt sem og bæjarbúar séu vel
upplýst um gang mála og allir átti sig á sínu
hlutverki. Því öll höfum við hlutverk í að
láta þetta ganga upp. Samstaðan er mikil-
væg og skólasamfélagið getur treyst því að
vandað verði til verka þannig að tryggt sé að
nemendur og starfsfólk geti gengið til starfa
í heilnæmu húsnæði,“ segir Halla Karen.
Ráðin framkvæmda
stjóri Hleinar
Anný Lára Emilsdóttir hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri Hleinar.
Sambýlið Hlein er staðsett á á lóð
Reykjalundar samkvæmt þjón-
ustusamningi
við Sjúkratrygg-
ingar Íslands. Í
sumar var gerð
skipulagsbreyting
og ákveðið að
leggja niður starf
forstöðuþroska-
þjálfa á Hlein og
auglýsa eftir framkvæmdastjóra.
Anný er að góðu kunn á Hlein og
hefur starfað þar í afleysingum
undanfarin ár. Anný Lára er með
sérfræðimenntun í hjúkrun og hefur
fjölbreytta reynslu úr heilbrigðis-
þjónustunni. Þar hefur hún öðlast
áralanga reynslu af stjórnun og
rekstri, bæði sem deildarstjóri og
forstöðumaður.
Rakaskemmdir í gólfplötu á fyrstu hæð • Nýtt tjón • Sumarlokun nýtt til framkvæmda • Skólasetningu seinkað
endurbætur og endurinnrétting kvíslarskóla
skólasetning kvíslarskóla
fer fram næsta mánudag