Fréttablaðið - 17.09.2022, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 17.09.2022, Blaðsíða 30
„Ég byrjaði að æfa hjá Osteo Strong vorið 2020 og varð strax mjög spennt. Þetta var eitthvað fyrir mig, einfaldleikinn heillaði mig. Fjögur tæki og síðan heim,“ segir Edda. „Ég sá sannfærandi mynd- band á netinu og smellti mér í prufutíma. Ég minntist á þetta við vinkonu mína sem var til í að koma með mér sem gerði þetta enn skemmtilegra. Ég hef prófað ofboðslega mörg tæki í gegnum tíðina en það sem mér líkar best er að hafa leiðbeinanda sem fylgist með að æfingin sé rétt gerð. Það skiptir auðvitað mestu máli,“ segir hún. Styrkir líkamann „Annað sem mér finnst frábært við OsteoStrong og gerir að verkum að maður nennir að mæta; það þarf ekki að skipta um föt eða vera í einhverjum leggings og svitna, heldur mætir maður bara, tekur á og búið. Þetta tekur svo stuttan tíma. Ég hef náttúrlega talað fyrir þessu æfingakerfi úti um allan bæ, ég finn mun, vinir mínir sjá hann líka auk þess sem líkamleg geta mín hefur styrkst mikið. Ég finn hvernig líkaminn styrkist eftir hvert skipti og tækin hjá OsteoStrong geta sömuleiðis sýnt árangurinn. Þannig getur maður fylgst með styrktaraukningunni. Það gleður mig að sjá muninn, ekki bara finna hann,“ segir Edda og bætir við: „Ég er með vefjagigt og gáttatif í hjarta þannig að ég get alls ekki stundað hvaða íþrótt sem er. Það er mjög mikilvægt fyrir mig að fara ekki fram úr mér því þá verða verkirnir lamandi. Ég hef mjög oft lent í því að fara út að ganga og fá í framhaldinu mikla verki, stundum svo mikla að ég næ ekki að labba heim. Eftir æfingar í OsteoStrong upplifi ég ekki nein eftirköst þótt ég taki á því. Ég fann fljótt hvernig verkirnir í líkamanum hjöðnuðu við ástundun sem lætur mann líða svo miklu betur andlega,“ segir Edda sem hefur glímt við vefjagigt frá því um tvítugt. Með aldrinum hefur sjúkdómurinn versnað. „Gigtin hverfur aldrei en með því að stunda æfingar hjá OsteoStrong get ég haldið verkjunum í skefjum og mér líður betur,“ segir hún. Frábært starfsfólk „Vinkona mín sem hefur komið með mér í OsteoStrong fór á heilsustofnun í Austurríki í tvær vikur um daginn. Þar er allt mælt hátt og lágt í heilsumatinu og sagði hún lækninum að hún stundaði Osteo Strong á Íslandi. Hann var ánægður með það og hvatti hana til að halda því áfram. Læknirinn í Austurríki var greinilega með puttann á púlsinum,“ segir Edda. „Það var skrítið að flytja aftur til Íslands eftir búsetu í útlöndum svona mörg ár. Mjög mikilvægt er fyrir mig að geta farið reglulega til útlanda og þá er Osteo Strong frábær staður. Starfsfólkið er sveigjanlegt við mig og það er ekk- ert mál að leggja meðlimakortið inn ef maður þarf þess,“ segir Edda sem flutti aftur á æskuslóðirnar í Vesturbænum. Hún var í KR á yngri árum og stundaði sund í Vesturbæjarlauginni. „Ég er því svolítið rótgróinn Vesturbæingur.“ Edda, eins og margir aðrir, dró sig út úr æfingum í Covid en byrjaði aftur fyrir tveimur mánuðum. „Vá, hvað ég þurfti á því að halda,“ segir hún. „Ég var fljót að ná því upp sem ég hafði misst niður og fann fljótt mun. Ég sagði vinkonu minni hversu gigtar- verkirnir hefðu minnkað og hversu fljótt það gerðist. Hún hafði sjálf fundið mikinn mun. Við ætlum að stunda OsteoStrong áfram vinkon- urnar, pössum upp á hvor aðra og höldum okkur við efnið. Ég sagði líka við manninn minn að þetta væri eitthvað sem ég ætlaði ekki að hætta að stunda,“ segir hún. „Ég elska laxveiði, það er toppurinn, en ég er líka alveg til í að fara bara út á sjó. Veiði er mín besta slökun og hefur verið það síðan ég henti fyrst öngli í Þing- vallavatn sem barn. Nú hlakka ég til að standa enn lengur við árnar næsta sumar þegar ég verð búin að safna enn meiri styrk í skrokkinn,“ segir hún. n OsteoStrong er byltingarkennt æfingakerfi sem hjálpar fólki á öllum aldri að styrkja sig. Þjálfarar leiðbeina fólki og gæta þess að æfingarnar séu rétt gerðar. MYNDIR/ERNIR OsteoStrong er á tveimur stöðum í Reykjavík, Hátúni 12 og Ögurhvarfi 2. Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Hvað er OsteoStrong: OsteoStrong er byltingar- kennt æfingakerfi sem hjálpar fólki á öllum aldri að styrkja sig. Meðlimir OsteoStrong mæta einu sinni í viku og ná í 20 mínútna heimsókn að þétta vöðva, sinar, liðbönd og bein, bæta árangur og fyrir- byggja meiðsli. Frír prufutími Það er boðið upp á fría prufutíma á miðvikudögum í Ögurhvarfi 2 og á fimmtu- dögum í Hátúni 12. Hægt er að bóka sig á osteostrong.is eða í síma 419 9200. Meðlimir OsteoStrong geta átt von á að: n Auka styrk sinn um 73% á ári að meðaltali n Auka jafnvægi um 77% á fimm skiptum n Minnka líkur á meiðslum n Bæta líkamsstöðu n Minnka verki í baki og liða- mótum n Lækka langtíma blóðsykur n Auka beinþéttni 2 kynningarblað A L LT 17. september 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.