Fréttablaðið - 17.09.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 17.09.2022, Blaðsíða 2
Við erum auðvitað að stefna á fyrsta sætið en það er ekki auðvelt verkefni. Ásta Kristinsdóttir Aldrei eins mikil þörf, segir Ómar Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum mun keppa til úrslita á Evrópumeistaramót- inu í hópfimleikum klukkan 12 í dag en stelpurnar eiga titil að verja frá því í fyrra. mhj@frettabladid.is FIMLEIKAR Ásta Kristinsdóttir, sem hefur sannarlega verið að stíga upp með kvennalandsliðinu í fimleikum í ár og átt frábært mót, segir stelp- urnar algjörlega tilbúnar í slaginn í dag er keppt verður til úrslita á EM. Ásta segir verkefnið þó erfitt þar sem miklar breytingar hafa orðið á liðinu frá því þær unnu Evrópu- meistaratitilinn í fyrra. Alls hafa fjórar nýjar stelpur komið inn í kvennalandsliðið úr unglingalandsliðinu og ein úr blandaða unglingalandsliðinu. Engu að síður enduðu íslensku stelpurnar í þriðja sæti eftir undan- keppnina, einungis 1,625 stigum á eftir Svíunum sem leiddu keppn- ina. Þess má geta að í fyrra munaði tveimur heilum stigum á Íslandi og Svíþjóð en stelpurnar bættu upp muninn í úrslitunum og tóku Evr- ópumeistaratitilinn. Ásta segir að það megi í raun líta á undankeppnina sem bara annan æfingadag en stigin fylgja liðunum ekki inn í úrslitin. „Við erum auðvitað að stefna á fyrsta sætið en það er ekki auðvelt verkefni. Við erum búnar að vinna mikið fyrir þessu heima á Íslandi og það er að skila sér í höllinni. Við erum samt sem áður með annað lið núna og erum búnar að fara í gegn- um þó nokkrar mannabreytingar. Við mætum hins vegar ákveðnar á morgun með sama markmið í huga,“ segir Ásta. Spurð um undankeppnina segir Ásta stelpurnar mjög sáttar en með- vitaðar um að þær geti bætt sig. „Fimmtudagurinn fór bara eins og hann átti að fara. Við eigum að eiga eitthvað inni. Við vorum með helling af hnökrum,“ segir Ásta og bætir við það hefði ekki verið gott fyrir andlegu hliðina hefðu þær átt sinn besta dag í undankeppninni. „Við vitum að við eigum helling inni sem er annað en önnur lið,“ segir Ásta. Norsku stelpurnar urðu fjórðu í undankeppninni, næst á eftir Íslandi en þær áttu mögulega sinn besta dag en það dugði ekki til. „Við munum auka erfiðleikann á dýnu í úrslitunum, við vorum að spara nokkrar á fimmtudaginn vilj- andi. Svo verða líka gerðar breyting- ar á dansinum,“ segir Ásta og bætir við að það sé gott fyrir hugarfarið að vita að það séu stig inni til að sækja. „Við viljum alltaf hafa einhverja punkta til að hugsa um. Við viljum ekki koma inn á mótið og hugsa: við gerðum allt fullkomið á fimmtu- daginn, við viljum frekar vera að hugsa hvað það sé sem við þurfum að laga,“ segir Ásta. Stelpurnar tóku því rólega í gær eftir undankeppnina. „Við vöknuð- um snemma og tókum teygjuhring fyrir utan hótelið. Okkur stelp- unum var síðan boðið út að borða hjá Happ í hádeginu í gær. Það var skemmtilegt,“ segir Ásta. Spurð um hvernig líkamlega standið er á stelpunum eftir und- ankeppnina segir Ásta þær í góðu standi. „Eins góðar og við getum verið, svona miðað við,“ segir Ásta. n Miklar liðsbreytingar en markmiðið alltaf það sama Liðað geislaði af sjálfsöryggi í undankeppninni. MYND/FJÓLA ÞRASTARDÓTTIR Heilsuvara vikunnar GJAFALEIKUR bth@frettabladid.is ORKUMÁL „Það skiptir rosalegu máli að setja kraft í orkuskiptin. Ívilnanir eru fjárfestingar til framtíðar,“ segir Halla Hrund Logadóttir orkumála- stjóri. „Ef við náum ekki loftslagsmark- miðum verðum við að sæta viður- lögum sem munu kosta okkur fjár- muni. Það er betra að fjárfesta í hvötum til að hlaupa hraðar hvað varðar orkuskiptin en að aðhafast ekkert,“ segir Halla Hrund. Margir hafa gagnrýnt að í fjár- lagafrumvarpinu hafi ríkisstjórnin undir forystu Katrínar Jakobs- dóttur, sem kennir eigin f lokk við umhverfisvænar áherslur, tekið ákvörðun um að hætta ívilnunum til þeirra sem festa kaup á umhverf- isvænum bílum. Mikil losun fylgir bruna jarðefna- eldsneytis. Milljónahvatar til að kaupa rafmagns- eða tengiltvinnbíl verða senn úr sögunni samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra lagði fram á mánudag. Hafa ýmsir mótmælt þeirri ákvörðun, ekki síst þingmenn stjórnarandstöðunnar. „Við þurfum með öllum leiðum að halda áfram að styðja við orku- skiptin,“ segir Halla Hrund. Spurð hvort þessi þáttur fjárlaga- frumvarpsins hafi valdið henni von- brigðum, svarar orkumálastjóri: „Það skiptir máli að settur verði sterkur fókus á þennan málaflokk. Það er ekki tímabært að fara þá leið að draga úr stuðningi.“ n Ekki tímabært að minnka stuðning vegna orkuskipta Halla Hrund Logadóttir orkumála- stjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Ragnar Arnalds, fyrr verandi ráð- herra og alþingis- maður, er látinn, 84 ára að aldri. Ragnar lauk lög- fræði prófi frá Há- skóla Ís lands. Hann var for maður Al- þýðu banda lagsins frá 1968 til 1977. Fram kemur á vef Alþingis að Ragnar var landskjörinn alþingismaður á Norðurlandi vestra á árunum 1963- 1967 og alþingismaður fyrir það kjördæmi á árunum 1971-1999, fyrst fyrir Alþýðubandalagið og síðan Samfylkinguna eftir stofnun þess flokks. Hann var menntamála- og samgönguráðherra 1978-1979 og fjármálaráðherra 1980-1983. Eftir lifandi eigin kona Ragnars er Hall veig Thor la cius brúðu leikari. Dætur þeirra eru Guð rún og Helga. n Ragnar Arnalds er látinn Ragnar Arnalds. Milljóna afsláttur vegna kaupa á raf- magns- eða tengil- tvinnbíl verður senn úr sögunni samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. „Almennt séð er aðalatriðið í viðurkenningu á borð við þá sem er kennd við Sigríði í Brattholti það að í henni felst hvatning til að langstærsta málefni þess- arar aldar og okkar lands, meðferð á náttúruverðmætum, sé sinnt sem best. Þess hefur aldrei verið eins mikil þörf og nú,“ segir Ómar Ragnarsson sem í gær tók við Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti úr hendi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 Fréttir 17. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.