Fréttablaðið - 17.09.2022, Page 35

Fréttablaðið - 17.09.2022, Page 35
Umsóknarfrestur er til og með 28. september nk. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is. Neyðarlínan ohf. leitar að öflugum stjórnanda til að leiða fyrirtækið áfram en fram undan eru mikilvæg verkefni í stefnumótun og skipulagsbreytingum. Leitað er að leiðtoga með góða reynslu af stjórnun og rekstri, framúrskarandi félagslega færni, getu til tengslamyndunar og traust orðspor. Í boði er krefjandi og spennandi framtíðarstarf þar sem unnið er að mikilvægri þjónustu við almenning. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið • Daglegur rekstur félagsins • Samskipti við hið opinbera og aðra samstarfsaðila • Yfirumsjón með fjármálum • Leiðandi í gerð samninga við stærstu viðskiptavini og birgja • Stefnumótun í samvinnu við stjórn Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Stjórnunar- og rekstrarreynsla • Góð reynsla af samningagerð • Framtíðarsýn og reynsla af breytingastjórnun • Reynsla af opinberri stjórnsýslu • Ákveðni og kraftur • Framúrskarandi samskiptahæfni • Góð enskukunnátta nauðsynleg Framkvæmdastjóri hagvangur.is Sótt er um starfið á hagvangur.is Neyðarlínan sér um neyðar- og öryggisþjónustu á Íslandi og starfrækir til þess 112, Vaktstöð siglinga og Tetra fjarskiptakerfið. Rekstur neyðarvaktstöðvar er í samræmi við lög um samræmda neyðarsvörun nr. 40/2008. Neyðarlínan boðar björgunar- og neyðarsveitir á öllu landinu og er tengiliður milli almennings og viðbragðsaðila. Við leitum að einstaklingi til þess að slást í lið með fjölbreyttum og samheldnum hópi sem veitir öllum loftförum er fara um Keflavíkurflugvöll þjónustu. Við leggjum áherslu á skilvirkni og fagleg vinnubrögð, erum lausnamiðuð í nálgun okkar á fjölbreytt og spennandi verkefni sem snerta ferðalanga vallarins. Helstu verkefni Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Hagnýt þekking og reynsla á flugleiðsöguþjónustu eða sambærilegu • Þekking á lögum og reglugerðum sem gilda um þjónustuna æskileg • Reynsla af verkefnastjórnun kostur • Þekking og/eða reynsla af öryggis- og gæðastjórnun • Mjög góð íslensku og ensku kunnátta í ræðu og riti Sótt er um starfið á isavia.is/atvinna Umsóknarfrestur er til og með 3. október. Frekari upplýsingar um starfið veitir Bjarni Páll Tryggvason: bjarni.tryggvason@isavia.is Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið. Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um. Verkefnastjóri öryggis- og gæðamála Isavia leitar að öflugum verkefnastjóra á sviði öryggis- og gæðamála í flugturninn á Keflavíkurflugvelli Saman náum við árangri Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. • Viðhalda og styðja við öryggismenningu innan flugturns • Tryggja að öryggisáhættu þjónustunnar sé stýrt í samræmi við verklag • Skýrslugerð vegna þjónustunnar • Viðhald og umsjón með skjölum stjórnunarkerfisins vegna ATS málefna • Eftirlit með skráningu atvika og eftirfylgni • Samskipti og samstarf við hagaðila og aðrar einingar vegna öryggis- og gæðamála ATVINNUBLAÐIÐ 3LAUGARDAGUR 17. september 2022

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.