Mosfellingur - 23.08.2022, Síða 14
- Fréttir úr bæjarlífinu14
Flaggstangarfánar
Fánalengjur (plast/tau)
Áhersla lögð á hluti sem tengjast Mosfellsbæ • Sýning í Kjarna Í túninu heima frá fimmtudegi til sunnudags
Tryggvi heldur hernámssýningu
Í tengslum við bæjarhátíðina ætlar Mos-
fellingurinn Tryggvi Blumenstein að halda
sýningu á munum frá hernáminu á Íslandi
og leggur sérstaka áherslu á hluti sem
tengjast Mosfellsbæ.
„Þetta er hernámssýning, ég er safnari
að upplagi og á orðið heilmikið safn af
munum frá hernámsárunum á Íslandi,
það eru margir sem gera sér ekki grein
fyrir því hversu mikil umbrotsár þetta voru
í íslenskri sögu,“ segir Tryggvi en sýningin
verður á neðri hæð Kjarna, Þverholti 2, dag-
ana 25.-28. ágúst og er aðgangur ókeypis.
Dreymir um að opna safn í Mosfellsbæ
Tryggvi, sem er einn ötulasti safnari gripa
frá hernámsárunum á Íslandi, dreymir um
að safnið hans verði að almenningssafni í
framtíðinni þar sem þessum umrótatímum
á Íslandi verði gerð góð skil.
„Þessi tími breytti samfélaginu okkar
mikið, það má eiginlega segja að okkur
hafið verið kippt úr moldarkofunum inn í
nútímann. Draumur minn er að opna safn
hér í Mosfellsbæ. Á sýningunni verður hægt
að skoða hluta af þessum munum sem
ég hef safnað, hægt verður að handleika
ákveðna hluti og jafnvel taka myndir.
Ég held úti vefsíðunni fbi.is þar sem má
finna ýmsar upplýsingar og ljósmyndir sem
ég hef safnað saman,“ segir Tryggvi og von-
ast eftir að sjá sem flesta Mosfellinga.
John Marston yfirmaður bandaríska landgönguliðsins við Brúarland í Mosfellssveit árið 1941. Mosfellingurinn Tryggvi Blumenstein á áhugavert safn frá hernámsárunum á Íslandi.
Íþróttafjör næsta skólaár
Skemtilegt og gefandi hlutastarf í
Mosfellsbæ með þremur grunnskólum
fyrir áramót og annað eins eftir áramót.
„Réttur grunnur gerir alla framtíð skemtilegri“
Nú óska ég eftir tveimur aðilum til að vera með mér í
mikilvægu forvarnarstarfi fram að vori 2023. Veist þú um
einhvern sem er barngóður, þekkir til í ýmsum íþróttum,
er 18 ára eða eldri og er til í að byggja upp framtíð?
... ert það kannski þú?
Vinnutíminn er milli kl. 14:00 til 15:30 í
Íþróttamiðstöðvum Mosfellsbæjar 3x í viku.
Íþróttafjörið byrjar 3. október nk. og fylgir að mestu skóladagatali út skólaárið.
Ef áhugi er fyrir hendi, máttu hafa samband við Hlyn í síma 6993456 /
hlygson@gmail.com næstu daga og fá frekari upplýsingar.
Þetta er „Íþróttafjörið” fyrir 1. og 2. bekk þriggja skóla.
Hópur úr hverjum skóla kemur til okkar fasta daga (nema
föstudaga). Þeim er skipt í þrjá minni hópa á staðnum. Stutt
kynning og heilræði fer fram og síðan er prufuð einhver íþrótt
eða tómstund sem stunduð er hér í bæ.