Fréttablaðið - 17.09.2022, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 17.09.2022, Blaðsíða 66
Ég mæli með að fólk reyni að gera sem mest sjálft þegar halda skal veislu og njóti þess að útbúa sælkera- rétti. Það er svo gaman að útbúa kræsingarnar sjálfur, skreyta með þeim og svo er það líka margfalt hagstæðara. Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is 100% náttúruleg hvannarrót 60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI hvannarrót Leyndarmál hvannarrótar Loft í maga? Glímir þú við meltingartruflanir? Næturbrölt Eru tíð þvaglát að trufla þig? Fæst í næsta apóteki, heilsuvöru- verslun, Hagkaupum og Nettó. Svava B. Sigurjónsdóttir, ástríðukokkur með meiru, hefur vakið eftirtekt fyrir sælkeraréttina sína á veislu- borðum, bæði sínum eigin og þegar hún hefur tekið sig til og aðstoðað vini og vandamenn. Þegar góða veislu gjöra skal skiptir ávallt máli að vera með ljúffengar veitingar sem slá í gegn. Það er alltaf jafn gaman þegar gestirnir tala um hvað maturinn var góður og enn skemmtilegra þegar þeir heillast af framsetningunni. „Eitt það f lottasta í veisluhaldi í dag er að vera með rómverskt alls- nægtaborð þar sem kræsingarnar hreinlega f læða um allt borð og náttúran fær að njóta sín með. Heimalagaðar kræsingar, ostar, kryddpylsur, ávextir og sætir bitar fá að njóta sín og gleðja bæði augu, munn og maga,“ upplýsir Svava. Að undanförnu hefur hún útbúið nokkur slík veisluborð með glæsilegri útkomu og heillað gesti upp úr skónum. Eins og áður sagði er hún þekkt fyrir sínar sælkera- veislur og þegar hún heldur matar- veislu standa gestirnir ávallt á gati enda stórfengleg veisluborð sem hún býður upp á. Auk þess sem Svava hefur gott auga fyrir skreyt- ingum og er mikill fagurkeri. Einn réttur hefur slegið rækilega í gegn og gestirnir hreinlega slefað yfir en það er hið fræga nautatacos að hætti Svövu. Í raun má segja að þetta sé frægasta nauta-tacos sem sögur fara af. „Ég mæli með að fólk reyni að gera sem mest sjálft þegar halda skal veislu og njóti þess að útbúa sælkerarétti. Það er svo gaman að útbúa kræsingarnar sjálfur, skreyta með þeim og svo er það líka margfalt hagstæðara,“ segir Svava, en hún hefur haldið ófáar veislurnar fyrir sínu nánustu þar sem veitingarnar eru allar hennar. Við fengum Svövu til að deila með lesendum uppskriftinni að hinu ómótstæðilega og ljúffenga nauta-tacoi sem við mælum svo sannarlega með að þið prófið. Hér er uppskriftin að nauta- tacosinu og öllum sósunum sem vert er að bjóða upp á með til hliðar. Nautataco að hætti Svövu Um 100 stykki 2-3 pakkar litlar tréklemmur (fást hjá A4), notaðar til að klemma taco-ið saman 4 pakkar stórar tortillur (litlar tor- Frægasta nauta-taco sem sögur fara af tillur eru skornar út úr stórum tor- tillum, náið 4 út úr einni stórri. 4 pakkar eru 96 litlar tortillur, ef þið viljið gera rúmlega 100, þá kaupið þið 5 pakka) Salat inn í tortillurnar 1 stk. rauðkálshaus, meðalstór og skorinn í strimla 2 pokar spínat, niðurskorið 1 poki gulrætur, raspaðar í grófa bita með rifjárni eða mandolíni 2 box kóríander, léttsaxað Þegar búið er að skera og saxa allt hráefnið er því blandað vel saman í stórri skál. Salatsósa Safi úr tveimur ferskum límónum 3 msk. fiskisósa Chiliflögur eftir smekk 2 msk. hrásykur Setjið í skál og blandið vel saman. Setjið síðan salatsósuna út á salatið og geymið í ísskáp í nokkra tíma. Nauta-tacoið hennar Svövu er eitt það frægasta sem sögur fara af. Það bráðnar í munni og fólk missir sig hrein- lega því það er svo ómótstæði- lega ljúffengt. Svava er mikill matgæðingur og fagurkeri og þegar góða veislu gjöra skal fer hún iðulega alla leið og borðin svigna undir kræsingum. MYNDIR/AÐSENDAR Nautakjötið 1,2-1,4 kg nautalund (mjög góðar nautalundir fást í Bónus, frosnar, þíða þarf nokkrum dögum fyrir eldun) ¼ bolli teriyaki-sósa eða eftir smekk og stærð lundar Pipar eftir smekk Byrjið á að marínera nautalundina með teriyaki-sósu og kryddið með pipar. Látið marinerast í um það bil klukkustund. Grillið lundina þannig að hún verði medium rare eða nái um 54°C hita. Kælið lund- ina og skerið síðan í litla strimla. Sælkerasósa inn í tortillur 1 stk. flaska La choy teriyaki-sósa 1 stk. flaska Santa Maria teriyaki- sósa með engifer og sesam. Setjið sósurnar saman í góða skál eða könnu og blandið vel saman. Samsetningin á taco-inu Hér kemur að smá handavinnu og tilfinning fyrir hversu mikið magn á að fara inn í hverja tortillu svo hægt sé að klemma þær saman með góðu móti. Þegar þið eruð búin að setja saman örfáar tortillur gengur þetta yfirleitt alveg eins og í sögu því þið finnið ótrúlega fljótt hve mikið magn þarf í hverja. Byrjið á að setja smá salat inn í hverja tortillu, þá nautakjöts- strimla og loks sósu. Mikilvægt að setja lítið af sósu inn í tortillurnar svo þær blotni ekki of mikið og bera heldur fram auka sósur í skálum til hliðar. Klemma saman hliðarnar og raða á disk. Pakka vel inn svo þær haldist ferskar og kæla þar til þær eru bornar fram. Það er ekkert mál að undirbúa allt hrá- efnið deginum áður. Tortillurnar þarf þó að setja saman samdægurs til að þær séu sem ferskastar. Gott að bera tortillurnar fram með chilimajó, afganginum af sósunni sem fer í tortillurnar, teriyaki-sósu, til dæmis frá Santa María og jafnvel hoisin-sósu í skálum til hliðar. Ef fólk hefur áhuga á að bera fram heimalagaða sósu með tortil- lunum læt ég uppskrift fylgja með. Heimagerð chilisósa 1 dós majónes (má nota sýrðan rjóma og gríska jógúrt ef vill) 1 krukka chilipaste í krukku eftir smekk. Byrja með lítið og bæta í eftir þörfum Nokkrir dropar Sriracha-sósa 1 tsk. sesamolía. Smakka til og bæta í sósuna ef ykkur finnst vanta meira. Verið óhrædd að gera sósuna eftir ykkar höfði, smakka til og bæta í þar til ykkur finnst hún ómót- stæðilega góð og njótið. n 6 kynningarblað A L LT 17. september 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.