Fréttablaðið - 17.09.2022, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 17.09.2022, Blaðsíða 28
Eftir að ég átti Frosta fékk ég bara fæðingar- þunglyndi og kom inn í æfingatímabilið svo lítið þung á því. Svo eftir bara eina viku af því að syngja og hlæja þá leið mér eins og mér væri batnað. Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær söngleikinn Sem á himni. Með aðalhlutverk fara Elmar Gilbertsson og Salka Sól sem sameinuðust í gegnum söng- inn þrátt fyrir að koma frá ólíkum tónlistarbakgrunni. Elmar Gilbertsson og Salka Sól Eyfeld fara með aðal- hlutverkin í söngleiknum Sem á himni sem var frum- sýndur í Þjóðleikhúsinu í gær. Sem á himni er byggður á sænsku kvikmyndinni Så som i himmelen sem vakti mikla athygli þegar hún kom út 2004 og var síðar aðlöguð söngleikjaforminu af upp- runalegum handritshöfundum upprunalegu myndarinnar, hjón- unum Carin og Kay Pollak, með tónlist eftir Fredrik Kempe. Salka segir Sem á himni vera frábrugðinn flestum öðrum söng- leikjum sem hún hefur tekið þátt í. Salka: „Það sem gerir kannski þennan söngleik ólíkan þeim sem ég þekki er að þetta er nánast leikrit með söng.“ Elmar: „Þetta er ekki Broadway- sýning. Við erum að gera þetta á svolítið einlægan hátt. Það er boð- skapur í þessari sögu sem þarf að komast til skila.“ Að sögn Sölku er það sem kveikti mestan áhuga hennar á verkinu það að um er að ræða hversdagslega sögu sem er bæði stór og djúp. Elmar tekur undir það. Elmar: „Þetta er saga af venjulegu fólki og það eru skírskotanir í kar- akterunum við alla í þjóðfélaginu. Við erum öll að glíma við einhver áföll. Leikstjórinn Unnur Ösp nálg- ast viðfangsefnið af miklu hjarta, einlægni og heiðarleika.“ Stórt listrænt teymi tekur þátt í uppsetningunni, alls um fjörutíu manns, þar af tólf manna hljóm- sveit. Með tónlistarstjórn fer Jón Ólafsson, leikmyndin er eftir Ilmi Stefánsdóttur, lýsing er gerð af Birni Bergsteini Guðmundssyni, búningar eftir Filippíu I. Elísdóttur og danshöfundur er Lee Proud. Dreymdi um að verða leikari Elmar fer með hlutverk Daníels, heimsþekkts hljómsveitarstjóra sem flytur í lítið þorp á landsbyggð- inni til að jafna sig eftir hjartaveik- indi. Elmar er búsettur í Þýskalandi og er fastráðinn tenór við Staats- oper í Stuttgart. Þú ert einn af okkar þekktustu óperusöngvurum en þetta er þitt fyrsta hlutverk sem leikari. Hvernig var að takast á við það? Elmar: „Það var bara alveg ótrú- lega skemmtilegt og gefandi. Ég átti mér alltaf draum þegar ég var yngri um að verða leikari og þess vegna er ákveðinn draumur að rætast hjá mér að fá að standa á Stóra sviði Þjóðleikhússins og vinna með öllu því frábæra fólki sem er þar. Þetta var náttúrlega svolítið öðruvísi, þetta er öðruvísi meðgöngutími og öðruvísi nálgun en ég fékk mjög mikið út úr þessu og þetta er þrosk- andi fyrir mig.“ Setur aðra í fyrsta sæti Salka Sól fer með hlutverk Lenu, ungrar konu úr þorpinu sem tengist Daníel nánum böndum í gegnum tónlistina. Spurð um hvers konar karakter Lena hafi að geyma segir hún: Salka: „Það sem einkennir hana er að hún elst upp á þessum litla stað, ég held að margir Íslendingar tengi við það að alast upp í annað- Heilandi og frelsandi söngleikur Elmar Gilbertsson og Salka Sól fara með aðalhlutverkin í Sem á himni sem þau lýsa sem frelsandi verki. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Elmar og Salka sameinuðust í gegnum sönginn þrátt fyrir að koma úr gjörólíkum tón- listarbakgrunni. MYND/JORRI hvort litlum bæjum eða litlum hverfum. Hún hefur kannski ekki leitað mikið út fyrir þann stað en hún er of boðslega hjartahlý og á auðvelt með að ná til annarra. Fólk sækir í hana og leitar huggunar en hún hefur kannski ekki alltaf náð að hugga sjálfa sig nógu vel.“ Elmar: „Þetta er svona manneskja sem setur alltaf alla aðra í fyrsta sæti.“ Ólíkir en samstíga söngvarar Þau Elmar og Salka koma úr ólíkum áttum í tónlistinni, hann óperu- söngvari og hún poppsöngkona, en fundu þó fljótt að þau pössuðu mjög vel saman sem söngvarar. Salka segir það hafa verið frábært að leika á móti Elmari. Salka: „Við erum mjög ólíkir söngvarar og syngjum mjög mikið saman en ég held að við séum með frábæra tengingu okkar á milli. Við erum bæði svolítið blaut á bak við eyrun miðað við meðleikara okkar eins og Örn Árnason, Eddu Björg- vins og Sigga Sigurjóns. En þetta æfingaferli hefur verið svo mikil samvinna og samstaða að mér hefur aldrei liðið eins og ég sé eitthvað minni leikkona en þau.“ Elmar tekur undir orð Sölku og segist njóta þess að syngja með henni og aðlaga sig henni. Elmar: „Það hefur verið ákveðin áskorun fyrir mig að fara út fyrir þægindarammann. Óperusöngv- arar eru alltaf að vinna í fáguninni, óperan gengur út á fágaðan söng og fegurð tónlistarinnar og ég hef kannski verið svolítið hvattur til að fara á móti því í þessu verkefni. Það hefur verið rosalega þroskandi Þorvaldur S. Helgason tsh @frettabladid.is fyrir mig að fá aðeins að sleppa tök- unum.“ Hjartað í sögunni Elmar, hvernig karakter er Daníel? Elmar: „Daníel er það sem maður myndi lýsa á góðri íslensku sem fagidjót, hann er algjört nörd og það kemst ekkert annað að hjá honum en tónlist. Hans sýn á músíkina er að hún geti hjálpað fólki að komast yfir tilfinningar og hindranir. Eins og karakterinn hennar Sölku þá gleymir hann svolítið að hugsa um sjálfan sig og er að díla við áföll úr æsku. Hjartað í sögunni er svolítið þessi karakter. Hann er með ofboðs- lega stórt hjarta og kemur í þetta litla bæjarfélag þar sem enginn er í raun og veru tilbúinn fyrir svo stórt hjarta.“ Salka tekur í sama streng og segir það hafa komið skýrt fram á einu af lokarennslum sýningarinnar hversu stórt hjarta sýningarinnar er. Salka: „Eftir rennslið í gær þá fann ég bara hvað það skilaði sér vel til áhorfenda, hvernig þau horfðu á allt þetta fólk í kórnum opnast. Þetta var bara eins og spilaborg eða keilur að falla.“ Læknaðist af fæðingarþunglyndi Sem á himni fjallar að miklu leyti um kraft tónlistarinnar og segist Salka hafa fundið það skýrt á eigin skinni hversu heilandi tónlist og söngur geta verið. Salka: „Það sem er svo ótrúlega fallegt í þessu er að ég held að fólk sem stundar kórstarf eigi eftir að finna hvað það er dýrmætt að vera í félagsskap og þenja raddböndin.“ Í byrjun árs eignaðist Salka son- inn Frosta með eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Arnari Frey Frostasyni, en fyrir áttu þau hjónin dótturina Unu Lóu. Salka: „Eftir að ég átti Frosta fékk ég bara fæðingarþunglyndi og kom inn í æfingatímabilið svolítið þung á því. Svo eftir bara eina viku af því að syngja og hlæja þá leið mér eins og mér væri batnað. Þá var ég búin að fara í alls konar meðferðir og ég veit ekki hvað. Þetta var bara eins og heilun og það var svo skrýtið að vera að vinna í verki sem fjallar bókstaf- lega um þetta og upplifa það á eigin skinni.“ Verkið sem þjóðin þarf Magnús Geir Þórðarson þjóðleik- hússtjóri sagði nýlega í viðtali við Fréttablaðið að hann hefði þá trú og tilfinningu að Sem á himni væri akkúrat verkið sem þjóðin þyrfti í kjölfar Covid. Elmar og Salka segjast bæði vera sammála því. Salka: „Hún er á einhvern hátt frelsandi, mér líður eins og fólk muni labba út og vilja opna sig. Ég held að við séum öll svolítið dösuð og skrýtin á því eftir þetta tímabil.“ Elmar tekur undir orð Sölku og segist upplifa mikla núvitund í sýningunni. Salka: „Ég vil hvetja fólk sem hefur áhuga á söngleikjum, fólk sem hefur áhuga á leikhúsi og líka fólk sem hefur það ekkert endilega til að sjá hana. Það er ákveðinn hópur sem gæti haft einhvers konar for- dóma fyrir söngleikjum en ég held að sá hópur gæti líka haft gaman af þessu.“ Elmar: „Það er vonandi að fólk sem kemur að sjá þessa sýningu og hefur átt sér draum um að vera í kór eða langar að fara í kór láti bara slag standa og drífi sig.“ n 28 Helgin 17. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.