Fréttablaðið - 17.09.2022, Side 10
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
ét
t t
il l
eið
ré
tti
ng
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð
ve
rð
ge
tu
r b
re
ys
t á
n
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Flórens
Borg draumanna...
17. nóvember
í 3 nætur
119.000
Flug & hótel frá
Frábært verð
á mann
ninarichter@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL „Veikt fólk getur
ekki beðið,“ segir Halla Þorvalds-
dóttir, framkvæmdastjóri Krabba-
meinsfélagsins, um aðstöðumál
krabbameinssjúkra á dagdeild á
Landspítala. Að sögn Höllu er von á
40 prósenta aukningu í krabbamein-
stilfellum til ársins 2035, og byggja
þær spár á NORDCAN-gagnagrunni
norrænu krabbameinsskránna.
„Sömu spár gera ráð fyrir að lif-
endum fjölgi um 50 prósent á sama
tíma, sem er auðvitað vegna þess að
greiningu og meðferð fleygir fram.“
Halla segir aðstöðuna á dagdeild
Landspítala núna löngu sprungna.
„Hún ber ekki þessa meðferð. Starfs-
fólkið lætur þetta reddast og það er á
kostnað alls konar þátta.
Það verða miklar framfarir á
Landspítalanum þegar nýr með-
ferðarkjarni verður tilbúinn. En
staðreyndin er að það liggur ekkert
fyrir í dag hvernig aðstöðu þessarar
deildar verður fyrir komið á næstu
árum,“ segir Halla.
„Það er engin aðstaða fyrir
aðstandendur, það er ekki pláss til
að setjast niður og borða, matur er
ekki í boði og það er ekki einu sinni
pláss fyrir sjálfsala með samlokum.
Fólk situr mjög þétt og verður óhjá-
kvæmilega vitni að alls konar sam-
tölum og samskiptum.“
Halla nefnir að í krabbameins-
veikindum geti ýmislegt komið upp
sem fólk þarf að geta rætt við sinn
hjúkrunarfræðing. „Samlíf, hægðir,
verkir, sár og þunglyndi og kvíði sem
dæmi,“ segir hún. „En það er engin
almennileg aðstaða til þess.“
Nánar á frettabladid.is
Aðstaða krabbameinssjúkra sprungin
Halla Þorvalds
dóttir, fram
kvæmdastjóri
Krabbameins
félagsins
odduraevar@frettabladid.is
BRETLAND Barnabörn Elísabetar
Bretadrottningar munu standa
svokallaða vakt prinsanna við kistu
hennar í fimmtán mínútur í West-
minster Hall í kvöld. Ekki kemur
fram í breskum miðlum nákvæm-
lega hvenær.
Vilhjálmur Bretapr ins mun
standa við höfuð drottningarinn-
ar þar sem hún liggur í kistunni
á meðan bróðir hans Harry mun
standa til fóta.
Báðir verða prinsarnir í her-
klæðum að beiðni Karls konungs
hins þriðja. Hin sex barnabörnin
verða í dökkum kjólfötum og
munu standa við hlið prinsanna á
vaktinni.
Við hlið Vilhjá lms verðu r
frænka hans og frændi Zara Tin-
dall og Peter Phillips, börn Önnu
prinsessu. Við hlið Harrys verða
börn Andrésar Bretaprins, Beatrís
prinsessa og Eugenie. Við miðju
kistunnar verða börn Játvarðar,
sem er yngstur barna Elísabetar,
þau lafði Lovísa og vísigreifinn
James. Mökum er ekki boðið.
Um er að ræða hefð sem nær
tæpa öld aftur í tímann frá því
þegar Georg fimmti, langafi Karls
þriðja, lést árið 1936. Við það tilefni
stóðu prinsarnir Játvarður áttundi,
Albert prins, Hinrik prins og Georg
prins vörð við líkkistu föður síns í
Westminster Hall. n
Prinsarnir standa vaktina í kvöld
Karl konungur
og önnur börn
Elísabetar II.
heitinnar stóðu
vakt við kistu
móður sinnar
á dögunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Ferðaþjónustan hefur náð
svipuðum styrk og árið 2019
eftir sumar sem gekk framar
vonum í greininni. Erfiðleikar
á helstu markaðssvæðum og
háir vextir innanlands gætu
sett strik í reikninginn.
gar@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA „Þetta fór rólega
af stað í júní en júlí og ágúst voru
vonum framar,“ segir Kristófer Oli-
versson, formaður FHG, Fyrirtækja í
hótel- og gistiþjónustu, um ganginn
í greininni í sumar.
Komið hefur fram að umsvif
ferðaþjónustunnar í ár eru á pari
við árið 2019 sem þó var lakara en
metárið 2018. Það var árið 2019 sem
rekstur WOW air komst í þrot.
Kristófer segir að haustið líti
ágætlega út. Innan greinarinnar
hafi verið áhyggjur af hækkandi
orkuverði og öðrum erfiðleikum á
okkar helstu markaðssvæðum. „En
veruleikinn fram að þessu er í raun
og veru annar. Kannski af því að það
er svona mikill uppsafnaður ferða-
vilji,“ segir hann.
Að sögn Kristófers hafa Bretar
verið að sækja í sig veðrið í f lugi
til Íslands. „Þeir eru okkar bestu
vetrarkúnnar ásamt Bandaríkja-
mönnum,“ bendir hann á.
Kínverjar og ferðalangar frá
öðrum löndum Asíu, sem hafa
einnig verið sterkur hópur í ferða-
þjónustunni að vetrarlagi, hafa
hins vegar enn ekki byrjað að skila
sér aftur eftir Covid. Kristófer segir
það meðal annars vera vegna lok-
unar leiða yfir Rússlandi sem gerir
f lugleiðir lengri og einnig vegna
strangrar aðferðafræði kínverskra
stjórnvalda við að hefta útbreiðslu
kórónaveirunnar.
Kristófer minnir á að hægt sé að
horfa á málin frá mörgum sjónar-
hornum og vitnar til orða Ásgeirs
Jónssonar seðlabankastjóra á Ferða-
þjónustudeginum á miðvikudag-
inn. „Ásgeir sagði að við ættum að
muna að horfa til þess að á Íslandi
sé skattkerfið þannig að stór hluti af
því byggi á neyslusköttum. Þannig
að um leið og ferðamennirnir eru
lentir eru þeir farnir að borga skatta
á fullu og skila svo miklu inn í sam-
félagið.“
Markmið síns eigin fyrirtækis,
Centerhotels, kveður Kristófer vera
að endurheimta fyrri styrk eftir
gríðarleg áföll Covid-tímabilsins
með tveggja ára tekjuleysi. Hann
kveður verðbólgu og háa vexti vera
helsta vandamál hótelgeirans um
þessar mundir.
„Fjármagnskostnaðurinn tekur
alveg svakalega í,“ segir Kristófer.
Óvissuþættirnir séu enn margir.
„En ef flugélögin meta það sem svo
að Ísland sé góður áfangastaður
þá skilar það sér. Og maður getur
ekki verið annað en þakklátur fyrir
hversu miklu betur hefur ræst úr
þessu en maður þorði að vona.“ n
Gott sumar en háir vextir
erfiðir fyrir gistiþjónustuna
Bátfyllir af ferðamönnum lagði úr höfn í Reykjavíkurhöfn í gær á leið í hvalaskoðun á Faxaflóa. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Um leið og ferðamenn-
irnir eru lentir eru þeir
farnir að borga skatta á
fullu og skila svo miklu
inn í samfélagið.
Kristófer
Oliversson,
formaður Fyrir
tækja í hótel og
gistiþjónustu
benediktboas@frettabladid.is
K VIK MYNDIR Stjórn Sambands
íslenskra kvikmyndaframleiðenda
harmar þá stöðu sem upp er komin
í kvikmyndaiðnaði, þar sem boð-
aður er niðurskurður í frumvarpi til
fjárlaga 2023 sem gangi þvert gegn
Kvikmyndastefnu stjórnvalda til
ársins 2030.
Í yfirlýsingu SÍK frá því í gær segir
að niðurskurðurinn sem boðaður
er nemi 433 milljónum króna og
muni hafa alvarlegar af leiðingar
fyrir framleiðslu verkefna. Þá er
stjórnin ósátt með ummæli Lilju
Alfreðsdóttur, menningar- og við-
skiptaráðherra, sem í Bítinu á Bylgj-
unni í gær gaf til kynna að gagn-
rýnin byggði á misskilningi.
Stjórnin bendir á að fyrirsjáan-
leiki kvikmyndaiðnaðar skipti
sköpum enda sé ferli kvikmynda-
verkefna frá hugmynd til sýninga
oft langt og telji stundum mörg ár.
Stjórnin vonast til að stjórnvöld
endurskoði umræddan fjárlagalið
og væntir áframhaldandi samtals
við menningar- og viðskiptaráð-
herra um málið á næstu dögum. n
Harma niðurskurð til kvikmynda
Lilja Alfreðs
dóttir stuðaði
stjórn Sam
bands íslenskra
kvikmynda
framleiðenda.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR
10 Fréttir 17. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ