Fréttablaðið - 17.09.2022, Blaðsíða 33
2022 - 2025
Háskólinn í Reykjavík | Menntavegur 1 | 102 Reykjavík | S: 599 6200 | hr.is
Háskólinn í Reykjavík hefur haslað
sér völl sem öflugur rannsóknaháskóli
á alþjóðavísu. Háskólinn stenst
samanburð við erlenda háskóla í
fremstu röð og fræðafólk skólans hefur
náð framúrskarandi árangri. Kennsla
og rannsóknir við Háskólann í
Reykjavík mótast af sterkum tengslum
við atvinnulíf og samfélag. Lögð
er áhersla á þverfaglegt samstarf,
alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og
góða þjónustu.
HR er eftirsóknarverður vinnustaður
og þar er lögð áhersla á fyrsta
flokks aðstöðu í nærandi umhverfi,
persónuleg samskipti, framsæknar
kennsluaðferðir og nútímalega
starfshætti. HR fagnar fjölbreytileika
og mikið er lagt upp úr jafnrétti og
virðingu fyrir einstaklingum og
störfum þeirra. Nemendur Háskólans
í Reykjavík eru um 4.000 í sjö deildum
og starfsfólk er um 300 talsins, auk
350 stundakennara.
Háskólinn í Reykjavík
leitar að leiðtogum
Forstöðumaður
Opna háskólans í HR
Háskólinn í Reykjavík leitar að metnaðarfullum og lausna
miðuðum leiðtoga í starf forstöðumanns Opna háskólans.
Starfið felst í umsjón með og ábyrgð á Opna háskólanum,
áætlanagerð, yfirsýn fjárhags og tengdri eftirfylgni. Tækifæri
gefast til nýsköpunar og þróunar nýrra verkferla til að bæta
skipulag og upplýsingagjöf. Kostur ef viðkomandi hefur
reynslu af sölu og markaðsmálum. Brennandi áhugi á
endurmenntun, símenntun og starfsþróun er skilyrði.
STARFSSVIÐ
– Fjárhagsáætlanir, viðskiptaþróun, nýsköpun og
tekjuöflun Opna háskólans.
– Gerð markaðsáætlana og kynningarefnis í samstarfi
við markaðs og samskiptasvið HR.
– Samskipti við viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila
innan sem utan HR.
– Upplýsingagjöf til stjórnenda, starfsfólks og nemenda skólans.
Nánari upplýsingar veita Ragnhildur Helgadóttir rektor (ragnhildurh@ru.is) og Ester Gústavsdóttir mannauðsstjóri (esterg@ru.is).
Umsóknum skal skilað á ráðningarvef Háskólans í Reykjavík, jobs.50skills.com/ru/is, eigi síðar en 9. október 2022.
Á ráðningarvef HR eru einnig ítarlegri upplýsingar um þessi störf. Fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Forstöðumaður
kennslusviðs
Háskólinn í Reykjavík leitar að metnaðarfullum og drífandi
einstaklingi í stöðu forstöðumanns kennslusviðs. Hlutverk
kennslusviðs er að leiða þróun kennslumála við háskólann,
móta og taka þátt í að framfylgja kennslustefnu HR, veita
stuðning við kennslu og hafa eftirlit með gæðum náms.
Þá ber kennslusvið ábyrgð á stundatöflu og próftöflugerð,
skráningum nemenda, prófahaldi og umsjón með braut
skráningar skírteinum nemenda.
STARFSSVIÐ
– Mótun, þróun og eftirfylgni kennslustefnu í samvinnu við
yfirstjórn HR og námsráð.
– Dagleg stjórnun kennslusviðs, verkefnastýring, fjármál
og starfsmannahald.
– Framþróun kennsluhátta, mælingar og eftirlit með gæðum
náms við HR, mótun og þróun almennra viðmiða varðandi
gæði, samræming verklags vegna gæðaúttekta og eftirfylgd
gæðamælikvarða.
– Ábyrgð á kennslu, stundatöflu og prófakerfum og
þátttaka í stafrænni þróun.
– Ábyrgð á skipulagi, mati á námi, innritun, prófum og
brautskráningu nemenda.
– Samskipti og upplýsingamiðlun til kennara, stjórnenda og
starfsfólks háskólans varðandi kennslu og skipulagsmál.
– Samstarf við aðila innan og utan skólans vegna málefna er
tengjast kennslu, svo sem tölulegra upplýsinga, viðurkenninga
námsbrauta, vottana og úttekta.
Forseti tæknisviðs
Starf forseta tæknisviðs Háskólans í Reykjavík er laust til
umsóknar. Í Háskólanum í Reykjavík starfa tveir sviðsforsetar
sem ásamt rektor eiga frumkvæði að mótun stefnu fyrir
háskólann, hafa umsjón með innleiðingu hennar og ábyrgð
á akademískri uppbyggingu innan HR. Forsetar fræðasviða
eru staðgenglar rektors. Umfangsmikil alþjóðleg reynsla í
akademísku starfsumhverfi er mikill kostur í þessu starfi.
STARFSSVIÐ
– Stuðla að samræmi milli stefnu HR, tæknisviðs og deilda á sviðinu.
– Stuðningur við rekstur deilda sviðsins.
– Langtíma og árleg fjárhagsáætlun tæknisviðs og deilda þess.
– Kennsla og rannsóknir háskólans í samráði við rektor og í
samvinnu við sviðsforseta samfélagssviðs.
– Samráð við deildir og aðrar einingar HR um þróun stoðþjónustu.
– Samskipti við aðila innan og utan háskólans.
Framkvæmdastjóri
rekstrar
Háskólinn í Reykjavík leitar að árangursdrifnum og framsýnum
framkvæmdastjóra rekstrarsviðs HR til að leiða þau svið er
snúa að rekstri innviða skólans, þar með töldum fjármálum,
upplýsingatækni, fasteignum, Opna háskólanum í HR og
fjölbreyttri nemendaþjónustu. Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
tekur virkan þátt í stefnumótun og þróun HR og hefur leiðandi
hlutverk í að tryggja fjárhagsstöðu og rekstrarhagkvæmni
háskólans í heild og tengdra félaga.
STARFSSVIÐ
– Mótun framtíðarsýnar og stefnu sinna eininga, í takti við stefnu
Háskólans í Reykjavík og annarra eininga.
– Fjárhagsáætlun háskólans til hvers árs og langtíma ásamt
yfirumsjón með fjármálum háskólans í heild.
– Umsjón með rekstrarsviðum, nemendaþjónustu og margvíslegri
annarri stoðþjónustu innan skólans.
– Ábyrgð á upplýsingatækni, það er framþróun kerfa, hugbúnaðar
þróun, upplýsingaöryggi, gagnastýringu, gagnavörslu og
upplýsingatækniþjónustu.
– Ábyrgð á rekstri og viðhaldi fasteigna, útdeilingu húsnæðis
og framkvæmdum.
– Fjármögnun, uppbygging og þróun landsvæðis og bygginga.
– Samstarf við hagsmunaðila innan og utan háskólans.
Atvinnublaðið