Fréttablaðið - 17.09.2022, Page 50
Verkefnastjóri
Notendaþjónusta og rekstrardeild sinnir m.a. uppsetningu og innleiðingu á stórum tölvukerfum og daglegum rekstri þeirra. Hjá deildinni starfa 7 starfsmenn og starfsstöð
er Skúlagata 21, Reykjavík. Um er að ræða 100% starf.
Embætti ríkislögreglustjóra er lifandi þekkingarvinnustaður sem býr að fjölbreyttum og framúrskarandi mannauði þar sem starfa rúmlega 200 starfsmenn sem sinna margbreytilegum
verkefnum. Lögð er áhersla á opin og jákvæð samskipti, markvissa starfsþróun og unnið er í samræmi við stefnu embættisins um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu.
Embætti ríkislögreglustjóra hefur hlotið jafnlaunavottun.
Stefna embættis ríkislögreglustjóra í hnotskurn: Okkar tilgangur er að vernda og virða - Okkar sýn er að vinna að öruggara samfélagi - Okkar markmið er að vera þjónustudrifin,
framsækin og upplýsandi með áherslu á þjónustu - fagmennsku - mannauð - tækni - rekstur.
Menntunar-, reynslu- og hæfniskröfur
Menntun
• Microsoft vottun í Azure innleiðingu og hönnun.
• Microsoft vottun í Microsoft 365 innleiðingu og hönnun.
• Microsoft vottun í upplýsinga öryggi.
• Microsoft vottun í rekstri Windows netþjóna
• Önnur menntun sem nýtist í starfinu.
Reynsla
• Umfangsmikil þekking og reynsla á tölvumálum, þ.m.t. rekstri tölvu-, net- og símkerfa.
• Staðgóð þekking á og reynsla af þróun og samþættingu upplýsingatæknikerfa.
• Reynsla af verkefnastjórnun.
• Reynsla af þjálfun og miðlun upplýsinga.
• Reynsla af hönnun, innleiðingu og samþættingu tölvukerfa.
• Reynsla af sjálfvirknivæðingu í tölvukerfum.
• Reynsla af skráningu vegna innleiðinga tölvukerfa.
• Reynsla af rekstri Active Directory ásamt þjónustum eins og PKI.
Persónulegir eiginleikar/hæfni
• Jákvætt viðmót, lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Faglegur metnaður, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun við úrlausn verkefna.
• Góðir skipulagshæfileikar og öguð vinnubrögð.
• Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og hluti af teymi.
• Hæfni til að afla þekkingar á sjálfstæðan hátt.
• Hæfni í miðlun þekkingar skriflega og í formi námskeiða.
Frekari upplýsingar um starfið
• Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá að hámarki 2 bls. ásamt kynningarbréfi sem
er að hámarki 1 bls. á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni
umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram
koma í auglýsingu. Umsóknir skulu berast í gegnum Starfstorg (www.starfatorg.is).
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
• Umsækjendum um störf hjá embætti ríkislögreglustjóra kann að vera gert að leysa
verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni
þeirra til viðkomandi starfa.
• Umsóknarfestur er til 23. september nk.
Öllum umsóknum verður svarað að loknum ráðningum. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði
frá lokum umsóknarfrests. Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttis-
áætlunar lögreglunnar, eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um.
• Vakin er athygli á því að samkvæmt 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan skipa,
setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan
verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem
getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að
staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögre-
glu. Með vísan til 24. gr. varnarmálalaga nr. 34/2008 og 20. gr. reglugerðar nr. 959/2012,
sbr. einnig 30. og 31. gr. reglugerðarinnar þarf starfsmaður að standast
bakgrunnskoðun til að hljóta öryggisvottun vegna starfans.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Að tryggja rekstur og uppitíma kerfa lögreglu.
• Þátttaka í gerð framtíðaráætlana um uppbyggingu og þróun tölvukerfa lögreglunnar.
• Þáttaka í hönnun, innleiðingu og rekstri Microsoft 365 lausna lögreglunnar.
• Þáttaka í hönnun, innleiðingu og rekstri Microsoft Azure lausna lögreglunnar.
• Þáttaka í hönnun, innleiðingu og rekstri öryggislausna lögreglunnar.
• Dagleg störf er snúa að rekstri upplýsingkerfa lögreglu.
• Halda námskeið fyrir starfsmenn um rekstur og innleiðingu tölvukerfa logreglunnar.
• Verkefnastjórn á uppsetningu og innleiðingu á stórum tölvukerfum.
• Hugbúnaðargerð , viðhald og uppfærslur á hugbúnaði og kemur að samskiptum
við stofnanir og fyrirtæki utan lögreglu vegna þess.
• Tekur þátt í að veita fræðslu og aðstoð til embætta í tengslum við lögreglukerfin.
• Tekur þátt með deildarstjóra í vinnslu tillagna- og áætlanagerða verkefna
(tími-gæði-kostnaður).
• Samskipti við samstarfsaðila á sviði upplýsingatæknimála bæði innanlands
og erlendis.
• Fylgist með nýmælum og framförum á sviði tölvu- og símamála og kemur á framfæri
við deildarstjóra og starfsmenn deildarinnar.
Embætti ríkislögreglustjóra leitar að öflugum verkefnastjóra til starfa
í notendaþjónustu og rekstrardeild sem er hluti af þjónustusviði.
Við leitum að einstaklingi sem er lausnarmiðaður, brennur fyrir hönnun
og framþróun og hefur áhuga á að starfa í öflugu teymi.
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is