Fréttablaðið - 17.09.2022, Blaðsíða 32
Þetta
eru
ofsalega
skemmti-
leg ferða-
lög. Ef fólk
ætlar að
ferðast í
húsbíl á
það endi-
lega að
hafa með
sér góð
hjól eða
rafmagns-
hjól.
Guðmundur
Hilmarsson
gummih
@frettabladid.is
Sirrý Ágústsdóttir heyrði
fyrst af krafti túrmeriks árið
2015. Þá var hún í seinni
krabbameinsmeðferð sinni
og leitaði meðal annars
lausna við bjúgsöfnun. „Ég
er enn bólgusækin og fæ
auðveldlega bjúg og liðverki.
Þar finnst mér hjálpa mjög
að taka túrmerik og önnur
bætiefni,“ segir hún.
Sirrý greindist fyrst með leg-
hálskrabbamein árið 2010. „Ég
var nýbúin að eiga fjórða barnið
mitt svo þetta var ákveðið áfall,“
segir Sirrý. Fimm árum síðar
tók krabbameinið sig upp aftur.
„Ég fór í tvær þungar meðferðir
sem reyndu mjög á kroppinn.
Eftir svona harkalega meðferð
fer maður til dæmis á ótímabært
breytingaskeið. Einnig eykur með-
ferðin á beinþynningu og orsakar
bólgur í líkamanum. Það fylgja
miklir liðverkir og svefnraskanir.
Einnig fylgir léleg upptaka á bæti-
efnum í maga. Ég hætti til dæmis
alveg að framleiða B12 og þarf að
hafa fyrir því að halda vítamína-
og steinefnamagni í líkamanum í
lagi.“
Kynntist krafti túrmeriks
„Ég heyrði fyrst af túrmeriki
2015 frá vinkonu minni, Mörtu
Ernstsdóttur hlaupara og byrjaði
að taka það inn í olíuformi og í
hylkjum. Þegar ég prófaði túr-
merik frá ICEHERBS fann ég
hvað það fór vel í magann á mér
og mér leið vel af því. Túrmerik-
hylkin frá ICEHERBS eru kröftug
og ég fann mun á mér á sjötta eða
sjöunda degi, aðallega í bólgu-
söfnun. Hylkin fannst mér virka
vatnslosandi og ég fann fyrir mun
minni þrota í fingrum og fótum.
Áður var ég í vandræðum með að
hafa giftingarhringinn á mér. Ég
var með æxli vinstra megin upp
við sogæð og síðan hefur sogæða-
kerfið virkað illa. Ég bólgna því
almennt meira í vinstri helmingi
líkamans og túrmerik virðist
hjálpa mér að halda bólgum niðri.
Margar konur, og örugglega karlar
líka, glíma við bólgur og eru við-
kvæm fyrir bjúgsöfnun. Ég get
ímyndað mér að túrmerik frá ICE-
HERBS geti verið hjálplegt fyrir
mjög marga.“
Hraustari með ICEHERBS
„Regluleg inntaka bætiefna
hjálpar mér að vinna á sýkingum.
Eftir meðferðirnar er ég með
lélegt ónæmiskerfi, enda drepur
meðferðin hvítu blóðkornin sem
vernda okkur gegn ýmsum sýk-
ingum. Þarna skiptir auðvitað líka
máli gott og heilbrigt mataræði og
svo hreyfing.“
Lífskraftur Sirrýjar
Sirrý stofnaði Lífskraft fyrir
rúmum tveimur árum. „Lífskraftur
er góðgerðarfélag sem hefur
staðið á bak við krabbameins-
deildina og meðal annars safnað
fyrir endurbótum á tækjakosti.
Við fórum í göngu á Hvannadals-
hnjúk og Vatnajökul fyrir ekki
svo löngu síðan. Ef faraldurinn
leyfir kynnum við fljótlega næsta
verkefni.
Ég sæki mikið í hreyfingu og
útivist og finn að það skiptir miklu
máli að taka rétt bætiefni þegar
ég er undir álagi. Bætiefnin frá
ICEHERBS virðast hafa þau áhrif
að ég verð sjaldan, eða eiginlega
aldrei veik. Þegar við Snjódrífurnar
vorum að æfa fyrir Lífskraft fann
ég augljósan dagamun á mér ef
ég gleymdi að taka inn túrmerik
og önnur bætiefni. Ég fékk ýmist
meiri bjúg, var stanslaust að fá
sinadrætti, var lengur að jafna
mig í vöðvunum eftir æfingar og
var almennt þreyttari. Orkan var
einfaldlega minni. Ég finn líka
mikinn mun á mér í vinnunni og
heima, en ég starfa hjá Epal og
stend í fæturna allan daginn. Svo
er ég með stórt heimili. Það skiptir
því miklu fyrir mig að gera allt sem
ég get til þess að vera heilsuhraust.
Mér líður vel í dag og ég lifi ekki
í ótta við að krabbameinið taki sig
upp að nýju. Ég nýt þess að vera til
alla daga og hef gaman af því að
stunda útivist og hreyfa mig. Heils-
an skiptir mig gríðarlega miklu
máli upp á að njóta þess að vera til,
að vera heilbrigð og hraust. Ég finn
líka að ég er öflugri ef ég er dugleg
að nýta mér þau úrræði sem mér
standa til boða, eins og að taka
inn bætiefni sem hafa áhrif á mína
heilsu.“
Árangursrík blanda
Túmerik hefur verið notað í
þúsundir ára til þess að
vinna gegn ýmsum
bólgum og sjúkdómum
en virka efnið kúrkúmín
er talið hafa sterk bólgu-
eyðandi og andoxandi
áhrif. Þá hafa bólgu-
eyðandi eiginleikar
túmeriks gefið sér-
staklega góða raun gegn
gigtarsjúkdómum og lið-
verkjum auk þess sem það
örvar blóðflæði og hefur
góð áhrif á húðvandamál
og sár. Blandan inniheldur
svartan pipar sem margfaldar
upptöku túrmeriks. Túrmerik
blandan frá ICEHERBS inni-
heldur fjallagrös en virkni
þeirrar lækningarjurtar hefur
gefið henni viðurnefnið ginseng
Íslands. Í fjallagrösum er að finna
svokallaðar betaglúkan trefjar sem
eru taldar aðstoða við þyngdartap,
draga úr bjúg, bæta meltingu og
styrkja þarmana, sér í lagi ristilinn.
Þau hafa meðal annars reynst
árangursrík gegn slímmyndun og
óæskilegum bakteríum. Fjalla-
grösin gera ICEHERBS blönduna
að ofurblöndu en þau hafa öldum
saman verið notuð sem náttúru-
leg og viðurkennd lækningajurt á
Íslandi. Þau eru rík af steinefnum
og eru talin auka skilvirkni í upp-
töku næringarefna sem gera bæði
innihaldsefnin sterkari saman. n
ICEHERBS fæst í öllum betri mat-
vöruverslunum, apótekum og
heilsuvöruverslunum. Sjá nánar á
iceherbs.is.
Fann lífskraft með túrmerikinu
Sirrý segir túrmerik hjálpa við að halda niðri bólgum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Adolf Ingi Erlingsson og
eiginkona hans, Þórunn Sig-
urðardóttir, hafa notið lífsins
á Norður-Spáni og í Portúgal
undanfarnar vikur en í tilefni
60 ára afmælis Adolfs þann
8. þessa mánaðar ákváðu
þau hjónin að fara í mánaðar-
reisu, sem er rétt hálfnuð.
Dolli og Systa, eins þau eru oftast
kölluð, leigðu sér húsbíl og tvö raf-
magnshjól og hafa þvælst um í afar
fallegu umhverfi á Norður-Spáni
og eru nú komin til Portúgals.
„Fyrir fjórum árum þegar við
héldum upp á þrjátíu ára brúð-
kaupsafmæli okkar leigðum við
okkur húsbíl, keyptum hjól og
ferðuðumst um Toskana á Ítalíu
og Króatíu. Okkur fannst þetta
svo rosalega skemmtilegt að við
erum búin að vera að bíða eftir
því að komast aftur í svona ferð.
Núna ákváðum við að taka Spán
og Portúgal,“ segir Adolf, sem um
árabil var fastagestur á skjáum
landsmanna sem íþróttafrétta-
maður á RÚV.
Adolf segir að þessi ferðamáti sé
afar skemmtilegur.
„Það skiptir mjög miklu að
vera með hjól í svona ferð. Í þetta
skipti ákváðum við að leigja okkur
rafmagnshjól sem gerir það að
verkum að við förum lengra og
víðar og gerir okkur kleift að fara
upp brekkur sem maður mundi
ekki leggja í að fara í á venjulegu
hjóli. Við vorum til að mynda í
litlu fiskiþorpi, Cudillero, sem er á
norðurströnd Spánar. Þetta er eitt
skemmtilegasta og fallegasta svæði
sem ég hef komið á og minnir mann
svolítið á Cinque Terre-þorpin á
Ítalíu en er vinalegra og með færri
ferðamenn. Brekkan þar upp er sú
brattasta sem ég hef tekist á við.
Húsbíll og hjól í afmælisferðinni
Adolf og Þórunn
hafa verið
saman í 44 ár og
njóta nú lífsins
á Íberíuskag-
anum.
MYND/AÐSEND
Þótt við værum á rafmagnshjóli
ætlaði ég varla að hafa brekkuna
og ég þurfti að halla mér fram
svo hjólið prjónaði ekki. Maður
kemst yfir svo miklu meira svæði
með hjólunum, sér miklu meira,
hreyfingin verður meiri og ég mæli
svo sannarlega með þessum ferða-
máta. Þetta eru ofsalega skemmti-
leg ferðalög. Ef fólk ætlar að velja að
ferðast í húsbíl þá á það endilega
að hafa með sér góð hjól eða raf-
magnshjól,“ segir Adolf Ingi.
Rómantískt og skemmtilegt
Adolf segir að það sé mjög þægilegt
að ferðast í húsbílnum.
„Það er frekar dýrt að leigja
svona húsbíla en í vor datt ég inn
á góða síðu, eins konar Airbnb
fyrir húsbíla, og við fengum bílinn
á hálfvirði miðað við það sem
maður fær á bílaleigum. Það er fín
aðstaða í bílnum og gott að sofa í
honum. Að vísu er ekki loftræsting
svo þegar hitinn var yfir 30 stig
fyrstu dagana þá svitnaði maður
svolítið mikið. Við eldum ekki
mikið í bílnum en borðum heil-
mikið í og við hann. Að sitja úti á
kvöldin fyrir utan bílinn og borða
í rólegheitum er rómantískt og
skemmtilegt. En auðvitað förum
við líka af og til út að borða. Þessi
ferðamáti gefur manni svo mikið
frelsi,“ segir Adolf Ingi.
„Við Systa þolum hvort annað
alveg þokkalega í þessu litla rými
í bílnum,“ segir Adolf en þau
skötuhjú hafa verið saman í 44 ár.
„Maður þarf svolítið að læra og
aðlagast því að umgangast svona
rými. Það er ekki pláss fyrir báða
aðila að vera að gera eitthvað. Við
höfum hins vegar komið okkur
upp ákveðinni rútínu til vera ekki
að þvælast fyrir hvort öðru. Hlutir
sem lenda á mér eru til dæmis
að tæma klósettið, fylla á vatnið
og sjá um rafmagnið en Systa sér
meira um að reyna að halda öllu í
horfinu í bílnum. Vanalega veljum
við okkur tjaldstæði með tilliti
til þess að geta hjólað í bæina eða
farið í góða hjólatúra. Það eru fín
tjaldstæði úti um allt og ég held að
Google Maps hafi bjargað mörgum
hjónaböndum,“ segir Adolf og
hlær.
„Nú þarf ekki annar aðilinn að
vera með kortið á lofti til að reyna
að rata réttu leiðina. Stundum
erum við ekki búin að ákveða hvar
eigi að leggja bílnum fyrr en langt
er liðið á daginn. Við reynum alltaf
að finna svæði með sundlaug. Ég
hef verið duglegur og hef synt í
hálftíma á hverjum morgni. Við
sameinum flakk, hreyfingu, að
sjá marga fallega hluti og upp-
lifum góðan mat og drykk. Þetta er
geggjað líf.“ n
4 kynningarblað A L LT 17. september 2022 LAUGARDAGUR