Mosfellingur - 23.08.2022, Síða 55
verslum í heimabyggð
Aðsendar greinar - 55
Smiðjuvegi 60 (rauð gata) Kópavogi - Sími 557 2540
Passamyndir
Við bjóðum upp á myndatöku
fyrir vegabréf, ökuskírteini, ferilskrár,
starfsmannaskírteini og fleira,
bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Vogatunga 51, 270 Mosfellsbæ, sími: 864 6600
Gólfefna lausnir
fyrir heimili
og fyrirtæki
STILKUR.IS | UgLUgaTa 31 | SímI 696-6566
Þ U R R K U Ð B L Ó M
& S K R E Y T I N G A R
STILKUR.IS | UgLUg Ta 31 | SímI 9 -6566
S T I L K U R
Þ U R R K U Ð B L Ó M
& S K R E Y T I N G A R
www.bmarkan.is
Margir Mosfellingar tengja sterkt við
Ungmennafélagið Aftureldingu. Flest
okkar tengjast félaginu með einhverjum
hætti. Það eru núverandi eða fyrrver-
andi iðkendur, foreldrar, systkini, sjálf-
boðaliðar, þjálfarar, ömmur og afar. Öll
þekkja þau íþróttamiðstöðina að Varmá
og svæðið í kring eins og lófann á sér.
Það er samfélagslega mikilvægt fyrir
sveitarfélag eins og Mosfellsbæ að vera með
íþróttafélag eins og Aftureldingu og íþróttasvæði
sem heillar og stendur fyrir sínu.
Er íþróttamiðstöðin að Varmá í sínu besta
formi?
Við þurfum að minna okkur á að viðhald er
töff og það er ekki nóg að byggja eitthvað og
halda því svo ekki almennilega við. Í öllum þess-
um hraða í samfélaginu okkar og tækniveröld er
svo gott að hvíla stundum hugann og hreyfa sig.
Hvort sem það er sund, ganga, hjól, hlaup eða
að stunda æfingar innan Aftureldingar. Þetta
er allt hægt að gera við íþróttamiðstöðina að
Varmá.
Mosfellsbær bæði rekur íþróttamiðstöðina að
Varmá og sér um uppbyggingu svæðisins auk
þess að veita styrki inn í íþrótta- og tómstunda-
starfsemi í bænum en þar er Afturelding lang-
stærst. Við erum sammála því að þetta skiptir
máli. Við erum sammála því að þetta skiptir
miklu máli. En það þarf að halda áfram að gera
betur og hugsa til framtíðar þegar kemur að
aðstöðumálum.
Það er mikil krafa að íþróttamannvirki stand-
ist nútímakröfur. Á meðan Mosfellsbær hefur
staðið í mikilli uppbyggingu á ýmsum svæðum
hefur viðhald að Varmá því miður setið eftir.
Það sést best á búningsaðstöðu, að-
komu að húsinu og fleiru. Uppbygging
á svæðinu hefur verið í gangi á síðustu
árum en að margra mati skortir þar
skýra framtíðarsýn.
En nú er kominn tími á breyting-
ar. Við viljum hugsa stórt og móta
framtíðarsýn með Aftureldingu sem
og stjórnendum um uppbyggingu á
íþróttasvæðinu að Varmá fyrir iðkendur og alla
bæjarbúa.
Það er nauðsynlegt fyrir hvaða bæjarfélag
sem er að vera með öflugt íþrótta- og tóm-
stundastarf fyrir alla, óháð aldri, efnahag eða
félagslegum aðstæðum. Það skilar sér margfalt
til baka til samfélagsins og gerir einstaklinginn
heilsuhraustari bæði á líkama og sál. Með því að
stunda íþróttir læra börn og ungmenni að sigra
og tapa, setja sig í spor annarra og samvinnu.
Hér fyrir þónokkrum árum heyrði maður og
fann að önnur sveitafélög horfðu til íþrótta-
svæðisins að Varmá með aðdáun.
Við viljum að þannig verði það aftur. Því er
framtíðarsýn okkar að láta teikna upp allt svæð-
ið og tímasetja og búa til aðgerðaráætlun til að
fylgja eftir. Sú vinna fer fram á samráðsvett-
vangi Mosfellsbæjar og Aftureldingar. Á þeim
vettvangi er þessa dagana verið að endurskoða
forgangsröðun á svæðinu þar sem engin tilboð
bárust í útboð þjónustubyggingar nú á vordög-
um.
Við ætlum okkur stóra hluti og höfum metnað
og vilja til að bæta íþróttasvæðið að Varmá fyrir
alla bæjarbúa.
Halla Karen Kristjánsdóttir
formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar
Aftureldingarhjartað slær
sterkt hjá íbúum Mosfellsbæjar
Föstudag frá 19:30-23:00
Laugardag frá 12:00-16:00
Allur ágóði af súpusölunni fer til
kaupa á eldhúsi í skátaheimili Mosverja.
Súpuveisla í
Álafosskvosinni
Matreiðslumeistarinn Friðrik V.
galdrar fram kraftmikla kjötsúpu og
dýrindis vegansúpu á bæjarhátíðinni
Súpuskálin kostar aðeins
kr. 1.000