Fréttablaðið - 17.09.2022, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 17.09.2022, Blaðsíða 18
Við erum með góðan hóp og að fara spila við hörkulið. Þetta verður gott einvígi Davíð Snorri Jónasson Kvennalið Íslands hefur þrisvar orðið Evrópumeistari. Jamaíka er einu sæti fyrir ofan Ísland á heimslista FIFA. Vita allir hvað hann getur gefið þessu liði Arnar Þór Viðars- son, landsliðs- þjálfari íslenska karlalandsliðsins 18 Íþróttir 17. september 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 17. september 2022 LAUGARDAGUR helgifannar@frettabladid.is FÓTBOLTI Karlalandslið Íslands í flokki 21 árs og yngri mætir Tékk- landi í umspilsleikjum um sæti í lokakeppni Evrópumótsins á næsta ári. Davíð Snorri Jónasson, þjálfari liðsins, er brattur fyrir komandi verkefni. Fyrri leikur liðanna fer fram á Vík- ingsvelli á föstudag en sá síðari ytra fjórum dögum síðar. „Þetta leggst mjög vel í mig. Maður er búinn að bíða lengi eftir þessum leikjum,“ segir Davíð í samtali við Fréttablaðið. „Við erum með góðan hóp og að fara að spila við hörkulið. Þetta verður gott einvígi.“ Davíð telur Ísland eiga góða mögu- leika gegn Tékkum en tekur þó fram að liðið sé afar sterkt. „Tékkneskur fótbolti er kannski ekki mest á radarnum hér á Íslandi. Þeir spiluðu góða leiki við England, unnu örugga sigra heima og fóru í útileiki sem voru erfiðir og unnu góða sigra.“ Kristall Máni Ingason, leikmaður Rosenborg, er hluti af hópnum sem mætir Tékkum. Hann hefur verið að glíma við meiðsli og komu tíðindin því nokkuð á óvart. „Tímalínan með meiðslin hans er svolítið þannig að það er hver dagur sem skiptir máli. Hann kemur hing- að heim og við munum skoða hann þegar þar að kemur.“ Nokkrir leikmenn sem eru í hópi A-landsliðs karla fyrir komandi verk- efni þar eru gjaldgengir í U-21 árs liðið. Það er hugsanlegt að einhverjir þeirra verði kallaðir yfir í yngra liðið fyrir seinni leikinn gegn Tékkum. Það fer eftir því hvort A-landsliðið eigi möguleika fyrir leik sinn gegn Albaníu í Þjóðadeildinni. Hann fer fram sama dag. „Þegar við erum að undirbúa svona er ýmislegt rætt, en við erum ekki komnir í það mikil smáatriði. Eins og staðan er núna leggjum við upp með að klára gluggann svona,“ segir Davíð og bætir við að sam- bandið á milli hans og þjálfara A- landsliðsins sé gott. Davíð segir mikilvægt að fólk fylli stúkuna í fyrri leiknum hér heima. „Það var þvílíkt gaman að spila hér heima í júní fyrir framan frábæra áhorfendur. Hér eru tvö lið að fara að spila úrslitaleik og það er eitthvað sem fólk vill ekki missa af.“ n Möguleikinn sé til staðar gegn góðum mótherja Fram undan eru afar mikilvægir umspilsleikir hjá undir 21 árs landsliði Íslands Landsliðshópur íslenska karla- landsliðsins í knattspyrnu fyrir komandi verkefni liðsins undir lok septembermánaðar var opinberaður í höfuðstöðv- um Knattspyrnusambands Íslands í gær. Reynslumiklir leikmenn bætast við hópinn. aron@frettabladid.is FÓTBOLTI Íslenska landsliðið leikur tvo leiki í komandi verkefni. Æfingaleik gegn Venesúela í Austur- ríki og þá mætir liðið Albaníu á úti- velli í Þjóðadeild UEFA, leikur sem gæti orðið úrslitaleikur um það hvort liðið fái sæti í A-deild næsta árs. Aron Einar Gunnarsson, Guð- laugur Victor Pálsson og Alfreð Finnbogason koma allir inn á nýjan leik í landsliðið eftir mismikla fjar- veru en það er kærkomin viðbót í hópinn fyrir Arnar. Fær fyrirliðabandið á ný Áhugaverðasta viðbótin er án efa Aron Einar Gunnarsson sem mun bera fyrirliðabandið á ný í íslenska landsliðinu. Aron Einar hefur ekki spilað landsleik síðan í júní á síðasta ári. Um miðbik síðasta árs komu fram ásakanir á hendur honum og kollega hans Eggerti Gunnþór Jóns- syni, leikmanni FH. Aron og Eggert voru sakaðir um að hafa nauðgað konu í Kaup- mannahöfn árið 2010 og kyn- ferðisbrotamál höfðað gegn þeim. Ríkis sak sóknari hefur nú staðfest niður fellingu Héraðs sak sóknara á málinu og því ekkert sem meinar Arnari Þór, miðað við gildandi reglur KSÍ, að velja Aron á ný í lands- liðið. Íslenska landsliðið undanfarið ár hefur verið meðal yngstu landsliða Evrópu. Arnar Þór segir áskoranir felast í því, það hægi á þróuninni hjá liðinu. „Þetta hefur oft ekki verið besta blandan, það hefur vantað reynslu- meiri leikmenn inn með þessum yngri. Þessir reyndari leikmenn sem koma inn núna jafna þessa blöndu,“ sagði Arnar Þór á blaðamannafundi gærdagsins. „Þetta er kjörið fyrir okkur því reynslumeiri leikmenn koma til með að hjálpa þeim yngri innan sem utan vallar.“ Það stóð ekki á svörum hjá Arn- Mun fá fyrirliðabandið á nýjan leik Aron Einar Gunnarsson, snýr aftur í íslenska lands- liðið í komandi verkefni liðsins undir lok sept- ember. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK ari er hann var spurður hvað Aron Einar gæfi landsliðinu í endur- komunni. „Aron Einar var að sjálf- sögðu í mínum fyrstu hópum og það vita allir hvað hann getur gefið þessu liði. Hann hefur verið fyrirliði liðsins í mörg ár og hvað reynsluna varðar getur hann gefið mikið af sér.“ Lið fram yfir leikmann Önnur stór frétt varðandi ný til- kynntan landsliðshóp er sú að Albert Guðmundsson, leikmaður ítalska félagsins Genoa, er ekki í hópnum. Arnar Þór talaði hreint og beint um stöðu Alberts í lands- liðinu. Hann er ekki ánægður með hugarfar leikmannsins. „Ég var bara mjög óánægður og svekktur með hugarfar Alberts í síð- asta landsliðsverkefni. Fyrir mér er það þannig að það felst í því mikill heiður að spila fyrir íslenska lands- liðið, það kallar á hundrað prósent hugarfar alla daga og alltaf. Annað hvort ertu hundrað prósent með í því sem við erum að gera eða ekki.“ Arnar lokar þó ekki á þann möguleika að Albert verði í hans landsliðshópum í framtíðinni. „Við þurfum ekki að horfa langt aftur í tímann til að sjá að allir bestu leik- menn landsliðsins undanfarin ár hafa alltaf sett frammistöðu liðsins fram yfir sína eigin frammistöðu. Það er eina leiðin til að ná árangri.“ Hefur trú á fremstu mönnum Framherjastaðan hefur verið haus- verkur fyrir íslenska landsliðið undanfarið og í landsliðshópnum voru opinberaðir þrír hreinræktaðir framherjar landsliðsins, bræðurnir Sveinn Aron og Andri Lucas Guð- johnsen. Þá snýr Alfreð Finnboga- son aftur í landsliðið eftir meiðsla- hrjáða fjarveru. Alfreð er kominn á skrið með danska úr valsdeildar félag inu Lyngby og Arnar Þór er ánægður með framherjana sem hann hefur úr að velja. „Alfreð hefur spilað alla þá leiki sem hann hefur getað spilað síðan hann skrifaði undir hjá Lyngby. Að sjálfsögðu þarf hann í kjölfarið að koma sér í betra leikform en það er alveg ljóst í mínum augum að Alfreð Finnbogason á sæti í íslenska lands- liðinu skilið. Ég er mjög ánægður með að hann sé kominn aftur eftir erfið ár. Sveinn Aron og Andri Lucas hafa verið í undanförnum landsliðs- hópum hjá mér. Þetta eru leikmenn sem ég hef mikla trú á og veit að þeir munu skila vel af sér því hlutverki sem við gefum þeim. Ég er mjög ánægður og ber mikið traust til þessara þriggja framherja.“ n Kvennaliðið í gólfæfingu á fimmtu- daginn. MYND/STEFÁN ÞÓR FRIÐRIKSSON kristinnpall@frettabladid.is FÓTBOLTI Staðfest var í gærkvöldi að Heimir Hallgrímsson yrði næsti þjálfari karlaliðs Jamaíku í knatt- spyrnu, Reggístrákanna eins og þeir kallast. Heimir skrifaði undir fjögurra ára samning í Kingston og stýrir liðinu í fyrsta sinn gegn Argentínu þann 27. september næstkomandi. Þetta er fyrsta starf Heimis í rúmt ár eða frá því að hann lét af störfum hjá Al-Arabi í Katar. Heimir tekur við liðinu af heima- manninum Paul Hall sem sagði upp störfum fyrr á þessu ári eftir deilur við knattspyrnusambandið um aðstöðu og aðbúnað. Heimir verður tólfti erlendi þjálfari Jama- íku frá upphafi og tekur við liðinu í 62. sæti heimslistans, einu sæti ofar en Ísland. Reggístrákarnir hafa ekki komist í lokakeppni HM frá 1998 en eru í dauðafæri á að komast á næsta mót þar sem sex þjóðir frá Norður- og Mið-Ameríku komast inn á næsta HM og tvær þjóðir til viðbótar fá sæti í umspili. n Heimir á Jamaíku næstu fjögur ár Heimir kom Íslandi á HM í fyrsta sinn árið 2018. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR kristinnpall@frettabladid.is FIMLEIKAR Karla- og kvennalandslið Íslands keppa í úrslitum á Evrópu- mótinu í hópfimleikum í Lúxem- borg í dag. Kvennalandsliðið hefur gull að verja frá því í fyrra en karla- landsliðið nældi í silfurverðlaun á síðasta ári. Fylgst verður með gangi mála á vef Fréttablaðsins. Kvennalandsliðið lenti í þriðja sæti í undanúrslitunum á fimmtu- dag þrátt fyrir nokkur smávægileg mistök og getur liðið hæglega náð að endurtaka leikinn frá því í fyrra með góðri frammistöðu í dag. Það sama má segja um karlaliðið sem lenti í fimmta sæti í undanúr- slitunum þrátt fyrir nokkur mistök á undanúrslitakvöldinu. n Verja gullið í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.