Fréttablaðið - 17.09.2022, Síða 30
„Ég byrjaði að æfa hjá Osteo Strong
vorið 2020 og varð strax mjög
spennt. Þetta var eitthvað fyrir
mig, einfaldleikinn heillaði mig.
Fjögur tæki og síðan heim,“ segir
Edda. „Ég sá sannfærandi mynd-
band á netinu og smellti mér í
prufutíma. Ég minntist á þetta
við vinkonu mína sem var til í að
koma með mér sem gerði þetta
enn skemmtilegra. Ég hef prófað
ofboðslega mörg tæki í gegnum
tíðina en það sem mér líkar best er
að hafa leiðbeinanda sem fylgist
með að æfingin sé rétt gerð. Það
skiptir auðvitað mestu máli,“ segir
hún.
Styrkir líkamann
„Annað sem mér finnst frábært við
OsteoStrong og gerir að verkum
að maður nennir að mæta; það
þarf ekki að skipta um föt eða vera
í einhverjum leggings og svitna,
heldur mætir maður bara, tekur
á og búið. Þetta tekur svo stuttan
tíma. Ég hef náttúrlega talað fyrir
þessu æfingakerfi úti um allan
bæ, ég finn mun, vinir mínir sjá
hann líka auk þess sem líkamleg
geta mín hefur styrkst mikið. Ég
finn hvernig líkaminn styrkist
eftir hvert skipti og tækin hjá
OsteoStrong geta sömuleiðis sýnt
árangurinn. Þannig getur maður
fylgst með styrktaraukningunni.
Það gleður mig að sjá muninn, ekki
bara finna hann,“ segir Edda og
bætir við:
„Ég er með vefjagigt og gáttatif
í hjarta þannig að ég get alls ekki
stundað hvaða íþrótt sem er. Það
er mjög mikilvægt fyrir mig að
fara ekki fram úr mér því þá verða
verkirnir lamandi. Ég hef mjög oft
lent í því að fara út að ganga og fá í
framhaldinu mikla verki, stundum
svo mikla að ég næ ekki að labba
heim. Eftir æfingar í OsteoStrong
upplifi ég ekki nein eftirköst þótt
ég taki á því. Ég fann fljótt hvernig
verkirnir í líkamanum hjöðnuðu
við ástundun sem lætur mann líða
svo miklu betur andlega,“ segir
Edda sem hefur glímt við vefjagigt
frá því um tvítugt. Með aldrinum
hefur sjúkdómurinn versnað.
„Gigtin hverfur aldrei en með því
að stunda æfingar hjá OsteoStrong
get ég haldið verkjunum í skefjum
og mér líður betur,“ segir hún.
Frábært starfsfólk
„Vinkona mín sem hefur komið
með mér í OsteoStrong fór á
heilsustofnun í Austurríki í tvær
vikur um daginn. Þar er allt mælt
hátt og lágt í heilsumatinu og sagði
hún lækninum að hún stundaði
Osteo Strong á Íslandi. Hann var
ánægður með það og hvatti hana
til að halda því áfram. Læknirinn
í Austurríki var greinilega með
puttann á púlsinum,“ segir Edda.
„Það var skrítið að flytja aftur
til Íslands eftir búsetu í útlöndum
svona mörg ár. Mjög mikilvægt er
fyrir mig að geta farið reglulega
til útlanda og þá er Osteo Strong
frábær staður. Starfsfólkið er
sveigjanlegt við mig og það er ekk-
ert mál að leggja meðlimakortið
inn ef maður þarf þess,“ segir Edda
sem flutti aftur á æskuslóðirnar
í Vesturbænum. Hún var í KR á
yngri árum og stundaði sund í
Vesturbæjarlauginni. „Ég er því
svolítið rótgróinn Vesturbæingur.“
Edda, eins og margir aðrir,
dró sig út úr æfingum í Covid
en byrjaði aftur fyrir tveimur
mánuðum. „Vá, hvað ég þurfti á því
að halda,“ segir hún. „Ég var fljót
að ná því upp sem ég hafði misst
niður og fann fljótt mun. Ég sagði
vinkonu minni hversu gigtar-
verkirnir hefðu minnkað og hversu
fljótt það gerðist. Hún hafði sjálf
fundið mikinn mun. Við ætlum að
stunda OsteoStrong áfram vinkon-
urnar, pössum upp á hvor aðra og
höldum okkur við efnið. Ég sagði
líka við manninn minn að þetta
væri eitthvað sem ég ætlaði ekki að
hætta að stunda,“ segir hún.
„Ég elska laxveiði, það er
toppurinn, en ég er líka alveg til í
að fara bara út á sjó. Veiði er mín
besta slökun og hefur verið það
síðan ég henti fyrst öngli í Þing-
vallavatn sem barn. Nú hlakka ég
til að standa enn lengur við árnar
næsta sumar þegar ég verð búin að
safna enn meiri styrk í skrokkinn,“
segir hún. n
OsteoStrong er byltingarkennt æfingakerfi sem hjálpar fólki á öllum aldri að styrkja sig. Þjálfarar leiðbeina fólki og gæta þess að æfingarnar séu rétt gerðar. MYNDIR/ERNIR
OsteoStrong er á tveimur stöðum í Reykjavík, Hátúni 12 og Ögurhvarfi 2.
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Hvað er OsteoStrong:
OsteoStrong er byltingar-
kennt æfingakerfi sem hjálpar
fólki á öllum aldri að styrkja
sig. Meðlimir OsteoStrong
mæta einu sinni í viku og ná
í 20 mínútna heimsókn að
þétta vöðva, sinar, liðbönd og
bein, bæta árangur og fyrir-
byggja meiðsli.
Frír prufutími
Það er boðið upp á fría
prufutíma á miðvikudögum
í Ögurhvarfi 2 og á fimmtu-
dögum í Hátúni 12. Hægt er
að bóka sig á osteostrong.is
eða í síma 419 9200.
Meðlimir OsteoStrong
geta átt von á að:
n Auka styrk sinn um 73% á ári
að meðaltali
n Auka jafnvægi um 77% á
fimm skiptum
n Minnka líkur á meiðslum
n Bæta líkamsstöðu
n Minnka verki í baki og liða-
mótum
n Lækka langtíma blóðsykur
n Auka beinþéttni
2 kynningarblað A L LT 17. september 2022 LAUGARDAGUR